Dagur - 20.12.1958, Blaðsíða 22
22
JÓLABLAÐ DAGS
Nýlega fékkst góð sönnun fyrir
fornum skógi á þessum slóðum.
Upp kom, þegar skurðgrafa var að
yerki, trjábútur, sem er 1 m. að um-
máli. Sýnir það, að mikil tré hafa
áður vaxið í Garðsárdal.
Skóg þennan annast Skógræktar-
félag Öngulsstaðahrepps síðan
1953.
Vaglareitur á Þelamörk.
Þar voru skógarleifar, sem girtar
voru árið 1934 og hafa tekið mikl-
um framförum á síðustu árum. —
Reitur þessi er rúmlega 5 ha. að
stærð og er búið að planta í hann
um 10 þús. skógarplöntum. Skóg-
rækt ríkisins tók við þessu landi
fyrir nokkrum árum.
Skógræktarfélag Tjarnargerðis.
Tjarnargerði er á sérlega fögrum
stað við Leyningshóla. Konur bif-
reiðastjóra á Akureyri hafa unnið
])ar gott starf. Að stærð er landið
um 7 ha. og var það friðað 1950.
Búið er að planta í það að mestu,
og fóru til þess um 10 þús. plöntur.
Þar er sumarbústaður bifreiðastjóra
við lítið veiðivatn. Skógræktarfélag
Tjarnargerðis er ein af deildum
Skógræktaifélags Eyfirðinga.
Botnsreitur.
Lárus Rist gaf Akureyrarkaup-
stað jörðina Botn í Hrafnagils-
■hreppi. Þar er friðað skógræktar-
land, 5,5 ha. að stærð, girt 1951. í
hluta þessa lands liafa Rotaryfélag-
ar á Akureyri annast gróðursetn-
ingu. Búið er að planta 10—11 þús.
plöntum.
Skógarreitur hjá Dr ergasteini.
Hjá Dvergasteini í Glæsibæjar-
ltreppi er skógarreitur ungmenna-
félags sveitarinnar, sem er ein af
deildum félagsins. Þar eru nokkur
þúsund trjáplöntur í uppvexti.
Jónasarlundur.
Jónasarlundur í Öxnadal hefur
að nokkru leyti verið á vegum
Skógræktarfélags Eyfirðinga, en er
nti endanlega afhentur ungmenna-
félögum í Öxnadal. Lundurinn var
girtur 1951 og er tæplega 4 Iia. að
stærð. Þar er búið að planta um 6
þúsund trjáplöntum.
Skriðureitur í Hörgáitlal.
Skriðureitur í Hörgárdal er 5 ha.,
girtúr 19.50, og búið að planta í
hann 5 þús. plöntum. í Skriðu og
Eornhaga eru hin frægu, gömlu
reyniviðartré.
Skógræktarfél. Skriðuhrepps hef-
ur reit þennan.
Iívammsreitur í Arnarneshreppi.
Hvannnsréitur var girtur 1951,
er 0,7 ha. að stærð og þar vaxa nú
upp 22 þús. skógarplöntur.
Fyrir nokkrum árum gaf Hannes
bóndi Davíðsson á Hofi Skógrækt-
árfélagi Arnarneshrepps heila jörð,
Ásláksstaði II. Sii jörð er ekki
heppileg til skógræktar og hefur fé-
lagið selt hana og notað andvirðið
til starfseminnar. Er Hvammsreitur
á vegum þess, og nýlega hefur
Hannes gefið félaginu landspildu
skammt frá Hofi, sem verður frið-
uð við fyrstu möguleika og tekin til
skógræktar.
Litla Arskógsreitur.
Við Þorvaldsdalsá er lítill skógar-
reitur á fögrum stað. Hann er 3 ha.
og girtur 1951. Þar er nær full-
plantað. Skógræktarfélag Árskógs-
strandar sér um hann og hefur í
hyggju að taka meira land til skóg-
ræktar.
Kvíabekkjarreitur.
Að Kvíabekk í Ólafsfirði er 1,3
ha.skógarreitur, girtur 1950, og bú-
ið að planta' í hann 0 þús. trjáplönt-
um. Skógræktarfélag Ólafsfjarðar
er ýngsta deild félagsins og sér um
þennan stað.
Grundarskógur.
Grundarréitur hefur alltaf verið
á vegum Skógræktar ríkisins frá
stofnun hennar fyrir rúmlega hálfri