Dagur - 29.08.1987, Blaðsíða 13

Dagur - 29.08.1987, Blaðsíða 13
Akureyri 125 ára „Eg er ekkert feiminn við að hræra upp í hugsunarhætti fólks, því veitir ekkert af því að hugsa dálítið krítískt um bæinn SÍnn . . .“ Mynd: RÞB almennt upp laugardagsopnun hér, hún þarf ekki að vera nema fram til kl. 2 eða 4 og menn geta lokað hálfan daginn á einhverj- um virkum degi í staðinn, þá streymi Norðlendingar hingað til að versla utan síns vinnutíma. Og mér finnst eðlilegt að ef fólk kemur hingað í verslunarferð þá geti það líka farið til augnlæknis og eigi möguleika á því að reka einhver fleiri erindi. Nú er komið mjög gott vega- samband við allar byggðir í Eyja- firði og austur í Þingeyjarsýslu og þá er bara Öxnadalsheiðin eftir. Pegar hún verður komin í lag þá fer fólk frá Sauðárkróki að koma hingað en heiðin er verulegur far- artálmi yfir veturinn. Þá fara Siglfirðingar líka að koma því þeir fara ekki Lágheiðina eins og gefur að skilja. Það verður að fara að hræra upp í viðskipta- og þjónustuaðilum á Akureyri þannig að þeir hugsi um að ná þessum viðskiptum hingað. Ég er ekki að tala um að kaupmennirn- ir á Akureyri sinni ekki bæjarbú- um nógu vel. Ég er að hugsa um Norðlendingana. Laugardags- opnunin kæmi sér auðvitað líka vel fyrir Akureyringa og alla ferðamenn. Svo eru líka þó nokkrir ónýttir möguleikar í sérverslun. Það eru nokkrar sérverslanir í bænum sem leggja sig fram og þær ná árangri. Sjáðu bara Sporthúsið, eða Einarsbakari, eða t.d. Bókval. Síðan eru auðvitað aðrar sem ganga ekki eins vel en þarna eru ónýttir möguleikar. Ég hef t.d. heyrt að það vanti almenni- lega búsáhaldaverslun á Akur- eyri, svona klassaverslun. Fleira mætti örugglega nefna en ég tel að ef fólk með þekkingu og reynslu fer út í sérverslun þá muni kúnnarnir koma.“ - Stjórnsýslustöðin verður þá væntanlega líka til þess að Norð- lendingar komi í auknum mæli til Akureyrar? „Já, stjórnsýslumiðstöðin gerir fólki kleift að sækja opinbera þjónustu hingað. Þarna er um að ræða útibú frá ríkisstofnunum þannig að fólk sem á erindi við þær, hvort sem það er Húsnæðis- stofnun, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Byggðastofnun, eða hvaða stofnun sem er, geti farið á skrifstofuna hérna. Þetta þýðir að Húsvíkingar, Siglfirðingar, Sauðkrækingar og aðrir koma hingað til þess að rekja sín erindi við hið opinbera. Það er hins veg- ar ljóst að ríkið fyllir aldrei út í þetta hús sem verður byggt fyrir starfsemina, það verður selt einkaaðilum að einhverju leyti en það er bara betra. En með stjórn- sýslustöð er verið að færa þjón- ustuna nær fólkinu, þannig að maður þurfi ekki að sækja allt til Reykjavíkur. Akureyri á að vera höfuðstaður Norðurlands. Ég sá það þegar ég var á Skagaströnd að þá fóru íbúarnir nær aldrei til Akureyrar, sóttu allt til Reykja- víkur. Þessu þarf að breyta.“ „Framtíðin er í ferðamannaþjónustu“ - Eru þá helstu vaxtamöguleikar bæjarins fólgnir í verslun og þjónustu? „Já, og í ferðamálum. Ég held að möguleikarnir séu fyrst og fremst í þessum greinum, þegar til framtíðarinnar er litið. Ég hef ekki trú á því að kippurinn í sjávarútveginum breytti miklu þar um. Þetta er mikilvæg grein sem tekur breytingum og þar er margt spennandi að gerast en ég held að ekki verði mikill vöxtur í sjávar- útvegi héðan af. Það vantar meiri fisk í sjóinn til þess. Framtíðin er í ferðamanna- þjónustu og þar höfum við verið að velta fyrir okkur byggingu orlofshúsahverfis. Við réðum starfsmann til að sinna ferðamál- um og uppbyggingu þeirra. Síðan er búið að stofna tvö þjónustu- fyrirtæki fyrir tilstilli Akureyrar- bæjar, Kaupþing Norðurlands og Fiskmarkað Norðurlands. Ég hef fundið það að sumum finnst það jafnvel neikvætt að bærinn sé að skipta sér af stofnun þjónustu- fyrirtækja en hins vegar hefur það verið allt í lagi þegar bærinn hefur skipt sér af stofnun fram- leiðslufyrirtækja. Ég er á þeirri skoðun að þetta sé hluti af því að gera Akureyri að höfuðstað Norðurlands að stofna þessi þjónustufyrirtæki. Og það eru margir ónýttir möguleikar í þjón- ustugreinum, t.d. í endurskoðun og lögfræðiþjónustu, einnig í vissum greinum læknaþjónustu. Fólk sækir margvíslega þjónustu til Reykjavíkur sem það ætti að geta fengið hér. Þarna eru ýmsir möguleikar í atvinnumálum en það er margt annað sem bærinn þarf að taka þátt í og hugsa um, t.d. ýmsar þjóðfélagsbreytingar. Það er fyrirsjáanlegt að öldruðum mun fjölga gífurlega á næstu 20-30 árum og því er ljóst að þjónusta við aldraða og umönnun á eftir að stóraukast. Þessi breytta aldurssamsetning er vandamál sem þjóðin verður að gera sér grein fyrir og þetta kallar bæði á fjölda starfa í þjónustu við aldr- aða og breytt rekstrarfyrirkomu- lag. Við þurfum að laga ýmsa hluti í þessu sambandi, s.s. verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga. Öldrunarþjónusta er að hluta til greidd af ríkinu og að hluta til af sveitarfélögum. Að mínu mati er ekki hægt að reka neina þjónustu á hagkvæman hátt nema einn aðili sé ábyrgur fyrir henni.“ „Sjálfvirkt eyðslukerfi“ - Þú talar um breytt rekstrar- fyrirkomulag, hvernig sérðu það fyrir þér í sambandi við öldrunar- málin? „Það gengur ekki lengur, rekstr- arlega séð, að hrúga gömlu fólki inn á stofnanir. Það er miklu ódýrara að fara út í það að þjóna því í heimahúsum og jafnvel að láta það kaupa sér íbúðir saman í blokkum og veita því þjónustu þar í stað þess að setja það á dvalarheimili í einhverjar her- bergiskytrur. Auðvitað fylgir því miklu meiri vellíðan fyrir fólkið ef það er aðstoðað við að búa í sinni íbúð þangað til það er orðið „stofnanamatur“, m.ö.o. þangað til það er ekki fært um að búa í eigin íbúðum með aðstoð hjúkr- unarfólks og heimilisþjónustu. í Danmörku er gamla fólkið ekki látið á stofnanir fyrr en það er orðið mjög veikburða og jafnvel komið í hjólastól. Hér er verið að hrúga fullfrísku fólki inn á elli- heimili í eina herbergiskytru. Þetta er bæði slæmt fyrir fólkið og dýrt fyrir þjóðfélagið. Þarna er stórverkefni framundan. Annað sem við þurfum líka að taka á er rekstur heilbrigðisþjón- ustunnar. Kostnaðurinn vex frá ári til árs langt umfram verðlags- hækkanir. Ég ætla ekki að kenna neinum einum um þetta en ríkið er, í krafti þessa heilbrigðiskerf- is, búið að koma á fót sjálfvirku eyðslukerfi. Hvergi er stigið á bremsuna í sambandi við kostnað. Þú veikist, ferð til lækn- is og færð lyfseðil umsvifalaust. Þú ferð kannski á sjúkrahús og færð þar bestu þjónustu og allt sem þú biður um. Hvergi kviknar rautt ljós sem segir: Þetta er of dýrt. Það er ekkert peningalegt aðhald í þessu kerfi. Sveitar- félögin hafa ekkert vald til þess að grípa þarna inn í. Þau verða bara að borga og þetta er alveg að sliga okkur. Þessu kerfi verður að breyta.“ „Bœjarstjóri sem ekki er umdeildur er staðnaður!“ - Vindum okkur í annað Sigfús. Það olli töluverðu fjaðrafoki þeg- ar þú sagðist vilja byggja upp miðbæinn með því að selja eitthvað af hlutabréfum bæjarins í fyrirtækjum. Ertu enn sömu skoðunar? „Já, þetta var reyndar mistúlk- að á sínum tíma en það er ljóst að ástand miðbæjarins er óviðun- andi. Þá er ég ekki bara að tala um göngugötuna heldur einnig ásigkomulag húsa og opin svæði við efri hluta Strandgötunnar, Hafnarstræti sunnan Kaup- vangsstrætis og gamla húskofa á baklóðum, t.d. milli Geislagötu og Glerárgötu. Þá er einnig nauðsynlegt að lagfæra Ráðhús- torg og neðri hluta Skátagils og byggja umferðarmiðstöð á mið- bæjarsvæðinu. Fjárhagsstaða bæjarins er það þröng að hann getur ekki fjármagnað slíka upp- byggingu með rekstrartekjum sínum og ég tel ekki skynsamlegt að taka lán til slíkra framkvæmda eins og vextir eru í dag. Ég vil hins vegar að það verði skoðað vandlega hvort bærinn geti ekki fjármagnað þetta að einhverju leyti með því að losa um fé sem hann á bundið í fyrirtækjum. Það Sjá nœstu síðu Laugardagur 29. ágúst 1987 DAGUR-13

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.