Dagur - 18.12.1954, Qupperneq 20
20
JÓLABLAÐ DAGS
voru, munu hal'a farið á fundinn,
því að engum var vært heima. Kon-
ur nokkrar fóru á fundinn og
vinnumenn sumir, þótt ekki hefðu
þcir kosningarétt. Móðir mín fór á
iundinn og eg fékk líka að fara.
Lögðum við sneinma af stað um
morguninn og komum til Akureyr-
ar um klukkan níu. Fórum við fyrst
í hús Magnúsar Jónssonar, úrsmiðs,
en hann var systursonur pabba. Þar
fréttum við að Guðmundur Finn-
bogason ætlaði að taka framboð sitt
al tur. Þ(>tti mér það mjög leitt, því
að mér fannst gaman að Iilusta á
hann í Saurbæ og hafði hlakkað til
ao 'heyra tii hans aftur. Var talið að
eittlivað af kjóscndunr á Akureyri,
er ætluðu að kjósa Klemens og Guð-
rnund, mundu fást til að kjósa Stef-
án með Klemensi, ef Guðinundur
drægi sig til baka. Þegar við vorum
búin að drekka kaffi hjá Magnúsi
og dvelja þar góða stund, gengurn
við suður í Gudmannsport, líka
kailað Laxdalsport, því að þar átti
kjörfundurinn að vera. Var þar
saman kominn mikill mannfjökli.
Nú var kjörfundur settur og fram-
bjéiðenciur tóku til máls. Fyrst tal-
aði Guðmundur Finnbogason
nokkur orð, og lýsti því yfir, að
lrann tæki framboð sitt aftur. Þakk-
aði hann þeim mönnum, er höfðu
sýnt honum traust. Þá tóku hinir
þrír frambjóðendurnir til máls og
lýstu yfir framboði sínu og óskuðu
eftir atkvæði kjósenda. Þessar ræð-
ur voru fremur stuttar og hógværar.
Enginn talaði oftar en einu sinni.
Þá er ræðum frambjóðenda var lok-
ið var gengið til kosninga. Byrjað
var á Ongulsstaðahrepp, síðan
Saurbæjarhrepp, þá Hrafnagils-
lirepp, svo Akureyri og síðan áfram
út hreppana vestan Eyjafjarðar.
Kallað var upp nafn hvers kjós-
anda og var fyrstur kallaður upp
Ari Jónsson bóndi á Þverá. Mig
langaði lil að sjá Ara, því að mér
var sagt að hann væri frá Strjúgsá
og hefði átt þar heima þegar hann
var drengur og væri bróðir Einars
bónda í Rauðhrisum. En þröngin
var svo mikil í portinu, að ógreitt
var um ferðir þar, svo að ekki gat
eg séð Ara. Haldið var svo áfram
'kosningunum þar til þeim lauk
seint um kvöldið.
Margir voru þarna hýrir af víni,
J>ví að vín mun hafa verið veitt í
ikosningum }>cssum. Sumum var
veitt vínið til að fá þá til að kjósa
vissa menn. En svo var líka til að
drykkjumenn voru fylltir út í bæ,
svo að þeir yrðu ófærir til að kj(>sa,
ef ckki þótti tryggt að þeir kysu
„rétt“. Og hart var haldið áfram um
daginn að reyna til að hafa áhrif á
menn, með fortölum, víni og hót-
unum Þá tóku sumir |>að ráð að
reyna að fela sig í húsum bæjarins.
Höfðu J>ví smalar flokkanna eril-
saman og erfiðan dag. Fjórir kjós-
endur úr Saurbæjarhreppi, et fóru
til Akureyrar á kjörfund, týndust
áður en }>eir ku.su, og fundust ekki
fyrr en kosningu var lokið. Var
einn þeirra drykkfelldur maður,
sem gerður var ófær og lagðist lyrir.
Einn var allvel efnaður húsmaður,
er hafði ekki kjark til að kjósa, því
að hann vildi eða þorði hvorugan
flokkinn að styggja. Tveir voiu l'á-
tækir bændur og skuldugir barna-
menn, sem ekki Jrorðu að kjósa
vegna lánadrottna, er voru í báðum
flokkum. Fáeinir tóku Jjað ráð að
ikjósa Hannes og Stefán. Voru sum-
ir persónulegir óvinir Klemensar.
En aðrir.gerðu þetta til að gera báð-
um jafnt undir höfði.
Kosning fór þannig að Klemens
var kosinn með nær öllum atkvæð-
um og Hannes hlaut annað sætið
mcð fáurn atkvæðum fram yfir
Stefán. Svona lyktaði þessari rniklu
orrustu.
Hannes varð svo ráðherra árið
eftir og Klentens landritari. Losn-
aði þá Jringsæti Klemensar og komst
J>á Stefán í Fagraskógi aftur á Jring.
Hart var þó unnið á móti honum af
mörguin Heimastjórnarmönnum,
en frambjóðendur voru þrír, all't
Heimastjórnarmenn og komst því
StJefán inn á persónulegu fylgi sínu
og vinsældum.
Heimatilbúin \
j ó 1 a s t j a r n a
Jólastjörnu er hægt að búa til lieiina
með góðu móti. Ur hvítuin, jrykkum
pappa er stjarnan gerð, og síðan er hún
skreytt með mislitum silkiborðum (líka
má nota krepe-pappir), grenihrísla er fest
við hana, eða eitthvað annað grænt, og
bjöllur eða jólatréskúlur hengdar neðan
í. Jólastja.rnan er hengd upp með rauðum
borða, og er látin hanga niður úr Ijósa-
stæðum og lömpum.
Hugvitssömum konuin mun finnast auð-
velt að endurbæta Jtessa hugmynd með
ýmsu gömlu jólatrésskrauti, sem ef til
vili er ekki notað lengur.
Stjörnuna ntá gera í öllum stærðum,
og getur hún líka verið til skreytingar á
jólatré eða körfu.
I