Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1994, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
25
Sviðsljós
í kvikmyndinni Intersection leikur Lolita Davidovich blaðamann sem Richard Gere fellur fyrir en eiginkonuna
leikur Sharon Stone.
Trnir ekki
á frægðina
Leikkonan Lolita Davidovich fær
hrúgu af aðdáendabréfum, blaða-
menn sækjast eftir því að fá hana
í viðtöl og hún hefur ekki veriö
atvinnulaus í Hollywood í langan
tíma og hefur jafnvel fengið hlut-
verk án þess að sækja sérstaklega
um þau. Samt segist hún ekki telja
sjálfa sig fræga manneskju. Að
hennar mati er frægðin eitthvað
sem kemur eftir að maður deyr.
Ástæðan fyrir sérkennilegu nafni
hennar er að hún er dóttir serb-
neskra innflytjenda sem settust að
í Kanada. Hún íhugaði að sækja
um í kanadísku fjallalögreglunni
en ákvað þess í stað að snúa sér
að leiklistinni.
Hún hefur leikiö í myndum á
borö við The Object of Beauty, The
Inner Circle, Raising Cain og Leap
of Faith, en stóra hlutverkið henn-
ar er í myndinni Intersection sem
var frumsýnd fyrir stuttu. Þar leik-
ur hún blaðamann sem fellur fyrir
Lolita Davidovich er 32 ára og
„heitasta" kynbomban i Hollywood
í dag.
arkitekt sem leikinn er af Richard
Gere og leiðist út í ástarsamband
við hann þó svo að hann sé giftur
(Sharon Stone leikur eiginkonuna).
Það vakti töluverða athygh að
Sharon Stone var boðið að velja á
milli hlutverka eiginkonunnar og
hjákonunnar. Hún valdi eiginkon-
una þar sem henni fannst tími til
að hleypa einhverri annarri í
kynbombuhlutverkið sem hún hef-
ur verið fost í.
Leikstjóri Intersection er Mark
Rydell sá sami og leikstýrði óskars-
verðlaunamyndinni On Golden
Pond. Hann er mjög ánægður með
frammistöðu Lolitu og segir að
frami hennar eigi eftir að taka stórt
stökk í framhaldi af myndinni og
hér eftir sé hún í flokki kvikmynda-
stjamanna. Það eru því allar líkur
á að Lolita þurfi að venjast því að
fá bunka af aðdáendabréfum í
framtíðinni og að teljast fræg per-
sóna.
Tilkyimingar
Vinalína Rauða
kross íslands
er tveggja ára um þessar mundir. Vina-
lína er símaþjónusta fólks átján ára og
eldra þar sem fyllstu nafnleyndar er
gætt og er hún opin á hverju kvöldi kl.
20-23. Til Vinalínunnar hringir fólk sem
á viö vandamál að stríða og eins þéir sem
eru einmana og viija spjalla. Sími Vina-
línunnar er 616464 og grænt númer fyrir
landsbyggðina 996464.
Félag Eskfirðinga
og Reyðfirðinga
heldur árshátíð laugardaginn 5. febrúar
í Goðheimum, Sigtúni 3. Samkoman hefst
með borðhaldi kl. 20. Húsið opnað kl.
19.30.
Opið hús hjá Ferða-
félagi íslands
Opið hús í Mörkinni 6 (risi) í kvöld kl.
20.30. Jón Viðar Sigurðsson mætir og
■ spjallar um Esjuna í tilefni Esjugöngu-
ársins 1994. Allir velkomnir, félagar sem
aðrir. Heitt á könnunni. Nýja ferðaáætl-
unin liggur frammi.
Félag eldri borg-
ara Kópavogi
Spilaður verður tvímenningur að Fann-
borg 8 (Gjábakka) kl. 19 í kvöld.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágr.
Lögfraeðingur félagsins er til viðtals á
fimmtudag. Panta þarf tíma í síma 28812.
Dansað undir stjóm Sigvalda í Risinu kl.
20 í kvöld. Leikritið Margt býr í þokunni
sýnt miðvikudag kl. 16. Fáar sýningar
eftir.
Tapað fimdið
Seðlaveski tapaðist
Seðlaveski tapaðist í versluninni 10-10 í
Hraunbæ sl. föstudagskvöld. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 674275.
Safnaðarstarf
RAUTT LJÓS
RAUTT LJOSí
||ujrEn»
\
✓
Breiðholtskirkja: Starf fyrir 10-12 ára
böm (TTT) í dag kl. 16.30. Bænaguðsþjón-
usta í dag kl. 18.30. Fyrirbænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Fella- og Hólakirkja: Foreldramorgimn
miðvikudag kl. 10-12.
Hjallakirkja: Mömmumorgnar á mið-
víkudögum frá kl. 10-12.
Kársnessókn: Samvera æskulýðsfélags-
ins þriðjudagskvöld kl. 20-22 í safnaðar-
heimilinu Borgum.
Keflavíkurkirkja: Foreldramorgnar em
kl. 10-12 og umræðufundir um safnaðar-
eflingu kl. 18-19.30 í Kirkjulundi á mið-
vikudögum. Kyrrðar- og bænastundir
em í kirkjunni á fimmtudögum kl. 17.30.
LEIKfLfSTAKSKÓLI ÍÍLANÓS
Nemenda
leikhúsið
í Leikhúsi frú Emilíu
Héðinshúsinu, Seljavegi 2
KONUR OG STRÍÐ
Flmtud. 3. tebr., laugard. 5. febr., örtáar
sýnlngar eftlr.
Ath.: Takmarkaöur sýnlngafjöldl!
Símsvari allan sólarhrlnglnn, siml 12233.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið kl. 20.
EVA LUNA
. Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og
Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa-
belAllende
Flm. 3. febr., uppselt, fös. 4. febr., uppselt,
sun. 6. febr., uppselt, fim. 10. febr., fáein
sæti laus, iau. 12. febr., örfá sæti laus,
sun. 13. febr., fáein sæti laus, fim. 17.
febr., fös. 18. febr., uppselt, lau. 19. febr.,
uppselt, sund. 20. febr., flm. 24. febr., upp-
selt, lau. 26. febr., uppselt.
Gelsladiskur meö lögunum úr Evu Lunu til
sölu i miðasölu. Ath.: 2 mlöar og gelsla-
diskur aðeins kr. 5.000.
Stóra sviðið kl. 20.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
5. febr., næstsiðasta sýnlng, fáeln sæti
laus, 11. febr., siðasta sýning.
Stóra sviðið kl. 14.
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Aukasýnlng sun. 6. febr., allra slðasta sýn-
Ing.
Litla sviðið kl. 20.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
Föstud. 4. febr., lau. 5. febr., fös. 11. febr.,
laug. 12. febr. fáar sýnlngar eftlr.
Sýnlngum fer fækkandl.
Ath.l Ekki er hægt að hleypa gestum Inn i
salinn eftir að sýnlng er hafln.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum i sima 680680 kl.
10-12 alla virkadaga.
Bréfasími 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Fim. 3. febr., nokkur sætl laus, lau. 5.
febr., uppselt, lau. 12. febr.
Sýnlngln er ekki viö hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum I sallnn
eftir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.00.
SEIÐUR SKUGGANNA
eftir Lars Norén
Fös. 4. febr., lau. 5. febr., fim. 10. febr.,
lau. 12. febr.
Ekkl er unnt aö hleypa gestum i salinn
eftir að sýning er hafin.
Stóra sviðið kl. 20.00.
MÁVURINN
eftir Anton Tsjékhof
Fös. 4. febr., sun. 13. febr.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir ArthurMiller
Fim. 3. febr., örfá sætl laus, lau. 5. febr.,
lau. 12. febr.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Sun. 6. febr. kl. 14.00, örfá sæti laus,
sun. 6. febr. kl. 17.00, sun. 13. febr. kl.
14.00, nokkur sæti laus, þrl. 15. febr. kl.
17.00, nokkur sætl laus, sud. 20. febr. kl.
14.00.
Miðasala Þjóðlelkhússlns er opln alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram aö sýnlngu sýnlngardaga. Teklð
á móti simapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna Iínan9961 60.
Leikfélag Akureyrar
mww
\tou/
. ...MaKasaga....
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sig-
urgeirsson og Þorgeir Tryggvason
Föstudag 4. febrúar kl. 20.30.
Laugardag 5. febrúar kl. 20.30.
SÝNINGUM LÝKUR í FEBRÚAR!
Iwftr
eftirJim Cartwright
SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
Föstudag 4. febrúar kl. 20.30., uppselt.
Laugardag 5. febrúar kl. 20.30.
Ath. Ekki er unnt aö hleypa gestum I
sallnn eftlr að sýnlng er hafln.
Aðalmiðasalan í Samkomuhúsinu er
opin alla virka nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073.
Simsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutima.
Ósóttar pantanlr að BarPari seldar i
miðasölunni í Þorplnu frá kl. 19 sýn-
ingardaga. Simi 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
Bæjarleikhúsiö
Mosfellsbæ
LEIKTÉLAG
MOSFELLSSVEITAR
sýmr GAMAnLEminn
í Bæjarleikhusinu, Mosfellsbæ
Kjötfarsi með einum sálmi
eftir JónSL Kristjánsson.
Flm. 3. febr. kl. 20.30. Fös. 4. febr.
kl. 20.30. Lau. 5 lebr. kl. 20.30, nokk-
ur sæti laus. Sun. 6. febr. kl. 20.30.
Ath.t Ekkl er unnt að hteyps gestum
I sallnn eftlr að sýntng er hafln,
Miðapantanir kl. 18-20 alla daga
isima 667788
og á öðrum timum i 667788, simsvara.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iiiii
É VGENl ÓNEGÍN
eftir Pjotr I. T sjajkovski
Texti eftir Púshkín í þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Sýning laugardaginn 5. febr. kl. 20,
næstsiðasta slnn, laugardaginn 12.
febr., kl. 20, siðasta slnn.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega.
Sýningardaga til kl. 20.
SÍMI11475-
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
Munið gjafakortin okkar.