Dagur - 18.12.1954, Page 28
28
JÓLABLAÐDAGS
BÆJAVÍSUR
um
bændur í Myrkársókn
kveðnar 1864
af
Jóni Þorsteinssyni.
Búðarnes.
Stefán víðarstjörnu Týr,
starfs af lúður vési,
þægur, prúður þessi býr
þar í Búðarnesi.
Stefán Jónsson í Uúðarnesi, f. 1827, d.
1894, bjó þar aðeins fá ár, flutti að Myrká
fáum árum eftir að bæjarvísurnar voru
ortar og bjó J>ar til dauðadags. Hann var
þriðji maður Myrkár-HeJgu giimlu Gísla-
dóttur. Þau áttu einn son, er Bjarni hét,
sá lór til Ameríku.
Bás.
Bási stýrir ekkja ein,
öld Kristínu nefni.
Dável býr sú dregla rein
dáðafín við efni.
Kristín í Bási var dóttir Gunnlaugs ;i
Nýjabæ, Gunnlaugssonar á Féeggsstöðum.
Hún var J)á ekkja, en hafði átt Magnús
Magnússon frænda sinn. Þau bræðrabörn
og áttu dætur, sem fóru til Ameríku.
Nýibær.
Gunnlaug því um geta ber,
gæfu drýgir haginn.
Ellihniginn álma Grer
yrkir Nýabæinn.
Gunnlaugur á Nýjabæ, f. 1800, d. 1877,
átti Krjstínu Sigurðardóttur frá Þúfnavöll-
um, Halldórssonar. Þau áttu margt l)arna,
og er mikill ættbogi frá þeim kominn.
Meðal barna þeirra voru Jóhann í Flögu-
seli, afi þeirra Jóhánns Sveinssonar mag.
frá Flögu og Braga ættfræðings, og Sig-
urðar hreppstjóra á Skriðulandi í Kol-
beinsdal.
✓
Framland.
Sveigir branda, sinnishýr,
sviftur grandi og pínum,
á Framlandi Baldur býr
eftir vanda sínum.
Oddur á Framlandi, f. 1808, d. 1895, var
Benediktsson lrá Flöguseli. Voru þau börn
Bencdikts fjölmörg. Eitt Jjeirra var Stutta-
Sigga. Kona Odds hét Jóhanna, dóttir
Jóns Jress, er fórst með „Straumönd" í
Grímseyjarför vorið 1817. Hann var Jrar
skipstjórnarmaður. Dóttursonur Odds er
Stefán í Skjaldarvík, en Þórður í Þríhyrn-
ingi sonarsonur. Oddur var mjög fátækur
og bjó aðeins örfá ár á Framlandi.
Flögusel.
Yndishögum að nú snýr
eftir söguveli.
Þels um drög er þægur hýr
Þórður á Flöguseli.
Þórður í Flöguseli, f. 1834, d. 1876,
flutti þaðan vorið eftir að Bási. Föðurætt
lians var lítils háttar, en móðir lians var
Sigríður Erlendsdóttir frá Oxnhóli, sti
sama, serit drukknaði í Hörgá 1864 (nefnd
Valgerður f Annál 19. aldar). Kona Þórð-
ar var Rósa, dóttir Berja-Láka og Hólm-
Iríðar Benediktsdóttúr frá Flöguseli. Eitt
barna þeirra var Olalur, kenndur við
Lund á Oddeyri. Olafur dó sl. vettir, 1953,
háaldraður.
Ásgerðarstaðasel.
Guðmund elur gnægtirnar,
gæfu telur fetin,
yrkir selið Ásgerðar,
ætíð vel er metinn.
Guðmundur í Ásgerðarstaðaseli, f. 1837,
d. 1900, var bróðursonur Gunnlaugs á
Nýabæ, sonur Guðmundar Gunnlaugs-
sonar á Féeggsstiiðum. Kona hans var
Rósa Benediktsdóttir frá Flöguseli. Hún
var honum miklu eldri, enda barnlaus.
Dóttir Guðmundar er Nanna í Ásgerðar-
staðaseli. Guðmundur bjó lengst á Nýja-
bæ og dó Jíar.
Ásgerðarslaðir.
Jón minn, glaður geðs um far,*)
greiðamaður laginn,
yrkir staðinn Ásgerðar,
— allt sér það í haginn.
Jón á Ásgerðarstöðum, f. 1828, d. litlu
eftir sfðustu aldamót, var Guðmundsson
frá Nautabúi í Hjaltadal. Móðir hans var
Kristín Gísladóttir, Jónssonar biskups,
Teitssonar. Kona Jóns var Guðrún, dóttir
* „hlað" í handritum.
Nýjabæjar-Gunnlaugs. Meðal barna Jieirra
voru Jóhann á Miðlandi og Gunnlaugur
í Víðinesi. Jón var góður bóndi og mað-
ur greindur. Hann flutti frá Ásgerðar-
stöðum að Víðinesi árið 1886, og var Jxtr
svo til dauðadags.
Flaga.
Dyggur starfar mest, sem má
meður ráði högu.
Gunnlaugsarfa Sigurð sá
sæmd með dáð í Flögu.
Sigurður í Flögu, f. 1833, var eitt barna
Nýjabæjar-Gunnlaugs. Kona Sigurðar var
Guðrún Jónsdóttir, sonardóttir Jóns lækn-
is Péturssonar. Meðal barna þeirra vpru
Kristinn á Skriðulandi, faðir Kolbeins, og
Jón í Hofgörðum, faðir Braga (Refs
bónda). Sigurður fór vorið eftir frá Flögu
vestur að Skriðulandi, og var þar til ævi-
loka.
Stóra-Gerði.
Kristján tórir, tryggðakarl,
títt ei stóra gerði —
hringa-Þórinn þokka snjall
þar í Stóra-Gerði.
Kristján í Stóragerði, f. 1796, d. 1872,
var sonur Sigurðar á Þúfnavöllum, Hall-
dórssonar. Kona Kristjáns vár Hallbera
Gunrilaugsdóttir frá Féeggsstöðum. Eiri
dætra Jjeirra var Lilja kona Jóhanns í
Fliiguseli. Kristján bjó lengi í Stpra-Gerði
og var bænda fornbýlastur
Myrkárdalur.
Sinniskala Kristján flýr,
kappatal ei hryggir.
í mörgu valinn málma Týr
Myrkárdalinn byggir.
Kristján í Myrkárdal var Arngrímsson,
kallaður Fjöruræfill, kominn Jrangað frá
Akureyri. Greindur maður og vel gerður,
en fátækur. Fór J)aðan árið eftir.
Ilér lýkur kændavísunum að
sinni; framhald verður birt í ey-
firzkum þáttum Jóns á Skjaldar-
stöðum eftir nýjár.