Dagur - 29.08.1987, Blaðsíða 36

Dagur - 29.08.1987, Blaðsíða 36
Menningin Akureyri er kaupstaður með fjölskrúðugu atvinnu- lífi. Hann er iðnaðarbær, útgerðarbœr, verslunar- staður, ferðamannabœr og miðstöð landbúnaðar. Menn líta björtum augum til framtíðarinnar og telja ýmsa möguleika ónýtta í ferðamannaþjónustu, verslun og nýjum fram- leiðslugreinum. En ekki má gleyma grunninum, menningar- og mannlíf- inu. Akureyri hefur löngum verið skólabær og mun standa undir því nafni í framtíðinni ef fram fer sem horfir. En getur Akureyri kallast lista- og menningarmið- stöð? Eða er kannski óþarft að stefna að slíkum titli? Jú, víst hefur Akureyri verið kölluð menningarbær en eitthvað verður að standa að baki slíkri nafnbót. Leikfélag Akureyrar hefur átt hvað mestan þátt í því að sveipa Akureyri Ijóma listarinnar, sér- staklega út á við, líkt og Davíð, Matthías og Nonni hafa gert. Leikfélagið stendur á vissum tímamótum í dag. Reksturinn er ótryggur og þörf er á stækkun Samkomuhússins, en leikfélagið heldur höfði og leggur virkilegan metnað í starfsemi sína. Tónlistarskóli Akureyrar hefur aukið hróður bæjarins á tónlistar- sviðinu. Kennsla þar er í háum gæðaflokki og tekist hefur að fylgjast með stefnum og straum- um eftir því sem efni og aðstæður hafa leyft. Hinar ýmsu nemenda- hljómsveitir skólans hafa ferðast víða og vakið athygli. Hér innan- bæjar hefur húsnæðisskortur ver- ið helsta vandamálið. Fullnægj- andi húsnæði fyrir stærri tónlist- arviðburði er ekki til, án þess að hér sé verið að rýra gildi Iþrótta- skemmunnar sem oft er notuð til tónlistarflutnings. Svipaða sögu má kannski segja um Myndlistarskólann. Ekki það að nemendur hafi ekki aðstöðu til að þjálfa hæfileika sína heldur hefur skortur á sýningarsölum staðið myndlist á Akureyri fyrir þrifum. Sýningarsalir eru ekki til þess að þóknast myndlistar- mönnunum sjálfum heldur fólk- inu sem sækir sýningarnar og vill fá að njóta listarinnar í viðeig- andi umhverfi. Ég veit að mynd- listarmenn á Akureyri eru ekki ánægðir með þróun mála, en þeir þurfa helst að sækja til Reykja- Mannlíf á Akurcyri. Ferðamenn eru oft í meirihluta á Mynd: ÁÞ víkur ef þeir eiga að geta skapað sé nafn í þessari listgrein. Listgreinar verða að fá að þríf- ast á Akureyri. Pótt margt skorti þar á er lista- og menningarlíf furðu fjölbreytt, enda sterkar hugsjónir sem búa að baki. Hér eru kórar, hljómsveitir, leik- klúbbar, félagasamtök og list- hneigt fólk af ýmsu tagi, mannlíf- inu til góðs og þar af leiðandi atvinnulífinu líka. íþróttafélög, skátar, æskulýðs- starf, útivistarhópar; allt hleypir þetta jákvæðum straumum í mannlífið. Forsenda heilbrigðs samfélags og uppbyggingar er að hér sé gott mannlíf. Menning, listir, íþróttir, tómstundir, félags- starfsemi og mannleg samskipti mega ekki gleymast eigi hér að verða manneskjulegt samfélag. Þetta er grunnur sem svo sannar- lega má byggja á. SS Hinn 25. júlí opnaði Olíufélagið h/f nýtt og glœsilegt veganesti V nasUuuii ha íist ny hensinafigtridsla ása/nt veitinigasöln viö I .eirnvei* t ho/tinn \ i<) hö/dtnn n/)/) a a/nia li \kwrvmr nirö ha ttri þjonnstn viö \knrc\rinya Olíufélagið hf

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.