Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 12
8
BAGUR 25 ARA
ströngu siðareglu Stephans G., án þess
að prenta hana sem einkunnarorð á
hverju tölublaði. Dagur hefir alltaf hald-
ið trausti og tiltrú, með því að bregðast
aldrei réttum málstað.
Þegar Dagur var stofnaður, voru línu-
skil í íslenzkri sögu. Samvinnumenn
höfðu myndað landsmálaflokk. Sigurður
í Yztafelli var orðinn ráðherra með valdi
yfir atvinnu- og bankamálum. Hallgrím-
ur Kristinsson var að stofnsetja heildsölu
Sambandsins í Reykjavík. Samhliða því
var komið á hinni miklu landsverzlun
stríðsáranna undir forustu Hallgríms
Kristinssonar og Magnúsar Kristjánsson-
ar. Upp úr landsverzlun þeirra tíma
spruttu ný kaupfélög í þrem fjórðungum
landsins. Þau gengu öll í Sambandið og
neyttu forsjón Hallgríms Kristinssonar.
Eftir stutta stund var fullskapað mesta
og þjóðnýtasta verzlunarfyrirtæki sem
nokkurn tíma liefir starfað á íslandi.
Kaupfélögin og Sambandið unnu að
því að auka vöruvöndun í landinu,
skipuleggja verzlunina og síðan að stofn-
setja hin þýðingarmiklu iðnfyrirtæki sín.
Jafnhliða því treystu samvinnumenn hin
pólitísku samtök sín, studdu samvinnu-
hreyfinguna hvar sem á reyndi og þáðu
óbeinan stuðning hennar. En þar fyrir
utan tók flokkur samvinnumanna á
stefnuskrá sína alhliða viðreisn þjóðar-
innar, pólitíska, andlega og efnalega.
Framsóknarflokkurinn og blöð lians
hafa haft svo mikla þýðingu sem raun
ber vitni um, af því að þau hafa leitað
að hinum stærstu áhugamálum á hverj-
um tíma og beitt sér fyrir hinni réttlát-
ustu lausn, með sjónarmið alþýðu fyrir
augum, en ekki sérhyggju einstakra
manna.
Mér finnst vel við eiga að benda á,
hve mikla þýðingu það hefir fyrir þjóð-
ina, að halda jafnvægi milli landshluta
og atvinnugreina. Nú á dögum er það
yfirvofandi hætta í mörgum þjóðfélög-
um, að höfuðstaðurinn verður tiltölu-
lega of stór í samanburði við aðra bæi
eða borgir í landinu.
Reykjavík þarf vissulega að blómgast
sem höfuðstaður landsins, og hefir líka
gert það. En aðrir bæir þurfa að vaxa til
samræmis við höfuðstaðinn, og byggðirn-
ar að mega sín mikils gagnvart honum.
Fyrir utan hina miklu þýðingu Dags í
samvinnu- og atvinnumálum, hefir hann
átt sinn þátt í að gera Akureyri að höfuð-
stað Norðurlands, með nokkru jafnvægi
móti Reykjavík. Norðlendingar þurfa að
hafa sinn eigin blaðakost, eins og þeir
þurfa sinn menntaskóla, sinn berklaspít-
ala og fjórðungssjúkrahús á Akureyri.
Það er réttmæti hverrar byggðar, hvers
héraðs og hvers fjórðungs, að lifa með
nokkrum hætti sjálfstæðri tilveru innan
landsins og þjóðarheildarinnar. Dagur
Til lesendanna.
Um. leið og þetta 25 ára min?iingarrit
blaðsins kemur út, vill útgáfustjórnin
nota tœkifœrið og þakka lesendum,
kauþendum og öðrum styrktarmönnum
um land allt fyrir þá vinsemd, sem þeir
hafa sýnt blaðinu undanfarinn aldar-
fjórðung. Sömuleiðis vill hún þakka rit-
stjórum blaðsins og afgreiðslumönnumj
bœði þeim er nú starfa og hinum, sem
hættir eru störfum, fyrir öll þeirra á-
gœtu, en þvi miður oft litt launuðu störf,
sem þeir hafa unnið fyrir blaðið og
Framsóknarflokkinn.
Sérstaklega vill útgáfustjórnin þakka
Ingimar Eydal ritstjóra, hans mikla þátt.
í gengi blaðsins, en liann var fyrsti rit-
stjóri þess og hefir starfað við blaðið um
17 ára skeið.
Útgáfustjórnin hefir fullan hug á því,
að stcekka blaðið enn og búa það betur
úr garði, undir eins og tœkifœri gefst. Er
það ósk hennar, að „Dagur“ megi þá
njóta þeirra starfskrafta er hann nú hef-
ir, og að blaðið megi enn fagna vaxandi
vinsœldum og útbreiðslu meðal lands-
manna.
í útgáfustjórn ,,Dags“,
Jakob Frimannsson.
Bernliarð Stefánsson.
Guðmundur Guðlaugsson.
Hólmgeir Þorsteinsson.
Þorsteinn M. Jónsson.
Elias Tómasson.
hefir fyrir sitt leyti stutt að heilbrigðu
sjálfstæði byggðanna, héraðanna norðan-
og austanlands, og ekki sízt höfuðstaðar-
ins norðlenzka. En blaðið hefir jafnan
unnið að þessu sjálfstæði með hófsemi og
sanngirni gagnvart öðrum landshlutum,
enda má segja, að í þeim efnum sé bezt
kapp með forsjá.
Við þessi tímamót í ævi Dags, vil ég
sem einn af samvinnu- og Framsóknar-
mönnum þakka ritstjórum, útgefendum
og öllum þeim sem staðið hafa að blað-
inu, fyrir gott og heillaríkt starf, um leið
og ég óska þess, að blaðið megi vaxa með
vaxandi gengi byggðanna, héraðanna
norðan- og austanlands og sjálfs höfuð-
staðar Norðurlands. Stephan G. Step-
hansson hafði viturlegar og drengilegar
fyrirbænir við vöggu Dags. Ég óska að
blaðið megi í framtíðinni, eins og á
undangengnum árum lifa og starfa eftir
hinni einföldu en erfiðu lífsreglu Norð-
lendingsins og Klettafjallaskáldsins Step-
hans G. Stephanssonar.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar
á Akureyri
Fyrstu tvö árin var ,,Dagur“ prentaður
í Prentsmiðju Björns Jónssonar. Stjórn-
aði Þórhallur Bjarnarson prentsmiðj-
unni á þeim árum. Prentsmiðjuhúsið er
sérstæð bygging hér norðanlands, byggt
úr höggnu grjóti. Er enn starfrækt þar
prentsmiðja.
D
A
G
U
R
er stærsta og fjölbreyttasta blað-
ið, sem gefið er út hér á landi,
utan Reykjavíkur. — Áskrift
kostar aðeins 8 krónur.
Gerist áskrifendur! Styðjið öfl-
ugt blað fyrir Norðlendinga-
fjórðung.