Dagur - 29.08.1987, Side 1
Góðir Akureyringar. Nú
höldum við upp á 125
ára afmœli kaupstaðarins
með veglegum hátíðarhöld-
um og minnumst hins mikil-
væga áfanga sem náðist á
því herrans ári 1862. Þáfékk
Akureyri formlega kaup-
staðarréttindi sem bœrinn
hafði reyndar fengið árið
1786 en glataði aftur. Árið
1836 barst tilskipunfrá kon-
ungi þess efnis að Reykjavík
ein vœri kaupstaður en
Akureyri vœri löggiltur
verslunarstaður.
Þegar undirritaður tók að
sér það verkefni að sjá um
hátíðarblað Dags vöknuðu
sem von er ýmsar spurningar
varðandi efnistök. Fljótlega
varð niðurstaðan sú að láta
sögulegan fróðleik bera
blaðið uppi, bregða upp
myndum frá Akureyri fyrr á
öldum, en teygja sig til nú-
tíðar í einstaka tilvikum.
Agrip af sögu Akureyrar
skipar því veglegan sess í
blaði þessu. Þá er rakin saga
nokkurra atvinnufyrirtœkja
og gömlum húsum gerð skil.
Einnig er gripið niður í
kvæði sem ort hafa verið um
kaupstaðinn, Sigfús Jónsson
bæjarstjóri segir frá stöðu
Akureyrar í viðtali og skrá
yfir stofnanir og fyrirtæki
bæjarins birtist hér sem
heimild um umfatíg Akur-
eyrarbœjar á þessum tíma-
mótum.
Af öðru efni má nefna
brot úr ævisögum fólks sem
dvalist hefur á Akureyri,
fréttir afmerkum viðburðum
frá liðnum tíma, krossgátu,
getraun og ýmislegt fleira.
Auðvitað er ógjörningur að
gera öllu því skil sem tilefn-
inu tengist og réðist efnisval
nokkuð af því hversu greið-
an aðgang undirritaður átti
að heimildum og er vonandi
að menn taki það ekki óstinnt
upp þótt margt hafi orðið
útundan.
Dagur óskar bæjarbúum
til hamingju með afmælið.
Tökum höndum saman og
gerum 29. ágúst að sann-
kölluðum hátíðardegi og
megi gleðin feykja drungan-
um burt, samheldnin verða
sundrungu yfirsterkari og
hjörtu kynslóðanna samein-
ast í eitt stórt hjarta Akureyr-
ar. Akureyringar! Tökum
þátt í hátíðarhöldunum
laugardaginn 29. ágúst. SS