Dagur - 18.12.1954, Side 5
JÓLABLAÐDA€S
5
upp fyrir túnið. En allt í cinu missti
hann jafnvægið og stakkst á höfiiðið
og skorðaðist svo illa, að hann gat
ekki losað sig, en fæturnir stóðu
beint upp í loftið. Hfjóp þá maður
frá Sáurbæ og rétti véizlugestinn
við. Var hann illa útleikinn, því að
honum varð óglatt meðan hann lá
skorðaður, og spýjan um allt and-
litið. Eftir nokkra stund gat lrann
rölt áfram.
1884 var mikil félagshreyfing hér
í hreppnum. Framfarafélag Evfirð-
inga, er stofnað var 1875, var þá í
fullum blóma og hélt deild Saur-
bæjarhreþps sérfundi í hreppnum.
En seint á árinu 1881 var stofnað
félagið Stígandi. Skyldi það vinna
að „menntun og skemmtunum,
hagsbótum og siðbótum". Skiptist
það í l jórar deildir. Ein deildin var
Bókásafnsdeild og hél ur hún starfað
óslitið síðan, þótt nú sé breytt fyrir-
komulagi. Er því Bókasafnið 70 ára
á þessu ári. Eélagið gaf út skrifað
blað og kom 1. tbl. út 5. des. 1884.
Sunnudagaskóla liélt félagið vetur-
ínn 1884—’85. Námsgreinar voru:
skrift, reikningur, réttritun, danska
og söngur. Kennarar voru Arni
Hólm og Daníel Sigfússon. Þá var
lítið um skóla og almenna fræðslu.
Mun skóli þessi að nokkru hafa
svalað fróðleikslöngun fólksins, því
að hann var allvel sóttur. Og héima
lærðu menn. á milli skóladaganna.
F.ftir þessa kennslu gátu sumir nem-
endur lesið dönsku sér til gagns og
gamans. En sögu Stígandafél'agsins
er ekki ástæða til að rekja meira nú.
Eg verð að láta það bíða betri tíma.
Á vegum kvenfélags, er lifði hér
um skeið, var kvennaskóli eða nám-
skeið, nokkra sunnudaga veturinn
1887—'88. Kennari v*ar Rósa Jó-
hannesdóftir, er giftist Jóni Sigfús-
syni frá Gnúpufelli.
Eundir og skólar þessara félaga
voru 'haldnir á ýmsum bæjum:
Möðruvöllum, Gnúpufelli, Hleið-
argarði, Krónustöðum, Saurbæ,
Hálsi, Stóra-Dal, Miklagarði,
Hvassafelli, Æsustöðum og Mel-
gerði. Voru ]ró á sumum þessum
bæjujn mjög þröng húsakynni.
F.n langflestar samkomur og fund-
ir voru í S'aurbæ, bví að þar voru
húsakyhni stærst. Tvær stofur all-
^ Q
Arni Hólm.
stórar sín hvoru megin við stærðar
bæjardyr. Voru manntalsþing og
hreppaskilá'þing haldin í syðri stof-
unni og luin kölluð þinghús.
Fyrsti reglulegi sjónleikurinn, er
eg veit til að sýndur væri- hér í
hrepp, voru Vinirnir, eftir Tómas
á Hróarsstöðum. Þeir voru leiknir
á Möðruvöllum um sumarmál
1884. Snemma í marz cr Afturhalds-
maðurinn eftir Ara á Þverá svndur
á Öngulsstöðum og Grund. Sáu
hann menn héðan úr hreppnum, er
bundust samtökum að koma Vin-
unúrn á leiksvið. Þá bjuggu á
Möðruvöllum Magnús Olafsson frá
Guðrúnarstöðum og kona lians
Marselína Kristjánsdóttir. Voru
það foreldrar Önnu, er um alllangt
skeið stundaði 1 jósmyndagerð
á Akureyri. Var leikið í nýrri bað-
'Stofu, sem eftir var að setja milliþil
í. Leikið var 5 sinnum og áhorfend-
ur 70—80 í hvert sinn. Þó að bað-
stofan væri allstór, var þröngt, bæði
um leikendur og áhorfendur. Þá
níu leikendur, er léku í þessum
fyrsta sjónleik í hreppnumj vil eg
kynna fyrir ykkur, en það voru: 1.
Daníel Sigfússon, Gnúpufelli, síðar
bóndi þar og oddviti hreppsins um
tíma, Faðir Benedikts í Aðalstræti
54, Akureyri, og bróðir Jóhannesar
yfirlicnnara og Einars á Stokkahlöð-
urn. Daníel var hæfileikamaður
mikill, en dó á bezta aldri. 2. Sig-
uiður Ketilsson, Miklagarði, síðar
bóndi. Faðir hinnar landskunnu
kor.u, Aðalbjargar, ekkju Haraldar
Níelssonar. Sigurður var gáfaður og
xíðlesinn áhugamaður. En þjáðist
í mörg ár rúmfastur og naut sín
ekki vegna veikindanna. 3. Siggeir
Siguipálsson; er lengi bjó á Stekkj-
arflötum. Faðir Jóns í Hólum og
Þorgerðar á Öngulsstöðum. Siggeir
lék töluvcrt og var ágætur leikari.
Guðlaugur sýslumaður Guðnmnds-
son lét svo uminælt, er hann sá eitt
sinn ieik Siggeirs, að leikarar við
Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn gætu ekki gert þetta
betur. Er Siggeir vafalausf bezti
leikari cr hér í sveit hefur stígið á
lcikfjöl. 4. Sigluvíkur Sveinn, sá
þjóðkunni hagyrðingur. 5. Sigt.rygg-
ur Benediktsson frá Hvassafelli.
Kunnur hér í firðinum sem ágætur
söngmaður. Bróðir Tómasar í Hól-
um, en faðir Jóns prófessor við Há-
skóla íslands. 0. Þorvaldur Davíðs-
son á Hrísum, síðar kaupptaður á
Akureyri, faðir Kristjáns kaup-
manns, en bróðir Hallgríms, er
lengi var verzlunartsjóri Hiiepfn-
ers. 7. Lilja Olafsdóttir, Hleiðar-
garði. Giftist Árna Jónssyni frá
Æsustöðum og síðar Hallgrími
jónsyni í Sanrkomugerði. 8. Aðal-
björg Ketilsdóttir frá Miklagarði,
systir Sigurðar. Ung stúlka. Dó
sumarið 1884. 9. Árni Hólm Magn-
ússon, faðir minn. Síðar bóndi í
Saurbæ, kennari og oddviti. Hann
er sá eini er lifir af þessum níu leik-
endum.