Dagur - 12.02.1943, Page 5

Dagur - 12.02.1943, Page 5
Ingimar Eydal: Dagur 25 ára Nokkrir þættir úr sögu blaðsins Ingimar Eydal. FYRSTU ÁRIN. í dag er blaðið Dagur tuttugu og fimm ára gamalt. Nákvæmlega fjórðungur úr öld er lið- inn, síðan 1. tölublað 1. árgangs þess kom út, 12. febrúar 1918. Þetta var síðasta ár heimsstyrjaldar hinnar fyrri. Fréttir af stríðinu bárust þá ekki með sama hraða og nú út meðal þjóðarinnar, því að útvarpið kom ekki til sögunnar fyrr en löngu síðar eins og kunnugt er. Almenningur varð því að láta sér lynda frásagnir blaðanna um gang ófriðarins og horfur hans. Flestir íslendingar báru þá von í brjósti, að Bandamenn sigruðu Miðveldin, enda varð sú raunin á, þó að sigurvissan feng- ist ekki fyrr en undir stríðslokin, seint á árinu 1918. í janúarmánuði 1918 gerði óvenju- miklar frosthörkur, er stóðu yfir um þriggja vikna tíma. Barnaskóla Akureyr- ar var lokað þann tíma vegna kolaskorts í bænum. Er þess getið í fréttum 1. tölu- blaðs, að Akureyrarbær hafi verið í kola- hraki um þær mundir, sem erfitt hafi reynzt úr að bæta, en þó hafi tekizt að útvega bænum 70—80 smálestir af þess- ari vöru, sem fengizt hafi í útgerðarstöð hér í nágrenninu. Ennfremur er frá því skýrt í sama blaði, að kvenfélagið „Fram- tíðin“ sé að setja á stofn eldhús í bama- skóla bæjarins í því skyni að gefa fátækl- ingum miðdegisverð. Ber þetta með sér, að talsverð brögð hafi verið að bjargar- skorti í bænum um þessar mundir. Á undan þessum tíma höfðu íslending- ar skipast í stjórnmálaflokka eftir afstöðu þeirra til deilumála við Dani út af sam- bandsmálinu og stjórnarskrármálinu. Þegar hér var komið sögu, hafði breyting orðið í þessum efnum. Gömlu deilumál- in voru að falla úr sögunni, og þó að gömlu flokkanöfnin væru enn við líði, voru þau lítið annað en dauður bókstaf- ur, er sáralitla þýðingu höfðu fyrir stjórn- málalífið í landinu. Framsóknarflokkur- inn var nýlega risinn á legg og hafði sett sér það markmið að beina hugum manna og áhuga að innanlandsmálum, er áður höfðu horfið í baksýn gömlu deilumál- anna út á við. Helzta dægurmálið, er uppi var um þessar mundir, og öðrum málum fremur var orðið að þungamiðju í ræðu og riti, var verzlunarmálið. Um það leyti, er Dagur hóf göngu sína, var það að verulegu leyti orðinn grundvöllur nýrrar flokkaskipunar í landinu. Að nokkru var það styrjöldin mikla, er þessu olli. í stríðsbyrjun hækkuðu flestallir ís- lenzkir kaupmenn fyrirliggjandi vöru- birgðir sínar í skjóli hækkandi vöruverðs á erlendum markaði. Mæltist þetta mis- jafnlega fyrir. Þegar á stríðið leið, þótti það og koma í ljós, að kaupmenn skorti skip og framsýni til að birgja landið af nauðsynjavörum. Varð þetta til þess, að þing og stjórn afréð að hefja landsverzl- un, ekki í þeim tilgangi að keppa við kaupmenn, heldur til þess að bjarga þjóðinni frá neyð. Fór þessi verzlun sí- vaxandi. Kaupmönnum þótti að með þessu tiltæki væri milliliðagróði dreginn úr höndum sér og heimtuðu, að þing og stjórn hætti þessum bjargráðum. Kaupmenn höfuðstaðarins og þeirra fylgifiskar stefndu að Jdví leynt og ljóst að fella landsstjórnina og fá nýjar kosn- ingar í von um að ná yfirtökum í f jármál- um landsins. Þannig skiptist landslýður- inn í tvær fylkingar. Annars vegar voru flestir kaupmenn og þeirra fylgilið í skoðunum, sem vildi landsverzlunina feiga og var auk þess í nöp við samvinnu- stefnuna; hins vegar voru þeir, er töldu landsverzlunina þjóðarnauðsyn og fjör- egg landsins, meðan á stríðinu stæði, og þeir sem fylgdu samvinnustefnunni. Þessar tvær ólíku hugarstefnur, sem þá voru uppi og hér hefir nokkuð verið að vikið, settu síðan meira og minna mót sitt á meðferð og framkvæmdir flestra mála á þessum tímum, þó að þau heyrðu ekki beint undir verzlunarmálið, svo sem dýrtíðarráðstafanir og margt fleira. Það atvikaðist nú svo, að flest blöðin í landinu hneigðust til fylgis við kaup- mannastefnuna. Þar á meðal voru bæði Akureyrarblöðin, er þá voru gefin hér út, Norðurland og íslendingur. Tíminn, sem þá var fyrir nokkru stofn- aður af Framsóknarmönnum, eða bænda- samtökum þeim, er varð grundvöllur undir myndun Framsóknarflokksins, fylgdi stjórninni að málum, hélt fast fram þörfinni á landsverzlun og var ör- uggt stuðningsblað samvinnustefnunnar. í frosthörkum þeim í janúarmánuði 1918, er fyrr var getið, var Jónas Jónsson, núverandi formaður Framsóknarflokks- ins, á ferðalagi um Austur- og Norður- land. Var sú för hans gerð á vegum ung- mennafélaganna, að mig minnir. í för þessari dvaldi J. J. hér á Akureyri í nokkra daga. Færði hann þá í tal við mig, hvílík vandræði það væru fyrir Framsóknar- og samvinnumenn í Norð- lendingafjórðungi að hafa ekkert mál- gagn fyrir sig og sín sjónarmið að bera hvað sem á dyndi. Stakk hann upp á að gerð væri tilraun til úrbóta í þessu efni, jafnvel þó að í mjög smáum stíl væri. Leitaðist hann fyrir um það, hvort ég mundi fáanlegur til að takast á hendur ritstjórn slíks málgagns, ef til kæmi. Tók ég ekki illa í þetta, ef samkomulag næð- ist um að trúa mér fyrir blaðinu meðal væntanlegra aðstandenda þess. Var nú

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.