Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1994, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRtJAR 1994
Menning
Menningarverðlaun DV:
Yf ir eitt hundrað listamenn
hafa verið verðlaunaðir
Menningarverölaun DV hafa skaj)-
að sér fastan sess í menningarlífi Is-
lendinga og eru orðin langlífari en
önnur sambærileg verðlaun hér á
landi, hafa verið afhent fimmtán
sinnum. Listamennirnir úr hinum
ýmsu listgreinum, sem hafa verið
verðlaunaðir, eru orðnir meira en
eitt hundrað talsins.
Frá upphafi hefur Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræöingur haft umsjón
með Menningarverðlaunum DV
ásamt starfsmönnum blaðsins. Hann
sagði meðal annars um menningar-
verðlaunin yfir borðhaldi við af-
hendingu verðlaunanna í fyrra:
„Þetta eru ekki vinsældakosningar
heldur tilraunir til hlutlægs mats á
menningarlegu ástandi hverju sinni.
Þetta mat hefur tekist framar öllum
vonum eins og sést á því að við erum
enn að meðan allar aðrar viðurkenn-
ingar hafa dottið upp fyrir.“
Verðlaunin hafa alltaf verið afhent
í veislusalnum Þingholti á Hótel
Holti og svo verður einnig nú og er
ávallt boðið upp á frumlegan og
áhugaverðan hádegisverð sem lista-
kokkar hótelsins framleiða af mikl-
um metnaði. í fyrra var boðið upp á
skötukjaft og svartháf. Þessa dagana
er verið að huga að matseðli þar sem
fiskréttir verða eins og áður í háveg-
um hafðir.
Verðlaunahafar í fyrra
Eins og áður segir eru verðlaunahaf-
ar komnir á annað hundraðið. í fyrra
voru það átta listamenn í sjö list-
greinum sem voru verðlaunaðir fyrir
frábæran árangur.
Ólafur Haukur Símonarson rithöf-
undur fékk menningarverðlaun í
leiklist fyrir leikrit sitt Hafið sem
sýnt var í Þjóðleikhúsinu.
Pétur Arason hlaut menningar-
verðlaun í myndlist. Pétur rekur
listagalleríið Önnur hæðin og hefur
hann unnið óeigingjamt starf við að
kynna íslendingum verk eftir marga
þekktustu myndlistarmenn vorra
tíma og greiða fyrir sýningum ís-
Linda Vilhjálmsdóttir fékk Menning-
arverðlaun DV í bókmenntum í fyrra.
Verðlaunagripurinn sem hún heldur
á var gerður af Svöfu Einarsdóttur
glerlistarmanni.
lenskra listamanna víða um lönd.
Petri Sakari fékk tónlistarverð-
launin í fyrra en undir hans stjóm
tók Sinfóniuhljómsveit íslands stór-
stígum framforum þau fjögur ár sem
hann sat við stjómvölinn.
Snorri Þórisson kvikmyndatöku-
maður hlaut verðlaunin í flokki
kvikmynda fyrir kvikmyndatöku
sína á Svo á jörðu sem á himni.
Margrét Harðardóttir og Steve
Christer fengu verðlaun í arkitektúr
fyrir Ráðhús Reykjavíkur.
Linda Vilhjálmsdóttir fékk verð-
laun í bókmenntum fyrir ljóðabók
sína, Klakaböm.
Kolbrún Björgólfsdóttir, eða Kogga
eins og hún gjaman kallar sig, hlaut
síðan menningarverðlaun í Usthönn-
un fyrir framúskarandi listræna leir-
muni.
Þess má geta að tveir af verðlauna-
höfunum í fyrra sitja nú í dómnefnd,
Kolbrún Björgólfsdóttir og Steve
Christer.
-HK
Sýningin ísland viö aldahvörf:
Áhorfendur skynji breytingar
og framfarir í upphafi aldar
ísland við aldahvörf er sýning sem
opnuð verður í Ráðhúsi Reykjavíkur
í dag. Markar þessi sýning upphaf
hátíðarhalda í tilefni af 50 ára af-
mæli lýðveldisins íslands sem lýð-
veldishátíðarnefnd Reykjavíkur hef-
ur skipulagt. Það er Ljósmyndasafn
Reykjavíkurborgar sem hefur ann-
ast undirbúning, skipulag og upp-
setningu sýningarinnar. Markmiðið
er þríþætt. Sýningin á að vekja at-
hygli á einum merkisdegi í sögu þjóö-
arinnar, 1. febrúar 1904, en þá tók
Hannes Hafstein við embætti, fyrsti
ráðherra íslands með aðsetri á ís-
landi. Þar með flutti æðsta fram-
kvæmdavaldiö í málefnum íslands
til Reykjavíkur. í öðru lagi verður
sýnt hvernig hugsjónir Hannesar
Hafsteins í ljóðinu Aldamótin hafa
ræst og hvaða árangur lögeggjan
Einars Benediktssonar í íslandsljóð-
um hefur borið. Loks er sýningunni
ætlað að fá áhorfendur til að skynja
þá miklu breytingu og framfarir sem
urðu á íslandi við upphaf 20. aldar.
í tilefni opnunarinnar verður dag-
skrá þar sem Markús Örn Antonsson
borgarstjóri mun flytja ávarp sem
hann kallar Úr höfuðstað í höfuð-
borg, Davíð Oddsson forsætisráð-
^ herra minnist Hannesar Hafsteins,
fyrsta forvera síns í embætti, sungin
verða ættjarðarljóð og fluttur verður
Unnið að uppsetningu sýningarinnar ísland við aldahvörf.
leikþátturinn Fyrsti ráðherrann eftir deilur hafa spunnist undanfama
Indriða G. Þorsteinsson en miklar daga í sambandi við úthlutun verks-
ins til rithöfunda, tveir voru kallaðir
til, öðrum hafnað. -HK
Gauragangur framundan 1 Þjoðleikhusinu:
Leikarar í hljóðveri
Æfingar standa nú yfir í Þjóðleik-
húsinu á nýju íslensku leikriti með
söngvum, Gauragangi eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Tónlistin er sam-
in af meðlimum hljómsveitarinnar
>*■ Nýdanskrar sem taka þátt í sýning-
unni og sjá um undirleik. Þessa dag-
ana er einnig verið að taka lögin upp
á hljómplötu og er áætlað að geisla-
plata með þeim komi út 11. febrúar,
sama dag og frumsýningin verður.
Ólafur Haukur byggir leikritið
Gauragang á samnefndri unglinga-
skáldsögu sinni sem kom út fyrir
fimm árum og fékk góða dóma. Sag-
an gerist í Reykjavík okkar daga og
segir frá ástum, átökum, sorgum og
gleði Reykjavíkuræskunnar og sam-
skiptum hennár við eldri kynslóðina.
Með helstu hlutverk fara Ingvar E.
Sigurðsson, Sigurður Siguijónsson,
Ólafia Hrönn Jónsdóttir og Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir en hátt á þriðja
tug leikara og söngvara tekur þátt í
sýningunni,_ ásamt hljómsveitinni
Nýdanskri. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson.
-HK
Leikarar í Gauragangi viö upptökur á tónlistinni í Stúdíó Sýrlandi.
Graffíká
Um þessar mundir standa yfir
sýningar á Mávinum eftir Tsjék-
hofí Þjóðleikhúsinu. Sá sem gerir
leikmynd og búninga er litháiski
myndlistarmaðurinn Vytautas
Narbutas sem bæði starfar sem
Sjálfstæður myndlistarmaður og
er leikmyndatoiknari Litla leik-
hússíns í Vilníus. Meðan á dvöl
hans stóö hér á landi vann hann
nokkur grafíkverk sem nú hefur
verið komið fyrir á sýningu á
leikhúslofti Þjóðleiklrússins
ásamt fleiri verkum eftir hann.
Auk þess hefur verið komið fyrir
búningateikningum hans í Leík-
húskjallaranum.
Benjantíndúfa
áþýsku
Vaka-Ilelgafell hefur nú gengið
frá samningum við þýskt bóka-
forlag um útgáfu á verðlaunasög-
unni Benjamín dúfa á þýsku og
er stefnt að þvi að bókin komi út
á næsta ári. Útgáfan á Benjaraín
dúfu í Þýskalandi er enn ein
skrautfjöðrin í hatt Friðriks Erl-
ingssonar, höfundar bókarinnar,
en bókin liefur fengið ijölda við-
urkenninga og verðlauna. Hún
hlaut íslensku bamabókaverð-
launin 1992, barnabókaverðlaun
Skólamálaráðs Reykjavíkur ári
seinna og sama ár viðurkenningu
frá Barnabókaráði íslands. Þá
má geta þess að fyrir stuttu hlaut
kvikmyndahandrit Friðriks eftir
bókinni næsthæsta styi'kinn úr
Kvikmyndasjóði íslands og verð-
ur byrjað að kvikmynda í sumar.
Áður hafði handritið hlotiö stvrk
frá The European Script Found
en 550 aðilar sóttu um styrk í
þennan sjóð en 55 var úthlutað.
stríðsáranna
Stefnurog
hugmyndaffræði
í febrúar og mars verður fyrir-
lestraröð að Kjarvalsstöðum sem
ber heitið Listasaga eftirstríösár-
anna - stefnur og hugmynda-
fræði. Skiptast þessir fyrirlestrar
í tvo hluta og nefnist fyrri hlutinn
Byggingarlist, samtals fjórir fyr-
irlestrar sem Pétur H. Armamis-
son, arkitekt og arkitektúrfræð-
ingur, flytur. Seinni lrlutinn nefn-
ist Myndlist og er það Gunnar
Kvaran, listfræðingur og for-
stööumaður Kjarvalsstaða, sem
heldur þá fyrirlestraröð í mars.
Fyrirlestrarnir eru á vegum
Listasafns Reykjavíkm' og End-
urmenntunarstofnunar HI og eru
á miövikudögum. Fyrsti fyrirlest-
urinn er annað kvöld og hefst
hann kl. 20.00.
Röðtónlelka
í hádeginu
Röð af tónleikum verður í há-
deginu í Norræna húsinu næstu
þrjá mánuði. Er tónleikaröð þessi
á vegum Háskóla íslands og eru
fyrstu tónleikarnir á morgun. Þá
munu Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, GuönýGuðmundsdóttirog
Sigurður I. Snorrason leika verk
eftir Milhaud og Stravinsky.
Þrennir aðrir tónleikar verða í
febrúar, Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran, og Kristinn Örn Kristins-
son píanóleikari flytja lagaflokk
eftir Roger Quilter og sönglög úr
ýmsum áttum á tónleikum 9. fe-
brúar, Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son píanóleikari verður með ein-
ieikstónleika 16. febrúar og 23.
febrúar verða djasstónleikar þar
sem feögamir Arni Scheving og
Einar Valur Scheving leika ásamt
Þórarni Ólafssyni og Þórði
Högnasyní. í mars verða síðan
þrennirtónleikarog einirí apríl.