Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 41
ÚR GÖMLUM BLÖÐUM
37
Akureyri, höfuð-
staður Norður-
lands.
Hér að framan
hefir saga bæjarins
verið rakin í stór-
um dráttum, með
gömlum myndum
af bænum og bæj-
arlífinu og tilvitn-
unum í bæjarblöð-
in, frá 1853—1943
Má það teljast
undravert hversu
miklar og örar
framfarir hafa orð-
ið hér á tiltölulega
skömmum tíma og
hversu fjölbreytt
og þróttmikið
menningarlíf hefir
dafnað hér. „Dag-
ur“ vill ljúka þess-
um pistlum með
því, að bera fram
þá ósk, að nú verði
hafizt handa með
útgáfu Akureyrar-
sögu, en drög að
henni eru til í eign
bæjarins.
<
Ur gömlum blöðum.
(Framhald af blaðsíðu 22).
þríloftað, byggt úr dökkrauðum tigui-
steini, sem brenndur er úr leirnum, sem
Eyjafjarðará hefir borið fram. Er nú
farið að nota hann í flest hús, sem hér
eru byggð. Ég ók að gamni mínu í gær
út og upp að rafmagnshúsunum, þar sem
framleitt er allt það rafmagn, sem Akur-
eyringar þurfa til hitunar, upplýsingar,
keyrslu og til skipanna, auk allra verk-
snnðja sem hér eru.
Fyrir ofan bæinn er hátt fja.ll, sem
Súlur heitir. Þar uppi á tindinum er
loftskeytastöðin á Akureyri. Rennur
lítil karfa á vírstrengjum milli pósthúss-
ins og stöðvarinnar með alla skeytamið-
ana.
Bæjarbúar eru nú rúmlega 17000. Hér
eru mjög reisuleg og fögur lnis. Eitt með
myndarlegustu húsunum er verksmiðju-
bygging „Niðursuðufélags Eyfirðinga“,
enda eru tekjur þess félags mjög miklar.
Selur það mest af vörum sínum til Mið-
jarðarhafslandahna.
Nú verð ég að slá botn í, en ef til vill
skrifa ég þér nokkrar línur einhvern
tíma seinna.
Þinn einl.
Jón Jónsson."
Er þá komið að þeim blöðum, sem
síðast hafa verið gefin út og enn eru við
líði, en það eru: Alþýðumaðurinn, Dag-
ur, Islendingur og Verkamaðurinn, allt
vikublöð.
Um Dag er skrifað á öðrum stað í
þessu riti og vísast til þess.
Islendingur byrjaði að koma út vorið
1915. Ritstjórar Sigurður Einarsson
Hlíðar og Ingimar Eydal. Var Sigurður
eigandi blaðsins. Islendingur var ein-
dregið sjálfstæðisblað. — Ingimar
liætti við ritstjórnina í árslok 1916, en
Sigurður hélt blaðinu áfram þar til um
nýár 1920; eignaðist þá Brynleifur Tobi-
asson það og gaf það út það ár og var þá
blaðið hlutlaust í pólitík. Frá riýári 1921
var blaðið selt Jóni Stefánssyni, en við
ritstjórn þess tók Jónas Jónasson frá
Flatey. í ársbyrjun 1922 tók Gunnlaugur
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi ritstjóri
Heimskringlu, við ritstjórn þess, og
hafði hann hana á hendi í samfleytt 15
ár, en síðan voru ritstjórar blaðsins um
stundarsakir Einar Ásmundsson, Konráð
Vilhjálmsson og Sigurður Hlíðar, þar til
Jakob O. Pétursson tók við ritstjórn
blaðsins 1939 og helir gegnt því starfi
síðan.
Frá eigendaskiptunum 1921 hel’ir ís-
lendingur verið málgagn þeirra manna,
er nú skipa Sjálfstæðisflokkinn (áður
íhaldsflokkinri).
Verkamaðurinn kom fyrst út í nóvem-
ber 1918 og var málgagn jafnaðarmanna;
ritstjóri þess var Halldór Friðjónsson. En
þegar klofningurinn varð í Verkamanna-
flokknum 1930, og kommúnistar skildu
sig frá, náði Einar Olgeirsson tökum á
blaðinu, og hefir það síðan verið mál-
gagn kommúnista. En Erlingur Frið-
jónsson stofnaði þá Alþýðumanninn, og
er það málgagn Alþýðuflokksins.
Norðlingur hóf göngu sína sumarið
1928 undir ritstjórn Jóns Björnssonar
rithöfundar. Kom blaðið út þrisvar í
viku. Ritstjórinn varð skammlífur, og
féll blaðið úr sögunni með honum.
Nokkrum sinnum á seinni tímum hafa
blöð þotið liér upp um kosningar, en
hafa aðeins verið dægurflugur, og er
ekki ástæða til að geta þeirra nánar.
LEIÐRÉTTING.
Prentvilla hefir orðið í kvæði Guðm. Frí-
mann á bls. 16. I 8. erindi, 7. línu, stendur:
„og sónginn um ljótasta andarungann", en á að
vera „og sögnin um ljótasta“ o. s. frv.
„DAGUR 25 ÁRA“
1918- 12. febrúar- 1943.
Afmælisblaðið' átti upphaflega að vera
fullprentað 12. febrúar, en vegna erfiðra
samgangna við hiifuðstaðinn, og af öðrum
ástæðum, liefir útkoma jtess dregizt nokkuð,
svo að útkomudagur jtess er 4. tnarz.
lílaðið kostar kr. 3,00 í lausasölu.
VikublaSið DACUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL.
JÓHANN FRÍMANN.
Fréttastjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðslum.: SIG. JÓHANNESSON.
Skrifstofa við Kaupvangstorg. — Sími 96.
Áskrift kostar 8 krónur á ári.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR