Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1994, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 Utlönd Franskastjórnin Edouard Balladur, for- sætisráöherra Frakklands, skýrði um helgina frá áætlunum stjórnar sinnar um aö örva hagvöxtinn með því aö hvetja al- menning til meiri neyslu, svo sem bDa- og húsnæöiskaupa. Það fór þó ekki svo aö kynntar væru neinar róttækar breytingar á núverandi stefnu sem vonast er til aö leiöi til 1,4 prósenta hag- vaxtar 1 ár. Verkalýðsfélög, stjómarand- staöan og dagblöð gerðu hins veg- ar lítið úr áforraum ríkisstjórnar- innar. Feröaskrifstofa Jens Veino, stjórnarformaöm- grænlensku feröaskrifstofunnar, hefur viðurkennt að fyrirtækiö standi ekki í stykkinu og hefur þar meó tekið undir harða gagn- rýni frá feröaskrifstofum í Þýska- landi, Hollandi, Sviss og Eng- landi. Erlendu ferðaskrifstofurnar hafa m.a gagnrýnt að þær fá ekki nauösynleg gögn send frá Græn- landi í tíma. Jens Veino viður- kennir að menn hafi ekki veriö nógu duglegir en neitar að ferða- skrifstofan sé í samkeppni við erlenda ferðaskipuleggjendur. „Við leggjura þvert á móti mikla vinnu í að aöstoða ferðaskrifstof* ur um alla heim,“ sagöi Veino við grænlenska útvarpiö. Háhymingurimt Ódysseifurfær nýttheimili Háhyrningurinn Ódysseifur, sem hefur búiö í litilli laug í dýra- garöinum í Barcelona síöastliöin tíu ár, sýndi Jistir sínar í síöasta sinn þar á sunnudag frammi fyrir þúsundum grátbólginna barna. Dýraiæknar komust að þvi í fyrra aö Ódysseifur þjáöist af þunglyndi og ætla menn aö ný og rúmbetri heimkynni í sjávar- dýragarðinum í San Diego í Kah- forníu muni létta honum lundina. Dýravinir voru síöur en svo ánægðir með ákvöröumna og sögðu að flutningurinn gæti riöiö dýrinu að fullu, betra væri aö leyfa Ódysseifi að synda frjálsum um höfin blá. Hurdneitarað aðstoðtengist vopnasölu Douglas Hurd, utanrík- isráöherra Bretlands, hef- urneitaðþviaö umdeild fjár- hagsaðstoð við stíflugerð í Malaslu tengist á nokkurn hátt vopnasölu til landsins. Utanríkismálanefnd breska þingsins mun rannsaka aðstoð- ina sem nemur um 25 milljöröum íslenskra króna. Breskir embættismenn segja að stíflugeröaráætlunin sé peninga- sóun og stjórnarandstæðingar segja að hún tengist vopnasölu. John Maior forsætisráðherra sagði aö Margaret Thatcher hefði lofað aðstoðinni sem heffli í för meö sér aukinn útflutning breskrafyrirtækja. NTB, Heuter Clinton og Kohl fengu sér ítalskan mat saman: Borðuðu ekki voðalega mikið - segir eigandi veitingastaðarins „Þetta var mjög góður matur. Viö vorum með Þjóðvetja og Bandaríkja- mann svo við töldum að við ættum að boröa ítalskan mat til að sanna hversu víðsýnir við erum. Auk þess sem þetta er dásamlegur veitinga- staður," sagði Bill Clinton Banda- ríkjaforseti eftir aö hann og Helmut Kohl Þýskalandskanslari höföu borðað fylli sína á Filomena Ristor- ante í Georgetown-hverfinu í Was- hington. Þeir félagamir fengu lítinn sal út af fyrir sig, sal sem kallaður er eld- húsið hennar Filomenu, sem eigandi veitingastaðarins, Joanna Filomena Chiacchieri, sagði aö væri innréttað- ur eins og heimili Itala í Brooklyn fyrir tuttugu árum. Málsverðurinn var dæmigerður ít- alskur. í forrétt fengu þeir Clinton og Kohl sér carpaccio, marínerað sjávarfang og kjöt og osta, allt kalt, svo og heita sveppi fyllta með krabbakjöti og rækju og appelsínus- ósu út á. Þessu næst var komið með steiktan smokkfisk og rauða sósu til aö dýfa í. Clinton fékk sér svo heföbundna Toscanasúpu úr hvítum baunum, spínati og tómötum en Kohl sleppti henni, kannski minnugur þess að Clinton líkti honum við súmóghmu- kappa fyrir skömmu. Aðalrétturinn var ravíólí með kálfakjöts-, spínat- og ostafylhngu. Með þessu drukku leiðtogamir hvor sitt glasið af Brunello Di Montalcino rauðvíni. Og pmiktminn yfir i-ið var blönduð ber í eftirrétt og bolli af cappuccino. Filomena er einn af uppáhaldsveit- ingastöðum Kohls í Washington og það var hann sem mælti með honum viö Clinton. „Þeir virtust slaka vel á. Þeir borö- uðu ekki svo voða mikið. Þeir borð- uðu hæfilega en fengu ekki neina risaskammta,“ sagöi frú Chiacchieri. Svo virðist þó sem Clinton hafi haft vinninginn. Reuter Helmut Kohl Þýskalandskanslari og Bill Clinton Bandarikjaforseti lita á matseðilinn á Filomena, vinsælum ítölskum veitingastað i Washington. Eigandinn, Joanna Filomena Chiacchieri, fylgist ánægð með. Simamynd Reuter Finnsku forsetakosningamar: Martti Athisaari harður í gagnrýni sinni á Rehn Spennan fyrir forsetakosningam- ar í Finnlandi næstkomandi sunnu- dag fer nú sífellt vaxandi. Spumingin er hvort Elísabetu Rehn varnarmála- ráðherra takist að verða fyrsta kon- an til aö gegna forsetaembættinu eöa hvort Martti Athisaari, fyrrum stjómarerindreki hjá Sameinuðu þjóðunum, verður hlutskarpari. Hvort tveggja er vel mögulegt. Nýjasta skoðanakönnun um fylgi frambjóðendanna sýndi aö 53 pró- sent kjósenda ætluðu aö greiða Rehn atkvæöi sitt en 47 prósept Athisaari. Hann haföi þá saxað nokkuð á for- skot Rehn. Skekkjumörk könnunar- innar em þrjú prósent á hvom veg. Á sama tíma leiddi könnunin í ljós að 24 prósent landsmanna vora ekki búnir aö gera upp hug sinn. Hinir óákveðnu geta því haft afgerandi áhrif á úrshtin á sunnudag. Eftir fyrri umferðina fór kosninga- barátta þeirra Rehn og Tahisaaris Elísabet Rehn, forsetaframbjóðandi f Finnlandi. Sfmamynd Reuter rólega og huggulega af stað. Munur- inn á stefnu þeirra virtist ekki mikill þar sem bæði töluðu um manngildi og umburðarlyndi. En smám saman fór að færast meira fjör í leikinn. Ahtisaari hefur að undanförnu verið harður í gagn- rýni sinni á Rehn. Hann hefur reynt sitt ýtrasta til að eyðileggja þá mynd sem hún hefur gefið af sér sem tals- maður hinna mannlegu gilda. Hann hefur reynt að benda á muninn á stefnuskrá hennar þar sem mann- gildisstefnan og umburðarlyndiö era sett á oddinn og stefnu þeirri sem stjómin sem hún situr í hefur fram- fylgt. Á laugardag viðurkenndi Rehn aö hluti gagnrýninnar að minnsta kosti væri réttlætanlegur. Ríkis- stjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki getað haft hemil á aukn- ingu atvinnuleysisins og í framboðs- ræðu í Lahtis sagði Rehn að sú gagn- rýni væri réttmæt. FNB DanQuayleætl- araðauglýsa kartöfluflögur Dan Quale, varaforseti Bandaríkj- anna, ætlar aö koma fram í auglýsingu um kartöfluflögur á úrslitakeppn- inni í ruðningi. Quayle varö ein- mitt þekktur fyrir aö stafa kart- afla (potato) rangt fyrir framan alþjóö fyrir forsetakosningaraar áriö 1992. Ágóðanum af auglýsingunni, sem verður um 60 sekúndur að lengd, verður variö til líknar- mála. Handtekinnfyrir morðáBreta íBosníu Danska utanríkisráðuneytið rannsakar nú hvemig maöur meö danskt vegabréf var hand- tekinn í misgrípum fyrir aöild aö morðinu á breska hjálparstarfs- manninum sem framið var í síö- ustu viku. Sagt var frá því í bænum Zenica í mið Bosníu að lögreglan væri búin að handtaka nokkra aðila fyrir morðið. Þar af væru þrír útlendingar með evrópska passa, frá Bretlandi, Frakklandi og Dan- mörku. Síðar hafi komiö í ljós að sá með danska passann haföi ver- iö handtekinn í núsgripum. Héltaðfiðlu- Heimilislaus maður í Kanada sá mami með fiölu koma út úr hóteli á dögunum og spurði manninn i sakleysi sínu hvaöa götuhorni hann væri á Jeiðinni aö spila á. Fólk varö undrandi á framferöi mannsins því hér var sko enginn götuspilari á ferðínni heldur hinn heimsþekkti ísra- elski fiðlusnillingur Pinchas Zuk- erman. Zukerman tók þessu samt létt og ákvaö að bjóða manninum á fiðlukonsert sem hann átti að halda þá um kvöldiö. Heimilislausi maðurinn haföi heppnina heldur betur með sér þetta kvöld því hann fékk sæti á fremsta bekk og fékk meira að segja að heimsækja Zukerman baksviðs aö loknum konsert. Að því loknu gaf Zukerman honum gómsætan kjúkhng í svanginn. Askar Akajev leiðtoginn Askar Akajev, forseti Kýrgýzstan, er talinn lýðræð- islegasti leiö- toginn af fyrr- um Sovétríkj- unum í Miö- Asiu. shbhbmí Ólíkt öðrum ieiðtogum á þessum slóöum var Akajev aidrei einn af frammámönnum sovéska Kommúnistaflokksins. Hann er talinn ólíkur öðrum leiðtogum og á blaðamannafundi fyrir skömmu talaði hann t.d. um konur, ljóð og fjöll og fleira í þeim dúr. Akajev hefur leytt andstöðu- flokka í landinu. Hann hefur einnig leyft Ijáningarfrelsi og dagblöð þar í landi birta t.d. gjaraan skrípamyndir af honum. Akajev, sem var áður stærð- fræðikennari, er giftur og á fjögur böra. Reuter, Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.