Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1993, Page 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
t - Dreifing: Sími 63270§
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1993.
Símabilanimar:
Engar skýring-
arþráttfyrir
ítrekaða leit
„Það hefur ekkert fundist enn þrátt
fyrir mikla leit. Hingað komu dansk-
ir sérfræðingar á íimmtudagskvöld
og þeir hafa verið að vinna við rann-
sókn síðan. Auk þess hefur verið
unnið við leit að biluninni í Dan-
mörku, Stokkhólmi og í Ástralíu.
Hugbúnaðurinn er samsettur úr
mörgum einingum og ákveðnir aðil-
ar bera ábyrgð á hverri einingu fyrir
sig. Vegna sérhæfmgar er verkinu
skipt niður á hina ýmsu staði,“ sagði
Brandur Hermannsson, yfirtækni-
fræðingur hjá Pósti og síma, við DV.
Endurteknar bilanir í miðbæjar-
stöð símans valda sérfræðingum
miklum heilabrotum. Þrátt fyrir ít-
rekaða leit virðist ekki hægt að finna
sökudólginn. Engar visbendingar
hafa komið fram um orsakir og því
standa menn ráðþrota. Svipaðar bil-
anir hafa komið fram í símstöðvum
í öðrum löndum, í Danmörku og víð-
ar. Hins vegar hafa hvergi orðið jafn
tíðar bilanir og hér á landi. Síðast
kom upp bilun á fimmtudag og stóð
hún yfir í þrjú kortér.
„Það er unnið að þessu á öllum
sviðum. Starfsmenn okkar hafa yfir-
farið hvern hlut í húsinu með tíiliti
tíl utanaðkomandi truflana, bæði
varðandi rafmagn, jarðtengingar og
fleira. Við erum í rauninni að yfir-
fara allt kerfið og leita á öllum hugs-
anlegum stöðum að einhverju sem
hægt er að betrumbæta," sagði
Brandur. -ELA
Sýndu hnefaleika:
Búum okkur
undir alvöru-
keppni
- segir Benedikt Oddsson
„Við erum búnir að æfa hnefaleika
síðan í ágúst hjá þjálfara í Reykjavík.
Það er mjög mikill áhugi á hnefaleik-
um hér á landi og menn bíða eftir
að löggjöfinni verði breytt," sagði
Benedikt Oddsson í Keflavík við DV.
Benedikt sýndi hnefaleika ásamt
Guðjóni Vilhelm á veitingastaðnum
Þotunni í Keflavík um helgina.
„Það var mjög vel tekið á mótí okk-
ur og fólkið sýndi þessu mikinn
áhuga. Þetta var meiri sýning en al-
vöruhnefaleikar," sagði Benedikt.
„Ef lögunum verður breytt og
hnefaleikar leyfðir munum við vera
undir það búnir að byrja að keppa.
Við erum með hlífar á æfingum og
því er þetta ekkert hættulegt. Það er
mikill agi á æfingunum og þær eru
vissulega erfiðar en þetta er mjög
skemmtilegt," sagði Benedikt. -ELA
Skemmtístaðuriim Barrokk við
Laugaveg hefur verið kærður fyrir
hávaða. Kæran barst frá fjölskyid-
um við Hverfisgötuna sem erfitt
átti með svefit vegna hávaöa þaðan.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
í morgun hefur Heilbrigðiseftirlit
Reykjavlkur heimild til að loka
staðnum ef forsvarsmenn Bar-
rokks hafa ekki framkvæmt þær
úrbætur sem þeim var gefinn frest-
ur til að gera. Oddur Rúnar Hjart-
arson, framkvæmdastjóri Heil-
brigöiseftirlitsins, neitaði að gefa
upplýsingar um máliö í morgun.
Einn fjögurra eigenda Barrokk,
Fabio Patizini, kannaöist viö að
staðurinn hefði fengið á sig kæru
þegar DV hafði samband við haim.
„Við fengum þessa kæru fyru
nokkrum mánuðum. Það hefm-
ekkert komið út úr henni ennþá.
Lögreglan kom og bað okkur um
að lækka tónlistína. Við ætlum
ekki að gera það því þá er þetta
náttúrlega ekki neinn skemmtí-
staður. Það er ekki hægt að hafa
skemmtistað án tónlistar,“ segir
Fabio.
Að sögn Fabios fengu þeir félagar
: skemmtanaieyfi frá lögreglustjóra-
embættinu til þess að reka
skemmtistað að Laugavegi 73.
Menn frá Heilbrigðiseftírliti
Reykjavíkur mældu hávaðann á
heimili kærenda og mældist hann
hátt i 80 deslbel sem er langt yfir
svokölluðum hættumörkum. Eftír
það fengu forsvarsmenn skemmti-
staðarins frest til að framkvæma
úrbætur. Þær hafa ekki verið fram-
kvæmdar ennþá. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu í morgim hefur
heilbrigðiseftírlitið því heimild til
að loka staönum - með hjálp lög-
reglu ef á þarf að halda.
„Við erum ekki búnir að lækka
tónlistina og ætlum okkur ekki aö
gera það. Eftir 1. desember er búið
aö hóta okkur að loka staðnum ef
við lækkum ekki. Við leigjum stað-
inn sem skemmtistað og ef ekki er
hægt að hafa skemmtistað þarna
mun samningur okkar við eiganda
falla niður,“ segir Fabio.
Benedikt Oddsson og Guðjón Vilhelm sýna hnefaleika í Keflavík.
DV-mynd Ægir Már
Tíminn:
Hættir stjórnin
„Það er stjórnarkjör á dagskrá
stjórnarfundar í dag. Ég þykist viss
um að þaö verði kjórin ný stjórn
Mótvægis hf. á þessum fundi. Fram-
hald mitt sem ritstjóra Tímans fer
alveg eftir því hverjir verða kjörnir
í stjómina. Það eru hins vegar get-
gátur að ég hafi þegar ákveðið að
segja upp störfum," sagði Þór Jóns-
son, ritstjóri Tímans, í samtali við
DV í morgun.
Bjarni Þór Óskarsson, stjómar-
formaður Mótvægis, vildi í morgun
ekkert tjá sig um máhð en útilokaði
ekki að hluti stjórnar segði af sér á
hluthafafundi í dag. Aðspurður um
fjárhagsstöðuna sagði hann von til
þess að það tækist að afla nýs hluta-
fjár þó ekkert væri borðleggjandi í
þeimefnum. -S.dór/kaa
Kringludeilan:
Dapuriegtfyrir
neytendur
„Ég vil nú ekki blanda mér í innan-
hússdeilur þarna uppi í Kringlu.
Hins vegar er greinilegt að einhverjir
aðilar virðast eiga dáhtið erfitt með
að þola ákveðna samkeppni við sig,“
segir Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, um deil-
umar vegna plötusölu Sævars Karls.
„Það er að sjálfsögðu afskaplega
dapurlegt þegar forsvarsmenn
frjálsrar verslunar og frjáls framtaks
líða ekki samkeppni. Það er að sjálf-
sögöu dapurlegt fyrir neytendur að
það skuli lokað á möguleika að fá
geisladiska á ódýrari máta. Neytend-
ur hljóta að hafa þetta í huga í fram-
tíðinni, bætir Jóhannes við. -IBS
- sjá bls. 2
Brunaæfingin
varðaðmartröð
t
„Húsið fuðraði upp á skömmum
tíma og það varð ekki við neitt ráðið.
Um tíma varð geysilegt hættuástand
og æfingin broyttist í martröð," sagði
Þorbjöm Sveinsson, slökkviliðsstjóri
á ísafirði, við DV. íbúðarhús á
ísafirði skemmdist af vatni og reyk
og rúður sprungu í nærliggjandi hús-
um, báti og bíl þegar gamalt timbur-
hús, sem slökkvihðið ætlaði að æfa
sig á, fuðraði upp á örskammri
stundu sl. laugardag.
Slökkvihð ísafiarðar hafði fengið
leyfi til að kveikja í gömlu timbur-
húsi við Fjarðarstræti. í upphafi æf-
ingar var hægur suðaustan andvari
en á örskammri stundu snerist vind-
áttin til hánorðurs. íbúðarhús við
Norðurvegvarístórhættu. -bjb
LOKI
Þetta er sannkallað brunalið
á ísafirði!
Veðrið á morgun:
Frostum
allt land
Á morgun verður norðlæg eöa
norðaustlæg átt, líklega strekk-
ingsvindur á Vestfiörðum og allra
austast á landinu. Éljagangur um
norðan- og austanvert landiö en
nokkuð bjart veður sunnanlands.
Frost um aht land.
Veðrið í dag er á bls. 52
lll
ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
Lágmúla 5, s. 681644
Þegar til lengdar lcetur
I
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
i
í
i
r
i
í
i
i
i
i