Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1994, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
9
Útlönd
Þúsundir muna bíða eftir eigendum sínum:
Hauskúpa og tréfótur
i oskilum i Parisarborg
Höfuðkúpa af manni, risastór upp-
stoppaður humar, tréfótur, upp-
blásnar dúkkur til kynlífsiðkana,
brimbretti.
Þetta er aðeins lítið sýnishom af
því sem liggur uppi í hillum óskila-
munadeildar lögreglunnar í París en
þangað berast meira en eitt hundrað
og tíu þúsund hlutir á hverju ári.
Pietro Alesi, starfsmaður deildar-
innar, segir frá því að eitt sinn hafi
einhver komið með þijár gullstengur
sem eigandinn hafði skilið eftir í neð-
anjarðarlestinni. Sá var þó ekki
meira utan við sig en það að hann
kom að vitja gullsins daginn eftir.
En óperusöngkona nokkur kom
ekki fyrr en eftir marga mánuði til
að fá aftur skartgripi að verðmæti
um níu milljónir króna sem hún
hafði týnt ásamt handtöskunni sinni.
„Hún var að syngja í útlöndum,"
segir Alesi.
Hann segir að þaö komi oft fyrir
að fólk skili skartgripum og pening-
um sem það hefur fundið og hafa
upphæðimar numið allt að fimrn
hundmð þusundum króna.
Fyrir nokkrum árum skilaði bíla-
þjófur svo lítið bar á leyniáætlun
franskra stjómvalda um vamir í
Tsjad, fyrrum nýlendu sinni í Afríku.
Byssum, hnífum, eiturlyfjum og
munum sem taldir eru vera siðspUl-
andi, svo sem tækjum og tólum
sadó-masókista sem fundust í al-
menningsgarði í einu af skugga-
hverfum borgarinnar, er eytt. Enda
kemur ekki oft fyrir að þeirra sé vitj-
að.
Flestir munanna em þó ósköp
hversdagslegir. „Hvaðeina sem fólk
hefur með sér og er ekki fastbundið
við líkama þess,“ segir Alesi.
Nýjustu tölur sýna að 1264 regn-
hlifar bámst til deildarinnar í des-
ember sem var óvenju votviðrasam-
ur, 637 kvenveski, 274 gleraugu og
80 myndavélar, svo eitthvaö sé nefnt.
Reuter
Liceo í Barcelona á Spáni:
Óperuhúsið
brann til
kaldra kola
Liceo óperuhúsið var eitt af stærstu
og virtustu óperuhúsum heims og
þar höfðu margir af frægustu óperu-
söngvurum heims komið fram. Hin
fræga spænska sópransönkona
Montserrat Caballe sést hér ásamt
forstjóra óperuhússins, Josep Cam-.
inal. Simamynd Reuter
Hið þekkta óperuhús Liceo í Barcel-
ona á Spáni eyðilagðist í brana í gær
en eldurinn kom upp þegar neisti úr
logsuðutæki komst í leiktjaldiö þegar
vinnumenn voru þar að störfum.
Eldurinn breiddist mjög fljótt út og
um 50 slökkviliðsmenn, sem vom að
störfum, gátu lítið gert til að ráða
niðurlögum eldsins.
Mikil mildi var að enginn fórst í
bmnanum en hópur skólakrakka
var í skoöunarferð um húsið þegar
reyksins varð fyrst vart og um 100
starsmenn við vinnu. Tveir menn
voru fluttir á sjúkrahús vegna reyk-
eitmnar sem var þó ekki talin alvar-
leg.
Liceo óperuhúsið var eitt af elstu
og virtustu óperuhúsum heims en
það var opnað árið 1847. Margir af
frægustu óperusöngvumm heims
höfðu komið þar fram og má þar
nefna nöfn eins og Enrico Caruso,
Mariu Callas, Placido Domingo og
tenórinn Jose Carreras sem kom þar
fyrst fram aðeins 11 ára gamall.
Eldur hefur áður komið upp í
óperuhúsinu en það var árið 1861.
Skemmdir urðu þó ekki miklar. Þá
varð annað óhapp árið 1893 þegar
maður kom sprengju fyrir í húsinu
og drap 20 manns.
Mikið af verðmætum fomminjum
urðu eldinum að bráð en slökkviliðs-
mönnum og lögreglu tókst þó að
bjarga safni af dýrum nútímalista-
verkum sem voru i viðbyggingu
safnsins.
Forseti Katalóníuþings, Jordi Pu-
jol, sagði að óperuhúsið yrði endur-
byggt eins fljótt og unnt væri. „Ef viö gera það jafnvel að enn betra óperu-
fáum stuðning frá þjóðfélaginu þá húsienþaðvaráður,“sagðiPujol.
munum við endurbyggja húsið og Reuter
rmz neimutli
Vanræktvor
Dönsku leik-
arai-nir Fritz
Helmuth og
Sofie Gráböl,
fengu Bodil
kvikmynda-
verölaumn á
kvikmyndahá-
tíð sem haldin
var í Kaupmaimahöfn sl. sunnu-
dag.
Fritz, sem er vel kunnugur ís-
lenskum sjónvarpsáhorfendum,
tekk verðlaun fyrir besta kari-
hlutverkiö í myndinni Det for-
sörnte forár sem sýnd er í Há-
skólabíói þessa dagana og nefnist
Vanrækt vor. Sofie Gráböl fékk
verðlaun fyrir besta kvenhlut-
verkið í dönsku myndinni Sort
Höst.
Þá fékk danski leikstjórinn Erik
Clausen einnig Bodil verðlaun
fyrir mynd sina De frigjorte sem
valin var besta danska myndin á
sl. ári.
Píanistidrepur
kennaraogná-
grannasinn
Pianisti í Berlín myrti barna-
skólakennara og nágranna sinn
og gaf lögreglunni þá skýrmgu
aö hannheföiviljað „frelsa“ þau.
Píanistinn og barnaskólakenn-
arinn höfðu verið elskendur en
hann ákvað að skera af henni
höfuðíð eftir að hún hafði sagt
eitthvað „ljótt“ við hann eins og
hann skýrði lögi-eglunni frá.
Pianistinn ákvað einnig að
drepa einn nágranna sinn sem
hann taldi að drykki of míkið og
þyrfti því á „frelsun" að halda.
Hann drap hann með því að
stinga skrúíjárni í höfuðið á hon-
um.
Bretaprinsinn
sýndur ber að
ofanásvamli
Bresk sjón-
varpstöð sýndi
nýlega mynd af
Karii Breta-
prinsi á svamli
í sundlaugar-
partíi í Ástralíu
og vaktimynd-
in mikla
reíði í Buckinghamhöll. Upp-
tökumennirnir voru staddir í
garöveislu með prinsinum og not-
færðu sér tækifæriö og mynduðu
prinsinn sem í sakleysi sínu hélt
hami gæti slappað af og notið lífs-
ins. Tökumennimir eru sagðir
hafa notfært sér traust sem þeim
var sýnt og samkvæmt upplýs-
ingum frá Buckinghamhöll verð-
ur gæslan strangari í framtiöinni.
Höfundurað
„Brúin yflr
Kwal“ látinn
Franski rithöfundurinn Pierre
Boulle, sem þekktastur var fyrir
bækur sína Brúin yfir Kwaífljótið
og Apaplánetan, lést á heimili
sínu í París í gær, 81 árs gamall.
Hann halði verið mjög veikur að
undanförnu. Boulle, sem fæddist
í bænum Avignon árið 1912, barð-
ist í seinni heimsstyrjöldinni og
fékk m.a. nokkrar medab'ur fyrir
hetjuskap.
Eitt af hans fyrstu verkum,
Brúin >fir Kwaifljótið, var kvik-
myndaö og hlaut þrenn óskars-
verðlaun árið 1957. Apaplánetan
var einnig kvikmynduð og hlaut
miklar vinsældir en hún var með
hinuro þekkta leikara Chariston
Heston í aðalhlutverki.
Ritzau-Reuter
lusconiekkifyr-
irséríforustu
Umberto
Bossi, leiðtogi
Bandalags
norðanmanna
á Ítalíu, sagði í
gær aö tjöl-
miölakóngur-
inn Silvio Ber-
lusconi, sem er
kóminn á kaf i pólitíkina, gæti
stuðlaö að samningum milli
íhaldsflokka landsins fyrir kosn-
ingarnar í mars. Bossi sagðist þó
ekki sjá Berlusconi fyrir sér sem
forsætisráðherra.
Helstu foringjar norðanmanna
héldu langan fund með Berlusc-
oni á sunnudag en hann lýsti því
yfir í síöustu viku að liann ætlaði
í fraraboð,
SafntilheSðurs
tóbakðnuíKaup-
mannahöfn
Ole W. Ö. Larsen, tóbaksfram-
leiðandi í Danmörku, ætlar að
stofna tóbakssafn í kjallara versl-
unarhúsnæðis síns við Amager-
torg i Kaupmannahöfn.
í safninu verða til sýnis gamlir
munir og fáséðir úr eigu fyrir-
tækisins og Skandínavíska
tóbaksfélagsins og munu gestir
geta hnusað af sögu tóbaksins og
dönskum áhrifum á tóbaksmemi-
inguna frá 17. öld til vorra daga.
„Hugmyndin er að aöstaða
verði til að efna til sérsýninga,
svo sem eins og um pípuskurð og
vindlagerö í höndunum," sagöi
Ole Larsen.
Nýja safnið verður tilbúið þegar
ferðamenn hetja inm’ás sína í
Kaupmannahöfn í vor.
Reykingamönn-
umbýðstað
hætta á Lundey
Hugmyndir eru uppi um aö
bjóða reykingamönnum að losa
sig við sígaretturnar meö því að
taka þátt í tiu daga námskeiði á
bresku smáeynni Lundey sem er
tuttugu kílómetra undan vestur-
strönd Englands.
Reykingamennirnir verða að
undirrita yfirlýsingu um að þeir
ætli ekki aö fá sér smók á ferj-
unni út í eyna þar sem ekki verða
seldar neinar sígarettur. Og til
að reyna að útiloka allar laumu-
reykingar verða þátttakendur
látnir anda framan í eftirlits-
menn öðm hverju.
Lundey er fimm kílómetra löng
og fastir ibúar oru fjórtán talsins
en sautján þúsund ferðamenn
koma þangaö árlega.
Clintonsegist
ekki stinga
fréttamennaf
Bill CUnton
Bandarikjafor-
seti hefur borið
á móti þvi að
liann sé
reyna að stinga
fréttamenn af
og fari úr Hvita
húsinu án þess
að taka hóp þeirra með sér svo
þeir geti skýrt frá hverri einustu
hreyfingu lúms.
„Eg fór einu sinni út að hlaupa
þegar fréttamenn vom famir
hoim en ég held að þeir hafi fund-
ið mig áður en ég var búinn,“
sagði Clinton.
Astæða þessara vangaveltna er
frétt í tímaritinu Time um að for-
setanum finnist hann vera svo
einangraður í Hvita húsinu aö
hann hafi nokkram sinnum
laumast út án pressunnar.
Reuter