Dagur - 29.08.1987, Qupperneq 19
Akureyri 125 ára
egir, sérstaklega í augum barnanna.
skriður kemst á þetta mál, er
Fegrunarfélag Ákureyrar undir
formennsku Sigurðar L. Pálsson-
ar, menntaskólakennara, beitir
sér fyrir því að koma upp grasa-
deild í sambandi við Lystigarðinn
og hófust þær framkvæmdir 1957,
eða fyrir 5 árum. Síðan hefur
Lystigarðurinn reynt að auka og
efla grasasöfn garðsins, og er nú
svo komið að meginþorri allra
íslenzkra jurtategunda vex í
garðinum eða 402 tegundir af
rúmum 430, sem talið er að vaxi
villt hér á landi. Pá eru einnig um
14 hundruð tégundir erlendra
plantna ræktaðar í garðinum.
Flest af þessum tegundum dafnar
vel. Eru þær þó ættaðar víðs veg-
ar að úr heiminum, eða frá
Grænlandi til Suður-Ameríku og
frá Kína og Tíbet til Alaska. Síð-
astliðið sumar fékk garðurinn
t.d. rúmar 20 tegundir frá Græn-
landi. Er það ætlunin að auka
grasasöfn garðsins eftir föngum á
næstunni. Gæti garðyrkjan í
landinu haft mikið gagn af því að
garðyrkjustöðvarnar notfærðu
sér reynslu Lystigarðsins og
tækju upp ræktun úrvalstegunda
skrautjurta og runna, sem reynzt
hafa nægilega harðgerir fyrir
íslenzka staðhætti. Er mikill
skortur á að fólk geti fengið
skrautrunna og fjölær blóm í
skrúðgarða sína. Enda er það eitt
af verkefnum grasagarða erlendis
að stuðla að framförum í skrúð-
garðarækt almennings. Hefur
Lystigarður Akureyrar þegar
komizt í samband við nokkra
grasagarða erlendis og getur
fengið þaðan ókeypis fræ og ýms-
ar upplýsingar.“
Danir eru frumkvöðlar í rækt-
un trjáa og skrautblóma á Akur-
eyri og hefur starfi þeirra verið
haldið vel við. Akureyri, sérstak-
lega eldri hverfin sem von er, lít-
ur út sem einn samfelldur skrúð-
garður á sumrin, svo duglegir
hafa bæjarbúar verið við að
rækta garða sína og byggja upp
það sem búið var að eyða.
Á aldarafmæli Akureyrar-
kaupstaðar 29. ágúst 1962 var
Lystigarðurinn upplýstur og
í Lystigarðinum er saman komin mest öll Flóra íslands og einnig er fjöldi erlendra plantna ræktaður ■ garðinum.
Mynd: RÞB
Mynd: RÞB
verður sagan endurtekin nú á 125
ára afmælinu. Dagur segir svo frá
1. sept. ’62: „Lystigarðurinn á
Akureyri var skrautlýstur hátíðis-
dagana. Þangað safnaðist svo
mikill mannfjöldi á kvöldin, að
tæpast varð þverfótað þegar flest
var. Akureyringar dáðust að
þessum stað og nutu þess í ríkum
mæli, að honum var á þennan
hátt sómi sýndur - og var sannar-
lega mál til komið.“
Um næstu áramót sameinast
Lystigarðurinn og Náttúrugripa-
safnið í Náttúrufræðistofnun og
hefst þá væntanlega nýtt skeið í
sögu þessa víðfræga garðs. SS
Hátíðardagskráin
8.20 Akureyrarflugvöllur:
Móttaka forseta íslands.
Kl. 9.30 Fiðlarinn Skipagötu 14:
Móttaka utanbæjargesta.
Kl. 9.45 Bœjarstjórnarsalur Geislagötu:
Hátíðarfundur hjá bœjarstjórn Akureyrar.
Kl. 10.30 í Akureyrarkirkju:
Hátíðarsamkoma.
Kl. 12.00 Hótel KEA:
Hádegisverður fyrir gesti í boði bæjarstjórnar.
Kl. 14.00 Skrúðganga leggur af stað frá
Hamarkotstúni við Hamarstíg.
Kl. 14.00 Skrúðganga leggur af stað frá Undirhlíð
norðan Veganestis í Glerárhverfi.
Kl. 14.30 Síðdegisdagskrá í göngugötu, flötinni
fyrir neðan samkomuhúsið og á Pollinum
framan við Torfunefsbryggju.
Kl. 18.45 Laxdalshús:
Kvöldverður fyrir aðkomugesti.
Kl. 20.30 íþróttaskemman á Oddeyri:
Hátíðarsýning Leikfélags Akureyrar.
Kl. 21.00 Kvölddagskrá í göngugötu.
Kl. 22.00 Lystigarður:
Garðsamkoma.
Kl. 14-22 íþróttahöll:
Iðnsýning Norðurlands.
Laugardagur 29. ágúst 1987
DAGUR-19