Dagur - 29.08.1987, Page 16
Akureyri 125 ára
Flestar kœrurnar
vegna ölvunar
Yfirlit yfir kærur til embættis
bæjarfógeta á Akureyri og
sýslumannsins í Eyjafjarðar-
sýslu 1961:
1. Ölvun á almannafæri 351
2. Ölvun í heimahúsum 14
3. Ölvun við akstur 26
4. Bifreiðaárekstrar og
bifreiðaslys 195
5. Önnur umferðabrot 320
6. Þjófnaðir og skyld brot 50
7. Líkamsáverkamál 9
8. Áfengissala 4
9. Brot á lögum um þjóðskrá 70
10. Brot á veiðilögum og reglu-
gerð um meðferð skotvopna
17
11. Vegna ágangs búfén. 12
12. Afbrot barna 14
13. Skemmdir á eignum 33
14. Óhlýðni við lögreglu 9
15. Landhelgisbrot 5
16. Brot á dýraverndunarlögum
2
17. Tolllagabrot 3
18. Rannsóknir vegna slysa,
dauðaslysa og bruna 13
19. Ýmis lögreglusamþykktar-
brot 38
20. Lögræðissviptingamál 2
21. Vegna brota á iðnlöggjöf 6
Dagur 10.01.1962
Óvenju glæsileg
iðnsýning
Síðdegis í gær var iðnsýning
opnuð í Amarohúsinu. Mun
það glæsilegasta iðnsýning,
sem haldin hefur verið hér á
Iandi, en áður hafa verið
haldnar mjög myndarlegar
sölusýningar.
Á 5. hæð sýna þessi fyrirtæki:
Gefjun, Saumastofa Gefjunar,
Hekla, Iðunn, Skógerðin, Sjöfn,
Flóra, Smjörlíkisgerð KEA,
Mjólkursamlagið, Kaffibrennsl-
an og Pylsugerð KEA.
Á 6. hæð sýna: Valbjörk,
Speglagerðin, Ámaro, Dúka-
verksmiðjan, Töskugerðin
Glitbrá, Prentverk Odds Björns-
sonar, Vinnufatagerðin Burkni,
Linda, Efnagerð Akureyrar,
Iðja, Hegri, Ofnasmiðjan,
Niðursuðuverksmiðja Kr. Jóns-
sonar & Co., Jón M. Jónsson,
Loreley, ískex og Bólstruð hús-
gögn h.f.
Á báðum hæðum verða seldir
minjagripir og þar verður sérstök
leiðbeiningadeild. Á efri hæðinni
verður veitingasala á stórum
svölum. Dagur 29.08.1962
Fólk flýr bœinn
vegna húsnœðisskorts
Svo er nú komið, vegna þess
hve hið frjálsa framtak ein-
staklingsins er fjötrað síðustu
ár, að orðin eru hin verstu
húsnæðisvandræði hér á Akur-
eyri. Kveður svo rammt að
þessu, að menn eru að flýja
bæinn, vegna þess að þeir fá
hvergi húsnæði. Má nefna
dæmi um þetta, sem ekki
verða véfengd.
Pær stórbyggingar, sem hér
hafa risið að undanförnu, og ekk-
ert nema gott er um að segja,
hafa ekki leyst húsnæðisekluna,
sem hér hefur verið að skapast og
vex stöðugt.
Mál þetta er þegar orðið svo
alvarlegt, að bæjarstjórnin getur
naumast horft á það aðgerðar-
laus. Pað er ekki sómasamlegt,
að yfirvöld bæjarins horfi á það
án aðgerða, að ungt og duglegt
Gamla lögreglustöðin var ekki ýkja mikil bygging. Hér er verið að jafna hana við jörðu.
(Myndas. Dags)
fólk, sem vill eiga hér heima,
verði að flýja vegna húsnæðis-
skorts til annarra landshluta.
Dagur 19.09.1962
Fyrsta sjónvarp
íslenska ríkisins
íslenska ríkið héfur nú eignast
sitt fyrsta sjónvarp. Tækið hefur
verið notað á stofnun fyrir geð-
veikt fólk og talið ósaknæmt og
jafnvel gefa góða raun í sumum
tilfellum! Dagur 10.10.1962
Besti skemmtikrafturinn!
Nýr skemmtikraftur hefur alveg
„slegið í gegn“ síðustu vikurnar,
bæði norðanlands og sunnan,
I enda auglýstur meira en flest
annað. Pessi nýja stjarna á himni
hins fjölskrúðuga skemmtanalífs
í landinu er dáleiddur hani, sem
reykirsígarettur!!
Dagur 10.10.1962
Hvað sem annað
„íslendingur“ skýrði frá því,
nú fyrir skömmu, að Fram-
sóknarmenn væru að leita
undirskrifta í kjördæmamálinu
hér í bænum, og jafnframt
skoraði blaðið á bæjarbúa, í
nafni réttlætisins, að skrifa
ekki undir.
Ritstjóra „ísl.“ er fullkunnugt,
að engra slíkra undirskrifta hefir
verið leitað hér í bæ af hendi
Gærukynning á iðnsýningunni ’62.
(Dagur '62
munnvikinu á sama tíma og
ósannindin vella út um hitt.
Annars er bezta samræmi í
þessu öllu og hæfir hvað öðru:
málflytjandinn, málaflutningur-
inn og málgagnið.
Dagur 04.05.1932
Akureyri 70 ára
70 ára afmælis Akureyrarkaup-
staðar var minnzt með samkomu
í ráðhúsi bæjarins að kvöldi 29.
f.m. Voru þar samankomnir eldri
og yngri bæjarfulltrúar og nokkr-
ir aðrir bæjarbúar, alls um 40
manns. Fór þar fram tedrykkja
og voru margar ræður fluttar.
Heillaóskaskeyti bárust bænum
frá Siglufjarðarkaupstað, Vest-
mannaeyjum og Húsavík.
Dagur 01.09.1932
Inflúenzan komin
Inflúenzan er komin hingað til
bæjarins, og gizka menn á, að
hún hafi flutzt hingað með Súð-
inni, er kom að austan í síðustu
viku. Mun veikinnar fyrst hafa
orðið vart í Menntaskólanum og
leggjast nemendur í heimavist-
inni unnvörpum. Á nokkrum
fleiri stöðum í bænum hefir og
Skyldu þessar hænur falla fyrir hana
Framsóknar, hann fer því hér
vísvitandi með ósannindi, en
ferst það óvanalega klaufalega,
hefir ef til vill verið eitthvað illa á
sig kominn, skinnið, og því mis-
heppnast að hagræða sannleikan-
um í þetta sinn, og réttlætið og
ósannindin hafa lent í einum
graut í litla ritstjóra-höfðinu, en
þetta „ísl.“-réttlæti, sem á að
vera beita til fylgisauka, missir
óneitanlega mesta ljómann, þeg-
ar það lekur út úr öðru íhalds-
sem reykir sígarettur? (Myndas. Dags)
Fólk flýr bæinn vegna húsnæðis-
skortS. (Myndas. Dags)
borið á veikinni, og fylgir henni
mikill hiti. Ekki hefir heyrzt að
sóttvarnaryfirvöld bæjarins hafi
gert nokkrar ráðstafanir til tálm-
unar útbreiðslu veikinnar.
Dagur 09.03.1933
Já og nei
Þeir, sem merkja X framan við já
á atkvæðaseðlinum á morgun,
biðja um afnám núverandi
áfengislaga, biðja um brennivín,
whisky, koníak og romm í viðbót
við Spánarvínin, sem fyrir eru.
Hinir, sem merkja X með
blýantinum framan við nei á
atkvæðaseðlinum á morgun,
segja löggjafarþinginu skýrt og
skorinort, að þeir vilji ekkert
áfengi inn í landið, hvorki
brennivín né romm, whiský né
koníak. Þeir eru óánægðir með
Spánarvínin, en þeir vilja ekki
bæta gráu ofan á svart, með því
að bæta nýjum, sterkum drykkj-
um í skápa vínbúðanna, til sölu
meðal feðra, bræðra, sona,
systra, mæðra og unnusta.
Það er mikil ábyrgð, sem fylgir
því, kjósandi góður, er þú gerir á
morgun í kjörherberginu.
Dagur 19.10.1933
i' Afmælishátíð
Akureyrarkaupstaðar
Dagur segir frá 100 ára afmæli
Akureyrarkaupstaðar í blað-
inu 1. september 1962 og getur
um þrjár merkar sýningar. 28
fyrirtæki sýndu framleiðslu
sína á iðnsýningu í Amarohús-
inu, sögusýning var haldin í
Gagnfræðaskólanum og sýning
á verkum Asgríms Jónssonar í
Oddeyrarskóla.
Þá var nýtt elliheimili vígt og
síðan var hátíðarmessa í Akur-
eyrarkirkju. Eftir hádegi var
samkoma á Ráðhústorgi og
skemmtidagskrá á íþróttavellin-
um.
Hátíðarfundur bæjarstjórnar
var haldinn í Samkomuhúsinu að
viðstöddu fjölmenni. Kvöldhátíð
var síðan á Ráðhústorgi en í raun
stóðu hátíðarhöldin í heila viku,
hófust með opnun Ásgrímssýn-
ingar sunnudaginn 26. ágúst og
sunnudaginn 2. september var
hátíðinni slitið.
100 ára afmælið fór mjög vel
fram. „Sýslumaður hafði sýnt þá
röggsemi að loka Áfengisverzlun
ríkisins hér á staðnum. Var það
bæði viturleg og þörf ráðstöfun.
Drykkjulæti voru því engin til að
lýta þessa fjölmennustu útihátíð,
sem nokkru sinni hefur verið
haldin á Norðurlandi. - Ekki
voru heldur drykkjuveizlur
haldnar á vegum bæjarins, og er
rétt að vekja á því sérstaka
athygli.“
Fyrirsagnir
Hér eru loks nokkrar fyrir-
sagnir úr Degi frá árinu 1963
og hljóma sumar þeirra
kunnuglega enn þann dag í
dag:
Hundruð óseldra bifreiða
Miklar smjörbirgðir í landinu
Sorpeyðingarstöð á Akureyri?
Hvernig bregðast Akureyring-
ar við vaxandi fjölda ferða-
manna?
Þorskur át tvo kjúklinga!
Kýrnar eru harðir húsbændur
Svartir skemmta á Akureyri
16-DAGUR
Laugardagur 29. ágúst 1987