Dagur - 29.08.1987, Blaðsíða 35
Stórbruni
á Oddeyri
Að kvöldi hins 18. október 1906
verður stórbruni á Akureyri og að
þessu sinni eru það 7 hús á
Oddeyrinni sem brenna. Alls
misstu 79 manns heimili sín og má
afþví sjá að víða bjuggu margir í
sama húsi. Varð þessi bruni til
þess að þœr raddir urðu œ hávœr-
ari að hœtta skyldi byggingu timb-
urhúsa en þess í stað huga að
byggingu húsa úr steinsteypu ogfá
hjálp erlendis frá þar að lútandi.
Tvö af veglegustu húsum
bæjarins brunnu í eldsvoðanum,
hús Jósefs Jónssonar og hús Hall-
dórs Jónssonar. Einnig brann
geymsluhús Sigurðar Bjarnason-
ar, vélbátur hans, hús Kolbeins
Árnasonar, hús Magnúsar
Blöndals, vörugeymslur hans og
hús Davíðs Ketilssonar.
Eldurinn var kominn að Gler-
árgötu, sem var mjó gata, og var
nú allt kapp lagt á að verja húsin
handan hennar. Það tókst og
hjálpaði breytt vindátt þar til, en
eíla hefði nær öll Oddeyrin
brunnið.
Bæjarstjórn Akureyrar efndi
til samskota til hjálpar þeim sem
misstu aleiguna í brunanum og
bárust margar höfðinglegar
gjafir. Til dæmis gaf Túliníus
kaupmaður 50 krónur og héraðs-
læknirinn á Siglufirði lét 30 krón-
ur af hendi rakna. SS
*
★1988
★ Komið í hinn glæsilega sýningarsal okkar og ræðið við sölu-
mennina um nýjungar í Mitsubishi bílunum. Þar eru allir
aukahlutir innifaldir í verðinu.
★ Nú er meira áríðandi en áður að kaupa réttu bílana, landið
er að fyllast af bílum og endursalan verður sífellt erfiðari.
Notaðir Mitsubishi bílar stoppa
sjaldnast lengi á bílasölunum -
spyrjið fagmennina.
★ Verið velkomin í
Bílasalann að
Tryggvabraut 10 -
Við tökum vel á móti
[hjhekiahf
■ ■WlMwl 91«
Tryggvabraut 12. Box 51
Telex 2337.600 Akureyri.
UaMgard^gur^O^ágúst. .19.87
DAGUR-35
nu^u — -PO