Dagur - 29.08.1987, Qupperneq 31
Akureyrarkirkja
- stutt ágrip
Pegar íbúar Akureyrar
voru orðnir mun fleiri en
aðrir íbúar Hrafnagils-
sóknarfyrir miðja 19. öld,
var farið að spá í kirkju-
byggingu í bœnum. Akur-
eyringum þótti langt að
þurfa að sœkja kirkju á
Hrafnagili. Bœnaskrár um
kirkju á Akureyri hlutu
ekki náð fyrir eyrum kon-
ungs og ekkert varð úr
þeim áformum að flytja
Lögmannshlíðarkirkju til
Akureyrar og slá sóknun-
um saman.
Loks var veitt leyfi til kirkju-
byggingar 1860 og var því efnt til
samskota um sóknina. Á því
merka ári 1862 var hafist handa
og gekk byggingin vel því þann
28. maí þá um vorið var reisu-
gildið haldið og var það eftir-
minnileg hátíð. Kirkjan var síðan
vígð sumarið 1863.
Mörgum þótti hneykslanlegt
að turn kirkjunnar skyldi snúa í
austur og var henni breytt nokkr-
um árum síðar og turninn settur á
vesturendann. Þannig blasti hin
veglega bygging við bæjarbúum
næstu áratugina og í þessari
kirkju fóru fram guðsþjónustur í
77 ár, eða þar til hin nýja kirkja
var vígð þann 21. nóvember
1940. Hefur sú bygging æ síðan
verið sterkt einkenni á kaup-
staðnum og glæsilegt hús í alla
staði. Einnig hefur ný kirkja,
Glerárkirkja, sprottið af teikni-
borðinu og er þar bæði um tíma-
bæra og tignarlega byggingu að
ræða. SS
Trygging á heimavelli
íþróttamenn úr öllum greinum þekkja mikilvægi þess að leika
á heimavelli. Þar eru sigurlíkur þeirra mestar því þeir
gjörþekkja allar aðstæður og vita að áhorfendur bregðast þeim ekki.
í tryggingum gilda nákvæmlega sömu lögmál. Þú átt að
tryggja hjá því félagi, sem þú þekkir best til,
- hjá fólki sem þú veist að bregst þér ekki.
Hafðu samband við næsta umboðsmann okkar á Norðurlandi
og rektu þín tryggingamál á heimavelli.
Við tryggjum að þú tapar ekki leik.
Hvammstangi:Dagbjartur Jónsson, sími 95-1592
... Blönduós: Sigurður þorsteinsson, sími 95-4192
Skaguströnd: Dagný Sigmarsdóttir, sími 95-4895
Sauðárkrókur: Ragnar Pálsson, sími 95-5264
'T t Siglufjörður: Hermann Jónasson, sími 96-71792
Ólafsfjörður: Grímur Bjarnason, sími 96-62225
Guðni Aðalsteinsson, sími 96-62408
Akureyri: Þórarinn Jónsson, sími 96-22244
Grímsey: Alfreð Jónsson, sími 96-73103
Húsavík: Reynir Jónasson, sími 96-41337
Halldóra Harðardóttir, sími 96-41334
Þórshöfn: Björg Leósdóttir, sími 96-81234
Tryggingarfélag í einu og öllu.
Laugardagur 29. ágúsþ1987 DAGUR- 31