Dagur - 12.02.1943, Síða 10
6
DAGUR 25 ÁRA
stórum erfiðara um sókn og vörn á þeim
vettvangi, ef Dagur hefði ekki tekið öfl-
ugan þátt í kosningabaráttunni.
Á Akureyri hafa Framsóknarmenn
einu sinni ráðið úrslitum í alþingiskosn-
ingum með stuðningi Dags. Það var
sumarið 1927, þegar Erlingur Friðjóns-
náði kosningu. Á síðari árum hafa Fram-
sóknarmenn haft sinn eiginn frambjóð-
anda í kjöri í bænum við sívaxandi fylgi,
og hefir stefna Framsóknarflokksins unn-
ið þar svo mikið á, að Akureyri skarar
langt fram úr öllum öðrum kaupstöðum
landsins í því efni og skýtur Reykjavík
óravegu aftur fyrir sig, þegar miðað er
við fólksfjölda. Skortir nú aðeins herzlu-
muninn, að Framsóknarmenn vinni kjör-
dæmið. Mun enginn efast um, að Dagur
eigi sinn þátt í þessu stóraukna fylgi.
Að sjálfsögðu viðurkenna andstæðing-
arnir ekki, að Dagur hafi unnið þjóðnýti-
legt verk með því að styðja Framsóknar-
flokkinn. En dómur þeirra um það efni
verður ekki talinn óhlutdrægur. í öllum
lýðfrjálsum löndum skapa stjórnmálin
pólitíska flokka, af því að þar hafa ein-
staklingarnir frelsi til félagslegra sam-
taka. Til eru þeir íslendingar, sem bann-
syngja flokkana og deilur þeirra og óska
þeim öllum norður og niður. Það er
hægt að afnema stjórnmálaflokkana, en
til þess er aðeins ein leið: vegur einveld-
isins. Þessi leið hefir verið farin meðal
einstakra þjóða. En óska menn virkilega
eftir einvaldsástandi hér á íslandi? Þráir
nokkur maður það að verða sviftur hugs-
anafrelsi, málfrelsi og ritfrelsi, og að
þessar tegundir af frelsi einstaklinganna
verði allar steyptar í einu og sama móti
samkvæmt vilja og fyrirskipun einvald-
ans? Á þennan hátt gætum við kannske
hlotið einhverskonar flatsængurfrið, en
þann frið yrði að kaupa því verði, að öll
frjáls hugsun og andlegur þroski þegna
þjóðfélagsins yrði að leggjast til svefns i
hýði sínu. Þá kýs ég heldur flokkana og
flokkarifrildið, þó að þreytandi geti það
orðið. Hitt er svo allt annað mál, að sam-
býlisháttum stjórnmálaflokkanna er oft
ábótavant, og baráttuaðferðir leiðtog-
anna snúast stundum upp í ófagra leiki
og mættu gjarna taka stakkaskiptum til
bóta. Deilur stjórnmálaflokkanna eiga
vitanlega ekki að snúast upp í heiftugan,
persónulegan fjandskap, sem getur eitrað
andrúmsloft þjóðarinnar. Þá fyrst eru
stjórnmáladeilurnar orðnar siðspillandi,
ef deiluaðilar hafa ástæðu til að taka
undir þessi orð skáldsins: „Kalinn á
hjarta þaðan slapp eg.“
Við skulum þess vegna deila hæfilega,
jafnvel deila hart, þegar því er að skipta,
en varast að „sólin gangi undir yfir okkar
reiði.“
í þessu sambandi má það aldrei gleym-
ast, að Framsóknarflokkurinn er milli-
flokkur að því leyti, að stefna hans í
þjóðmálum er mitt á milli tveggja öfga
til hægri og vinstri handar. Það er því m.
a. hlutverk hans að deyfa eggjarnar til
beggja handa og halda á þann hátt stjórn-
málalegu jafnvægi í landinu. Þetta hefir
flokknum oft tekizt með því að hafa sam-
starf til beggja hliða eftir málavöxtum í
það og það skiptið. Það gefur að skilja,
að nyti slíks milliflokks ekki við, myndi
ófriðarbálið magnast milli hinna tveggja
andstæðu stjórnmálapóla. Þó að ekki
væri nema vegna þessa eins, er þess brýn
þörf, að Framsóknarflokkurinn standi
föstum fótum, lifi og þróist og verði sem
áhrifamestur. Þess vegna telur Dagur það
hlutverk sitt að starfa í þjónustu Fram-
sóknarflokksins og með því auka og efla
gróðurinn í íslenzku þjóðlífi á öllum
sviðum þess.
„Gamalla blóman angan!“
Umvötn . Hárvötn
Vinsælar og hentugar gjafir.
Verð við flestra hæfi.
Fást í smásölu í fjölmörgum verzlunum.
Einkasala til verzlana og rakara
hjá
Afengisverzlun píkisins