Dagur - 20.12.1958, Page 28
28
JÓLABLAÐ DAGS
VALD. V. SNÆVARR:
ÞEIR HEYRÐU KALLIÐ OG HLÝDDU ÞVÍ
Gegnum haíið hranna blárra
hrópað tíðum var:
„Fetið, niðjar, feðra hárra
feril út á mar.“ — (Stgr. Th.).
SVO SEM KUNNUGT ER, leituðu
bændur í Svarfaðardal sér bjargræðis
úr sjó vor og haust.Þeir, sem bezt voru
stæðir, áttu sjálfir báta, og var bátun-
um haldið út til fiskifanga frá Böggvis-
staðasandi, þar sem nú er kauptúnið
Dalvík. — Alllöngu fyrir síðustu alda-
mót höfðu bændur úr sveitinni reist
sér verbúðir á Sandinum. Verbúðir
þessar voru byggðar úr torfi og grjóti,
og sjálfsagt misjafnlega vel gerðar og
vistlegar. í þeim var beitingarrúm og
veiðarfærageymsla, en fiskurinn var
geymdur í hjöllum. Svo héldu báts-
hafnirnar til í búðunum, mötuðust þar
og sváfu. — Um þessar mundir tókir
einstaka menn að gera sér húsnæði til
ársvistar á Sandinum. Sennilega hafa
íbúðir stundum verið gerðar í vei'búð-
unum, sem menn létu sér nægja til
bráðabirgða, og ef til vill kann ein-
hverri búðirini að hafa verið breytt í
íbúðarhús. En fyrstur þeirra manna, er
settust að á Sandinum, byggði Jón
Stefánsson, síðar póstafgreiðslumaður,
sér íbúðarliús úr tinibri. Var það kall-
að og kallast enn Nýibær. þó að nú sé
það orðið nær scxtíu ára gamalt. Áður
bjuggu þau hjón, Jón og Rósa Þor-
steinsdóttir, í torfbæ, sem á sínum tíma
var líka nefndur Nýibær. Bæ þann
höfðu byggt þeir Jóhann Guðmundsson
frá Hamarkoti og Halldór, bróðir hans,
en síðan selt Jóni Stefánssyni. Hann
endurbætti bæinn mikið, áður en hann
flutti þangað, 1887, enda var hann góð-
ur smiður, ásamt fleiru, sem honum
var til lista lagt. En — þetta var nú
útúrdúr, — en hcim að Nýjabæ er nú
ferðinni samt heitið. Þar býr einn sona
þeirra, Jóns og Rósu, — Kristján Eld-
járn, fæddur 24. september .l8í)l.
Kristján E. Jónsson er einn af hinum
eldri sjómönnum Dalvíkur, — og einn
af þeim fáu hákarlamönnum, sem þar
lifa enn. Hann er maður viðmótsgóður
og viðræðugóður. Hann er vænn á all-
an vöxt. Það er eitthvað ti'ðustlegt og
geðþekkt við hann. Ég hygg líka, að
mér sé óhætt að fullyrða, að hann eigi
vinsældir allra þeirra, sem með honum
hafa verið og eru, og því meir, sem þeir
þekkja hann betur. Hann er verkmaður
góður og sérstaklega verklaginn. Hann
er „maður starfsins“ og unir því bezt,
að hafa eitthvað að gera, en vel kann
Krislján E. Jónsson.
hann þó að gera sér dagamun. Eftir því
sem ég bezt veit, hefur Kristjáni verið
margt vel gefið, bæði til sálar og lík-
ama. Hann er maður gætinn og hugsar
vel sitt ráð. Framúrskarandi veður-
glöggur og kemui' sá eiginleiki sér oft
vel á sjónum. Hann er einnig afburða
skytta. Munu færri hér um slóðir hafa
slyngari reynzt í þeirri grein. Glímu-
maðui' var hann hinn ágætasti. Munu
fáir hafa fellt hann, en hann felldi
flesta, sem við hann áttu leik. — Þá lék
Kristján afburða vel fyrir dansi á har-
monikku. Sjálfur minnist ég þess
glöggt, að á dansleik einum fyrir
nokkrum árum, þótti nokkuð skorta á
fjör og dansgleði. Var, ef ég man rétt,
hljóðfæraslættinum kennt um. Af til-
viljun bar mig að danshúsinu. Ég
hitti Kristján þar að máli. Allt í einu
tekur hann snöggt viðbragð, bregður
sér upp á leiksviðið, tekur harmonikku
og fer að spila. Var þá ekki að sökum
að spyrja: Fjör færðist heldur betur í
dansinn, svo að mér þótti nóg um. Víst
er það, að eigi þurfti að kvarta um
„daufan dansleik“, mcðan Kristján
spilaði. — Þá minnast eldri sjómenn
hans oft sem frábærs fiskimanns. Þeir
segja, að alltaf hafi Stjáni dregið fisk á
færi, þó að aðrir hafi ekki orðið varir,
sem stóðu þó honum til beggja handa.
Hann var jafnan „hæstur í drætti", eins
og þeir orða það.
Lesendur góðir. Við kveðjum nú
dyra hjá Kristjáni, og er okkur strax
boðið inn. Húsbóndinn er að vanda
glaður og reifur. Ég lýsi erindi mínu.
Segi honum, að ég vilji fá efni í grein
um hann fyrir eitt Akureyrarblaðið.
Því tekur hann fálega í fyrstu. Ég
kemst skjótt að því, að hann er dauð-
hræddur við — prentsvertuna! Ég læt
það ekkert á mig fá, en tek strax að
spyrja hann í þaula.
Hve gamall varstu, þegar þú tókst að
stunda sjómennsku fyrir alvöru?
Ég var á 15. árinu, þegar ég réðist
fyrst í hákarl á þilskipi, en áðui' hafði
ég lítillega róið til fiskjar frá Sandin-
um heima.
Og á hvaða skipl og með hvaða skip-
stjóra?
Skipið var frá Akureyri og hét
„Áki“. Skipstjóri var Oddur Þorsteins-
son frá Hringsdal. Flestir skipverjanna
voru af „austurlandinu“. Tveir Svarf-
dælingar voru þó þar, — þeir Zóphoní-
as Jóhannsson stýrimaður, sem enn lif-
ir hér, og Gunnlaugur Sigurðsson frá
Kofa. Skipstjórinn og öll skipshöfnin
reyndist mér sem beztu bræður, svona
ungum og óvönum sjóvolkinu. Ég
minnist þeirra allra með heitri þökk, og
skipstjórans ekki sízt. Hvílíkur ágæt-
ismaður! Hvílík skipshöfn!
Ilvernig var aðbúðin á skipunum þá?
Hún var misjöfn, eins og skipin sjálf