Dagur - 18.12.1954, Blaðsíða 23
JÓLABLAÐ DAGS
„Þeir þykjast geta talað við draugana
eins og maður við mann,“ sagði eg.
„Já, 'þeir telja sig geta komist í sam-
barid við framliðna menn á miðilsfund-
um,“ svaraði Friðrik. Það var alvara og
þungi í orðum hans.
„Það má hver sem vill trúa slíkum
bábiljum í minn stað,“ sagði eg. „Otrú-
legt er nú margt í kenningum kirkj-
unnar en þetta er þó enn ótrúlegra."
„Því er eg áammála,“ sagði Guð-
mundur.
„Vitið þið nokkuð hvað þið eruð að
dæma?“ spurði Friðrik dálítið hvasst.
,Já, við skulum fara varlega í að -
dæma nýjar stefnur," sagði kaupfélags-
stjórinn í friðsömum róm. Honum leizt
ekki meir en svo á, hvaða stefnu um-
ræðuefnið ætlaði að taka.
„Mér er engin launung á því, að eg
aðhyllist spíritismann og tel sálarrann-
sóknirnar mjög merkilegt mál,“ sagði
Friðrik. „En mér finnst tæplega von, að
neinn get'i aðhyllst þetta mál eftir frá-
sögn blaðanna eins og það er afflutt
þar.“
„Eg er öldungis hissa. Mér finnst þú
of skynsamur maður til að festa trúnað
á svona bábiljur,“ sagði eg.
„Reynslan er ekki bábilja," svaraði
Friðrik. „Það er fjöldi dæma um það,
að framliðnir menn hafa birzt.“
„Ágætt,“ svaraði eg. „Ræðum málið
bara á breiðum grundvelli. Eg trúi ekki
á neitt framhaldslíf. En eg neita því
ekki, að það geti verið til. Eg læt það
liggja milli hluta.“
„Nú er eg ekki sammála," svaraði
kaupfélagsstjórinn. „Eg er sannfærður
um, að annað líf er til og að sálarrann-
sóknirnar hafa mikið til síns máls.“
„Hafið þið heyrt um Steindór í
Firði?“ spurði Friðrik.
„Nei, hvað er það?“ spurði eg.
„Hann neitaði harðlega tilveru ann-
ars lífs. En skömmu eftir að hann dó,
birtist hann konunni sinni í draumi og
sagði: Þú hafðir rétt fyrir þér.“
„Já, en draumar eru nú engar sann-
anir,“ svaraði eg.
„En eg hef tillögu í rnálinu," sagði
Friðrik. „Eigum við ekki Þorsteinn að
gera samning um það, að sá okkar, sem
fyrr deyr, geri hinum viðvdrt, ef það er
gerlegt.11
„Ágætt, eg geng að því. Eg hef marg-
an samning gert hættulegri."
„Þið eruð vottar að þessum samn-
ingi,“ sagði Friðrik um leið og hann
rétti mér hendina.
Við staðfestum samninginn með
handtaki, þótt mér þætti það óþarflega
hátíðlegt. En Friðrik var þetta full-
komið alvörumál.
„Má ekki bjóða ykkur rneira?" spurði
Hildur.
Enginn vildi meira. Svo var tekið af
borðinu og spilin tekin fram. En glað-
værðin var fyrst í stað ekki sú sama og
áður.
II.
Þrjú ár eru liðin. Á þessum tíma hef-
ur Friðrik kennari látizt. Hann dó úr
heiftugri lungnabólgu fyrir einum mán-
uði. Eg var sóttur til hans, en gat ekk-
ert að gert. Hann minnti mig brosandi
á samninginn.
Eg varð þess í engu var þennan mán-
uð, að Friðrik ætlaði að ofna loforð sitt.
Líklega hafði eg rétt fyrir mér. Þegar
menn eru dauðir, þá ónáöa þeir ekki
aðra úr því.
En einn dag var eg skyndilega sótt-
ur að Hlíð, þar sem Friðrik hafði átt
heima. Að þessu sinni var eg sóttur til
gamallar konu. Eg kom þar seint um
kvöldið og gisti þar um nóttina. Þetta
var í nóvembermánuði og dagurinn
orðinn stuttur.
Um kvöldið var mér vísað til svefns
í stofunni, en hún var í framhýsi og
sneri glugginn fram á hlaðið. Löng göng
var að fara þaðan inn í baðstofuna.
Ekkja Friðriks fylgdi mér fram í
stofuna og vísaði mér til sængur.
„Mér þylcir verst, ef þér verður nú
kalt hér frammi,“ sagði hún. „Eins og
þú sérð er hér ekkert til upphitunar, en
eg var að reyna að yla upp með olíu-
vélinni minni.“
„Það er engin hætta á því, kona góð.
Mér þykir ekkert að því að sofa í köldu
herbergi, ef eg hef sæmileg rúmföt.“
„Þarna er bókaskápurinn, ef þú vilt
fá bók til að líta í,“ sagði hún. Að svo
mæltu bauð hún góða nótt og hvarf út
úr stofunni.
Eg fór nú að líta í kringum mig. Fátt
var þarna af húsgögnum. Rúmið var við
stofugaflinn móti dyrunum. Borð og
stólar voru á miðju gólfi. En við vest-
ari vegginn stóð allstór bókaskápur.
Olíulampi hékk úr lofti yfir borðinu, og
vegglampi hékk yfir rúminu á veggn-
um. Ljós voru á báðum lömpunum. Eg
fór nú að líta á bækurnar. Þarna voru
margar góðar bækur og auöséð, að þær
voru valdar af smekkmanni. Friðrik
23
hafði gott vit á bókum. Eftir ofurlitla
íhugun valdi eg söguna „Upp við fossa“
eftir Þorgils gjallanda.
Svo háttaði eg, slökkti ljósið á stóra
lampanum en las svo uppi í rúmi við
litla lampann. Þegar eg hafði lesið ura
stund og dáðst að stílnum á bókinni
slökkti eg á lampanum og lagðist ti
svefns.
En þegar eg var rétt að festa svefn-
inn, þá hrökk eg upp og glaðvaknaði
Mér fannst einhver koma inn í stofuna
Eg hlustaði, en heyrði ekkert. Þetta
hafði bersýnilega verið einhver vitleysa.
Eg hlustaði enn ofurlitla stund og lagö-
ist svo út af aftur. Mér þótti þetta kyn-
legt, því að eg átti því ekki að venjast
að eiga erfitt með svefn.
En nú var mér gersamlega varnað
svefns. Og nú brá svo einkennilega við,
að mér fannst einhver vera þarna inni
í stofunni.
Eg beit á jaxlinn og hugsaði með
sjálfum mér, hvort eg væri að verða
eitthvað ímyndunarveikur. Aldrei hafði
neitt svipað komið fyrir mig áður.
En þegar eg fann, að allur svefn var
horfinn frá mér í bili, þá kveikti eg aft-
ur á lampanum og las enn um stund.
En er eg var rétt að festa svefninn í
annað sinn, endurtók sig það sama og
áður. Eg hrökk upp og mér fannst ein-
hver hreyfing vera hjá bókaskápnum.
Eg kveikti enn á lampanum. Og nú fór
að síga í mig. Eg vatt mér fram úr rúm-
inu og hringgekk stofuna. Hvergi fann
eg neitt grunsamlegt. Þetta var ber-
sýnilega allt einhver vitleysa. Enginn
var þarna inni nema eg einn.
Og nú reyndi eg að gleyma því, sem
komið hafði fyrir, og sökkti mér niður
í lestur bókarinnar. Klukkan var orðin
tólf.
Eftir nokkra stund lagðist eg fyrir á
ný og breiddi sængina upp fyrir höfuð.
En nú lét eg ljósið loga á lampanum.
Það var í mér einhver beygur við að
slökkva það.
En nú heyrði eg greinilegt fótatak í
stofunni. Eg' leit ekki upp. En eg heyrði
fótatakið áfram. Það var eins og gengið
væri um gólf fram og aftur yfir þvera
stofuna. Nú fyrst greip mig hræðsla.
Hvað gat þetta verið? Aldrei áður hafði
eg orðið var við neitt dularfullt. En þá
datt mér allt í einu samningurinn í hug.
Gat þetta verið Friðrik? Var hann nú
að koma til að efna heit sitt? Eg reyndi
að bæla þessar hugsanir niður og telja
sjálfum mér ti-ú um. að einhv01' óeðlileg