Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Fréttir Klúður vegna raðsmíðaskipa: Öskiljanlegt að ekki haf i enn verið gengið f rá kaupunum segir Halldór Asgrímsson - sáralítið greitt af rúmum milljarði „Þaö er rangt að það hafi verið gefm loforð um meðalkvóta til þess- ara skipa. Þetta var í minni tið sem sjávarútvegsráðherra og ég féllst á þaö eftir mikinn pólítískan þrýsting að taka þessi skip inn í kerfiö með sérstökum hætti þar sem þau fengu ákveðinn kvóta. Það var aldrei gert ráð fyrir þessum skipum inni í kvóta- kerfinu," segir Halldór Ásgrímsson sem var sjávarútvegsráðherra þegar svokölluð raðsmíðaskip voru seld með ríkisábyrgð. Kári Snorrason, útgeröarmaður Nökkva HU, sem er eitt þessara skipa, sagði að í útboði á skipunum hefði á sinum tíma verið lofað hærri kvóta en raun varð á. Halldór þver- tekur fyrir aö hafa samþykkt slíkt. Eins og DV skýrði frá hefur í sum- um tilvikum enn ekki verið greidd króna af láni sem Ríkisábyrgðasjóð- ur stendur í ábyrgð fyrir. Alls voru lánuð 75 prósent af smíðaverði skip- anna, sú upphæð er á verðlagi dags- ins í dag um 1100 milljónir sem lítið sem ekkert hefur verið greitt af. Öll skipin hafa verið í góðum rekstri í sjö ár án þess að mál séu komin á hreint. „Ég botna ekkert í því hvernig í ósköpunum stendur á því að enn er ekki búið að ganga frájpessum kaup- um. Skipin voru boðin til sölu og keypt með ákveðnum fiskveiðirétt- indum,“ segir Halldór. Ríkisendurskoðun gerði athuga- semdir við það 1992 að þá hefði ekki enn verið gengið frá þessum kaupum og vanskil hlaðist upp. Þá staðfesti Sigurður Þórðarson ríkisendurskoð- andi að stofnun hans hefði áður gert fjárlaganefnd Alþingis grein fyrir máhnu. Þar sem Ríkisábyrgðasjóður var undir Seölabankanum fram á þetta ár er eðlilegt aö spyrja hvort sú stofn- un beri ekki ábyrgð á málinu. „Seðlabankinn vistaði þennan sjóð en bar ekki ábyrgð á honum að öðru leyti. Allar ákvarðanir vegna sjóðs- ins eru teknar pólítískt," segir Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabanka- stjóri og segir að stjórn sjóðsins heyri undir fjármálaráðherra. Raðsmíöaskipin: Göngum í málið í næstu viku - segir ráðuneytisstjórinn í íjármálaráöuneytinu „ Það vekur mjög undrun mína að ekki skuli enn búið að ganga frá kaupum á þessum skipum. Ég gerði um þetta fyrirspurn á Alþingi í febrúar 1991,“ segir Ragnar Arn- alds alþingismaður um raðsmíða- skipin Gissur ÁR, Nökkva HU, Jöf- ur ÍS og Oddeyrina EA. í svari þáverandi íjármálaráð- herra, Ólafs Ragnars Grímssonar, kemur fram að áhvílandi skuldir á skipunum hjá Ríkisábyrgðasjóði voru í febrúar 1991 samtals 1,1 milljarður eða að núvirði 1,4 millj- arðar. í svari ráðherrans kemur jafnframt fram aö máliö sé mjög flókið og ekki hægt að skýra frá niðurstööum þess. Raðsmíðaskipin, sem hafa verið að sem nemur 3/4 af heildarverði endurgjaldslaust í rekstri, voru samkvæmt heimildum DV seld langt undir markaðsverði. Smíði skipanna hófst 1986 sam- kvæmt pólitískri ákvörðun. Verð skipanna var dálítið mismunandi enda byggð hjá þremur skipa- smíðastöðvum og beinlínis í at- vinnubótaskyni. Nú sjö árum síðar eru tvær þeirra farnar á hausinn en ein á í miklum erfiðleikum. Niöurstaðan er sú aö saga þessa verkefnis geymir þær staðreyndir að hundruð milljóna voru lögö í það úr ríkissjóði í upphafi í niður- greiðslur auk þess sem rúmur milljarður var lánaður til að koma skipunum út. Þá hefur ekkert verið greitt af höfuðstól lána, hvorki vextir né afborganir. „Við ætlum að ganga í málið. Við berum ábyrgð á málefnum þessa sjóðs. Ég verö aö fara ofan í það mál hvers vegna ekki hefur verið í þaö gengið að innheimta. Viö munum líta á reikninga sjóðsins í næstu viku og þá er spurningin sú hvernig þessi krafa er tilkomin," segir Magnús Pétursson, ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu. Harald Anrésson hefur verið starfsmaður Ríkisábyrgðasjóðs frá upphafi. Hans hlutverk hefur verið að sjá um daglegan rekstur hans. Hann neitaði í samtali við DV að tjá sig um málefni hans aö svo stöddu. Sigríður Þorsteinsdóttir fjölskylduráðgjafi, Björn Grétar Sveinsson, formaö- ur Verkamannasambandsins, og Bryndis Hlöðversdóttir, lögfræðingur ASÍ. DV-mynd BG Alþýðubandalagiö: Nýtt f élag stof nað „Við neitum að taka þátt í deilum milli gömlu félaganna í Alþýöu- bandalaginu. Viö viljum fá fleira fólk, sem stendur utan við deilurnar í flokknum, til starfa. Markmið okk- ar eru að fá kjaramál tekin upp í Alþýðubandalaginu og berjast gegn aðfór að menningunni," segir Bryn- dís Hlöðversdóttir, lögfræöingur ASÍ. Hún er meðal aðstandenda nýs Al- þýðubandalagsfélags sem stofnað verður í dag. Mikið drasl er ennþá á Höskuldarvöllum þrátt fyrir að rúmir tveir mánuðir séu síðan hátíðin var haldin. DV-mynd Ægir Már Aöstandendur hátíöarinnar á Höskuldarvöllum tapa enn: Skemmdarverk kosta um hálfa milljón króna - ekki enn farið aö hreinsa drashð á svæðinu Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Það voru mistök að vera ekki bú- inn að taka allt saman niður og koma því í burtu. Það verður farið í að þrífa draslið upp en við höfum veriö í góðu sambandi við landeigandann um það mál. Við fórum og þrifum allt svæðið upp með ruslasugum og var allt rusl flokkað niður eftir hátið- ina en síðan voru klósettin og húsin, sem var hægt að taka niður í eining- um, skilin eftir. Síöan hafa skemmd- arvargar komist í þau og brotiö allt saman niður en tjónið er metið upp á rúma hálfa milljón. Þessi mistök eru til þess að læra af þeim en við höfum haft rúma tvo mánuði til þess að taka þau niður,“ sagði Kristján Már Hauksson, einn af skipuleggj- endum Woodstock-hátíðarinnar sem var haldin fyrstu helgina í júlí á Höskuldarvöllum í Grindavík. Talið er að skemmdarvargarnir hafi stolið 12 klósettum og brotið sex, ásamt því að eyðileggja húsin sem þau voru í. Þegar blaöamaður DV var á svæðinu var ekkert byrjað að hreinsa rushð en mikið drasl hefur fokið um svæðið en á svæðinu eru einnig nokkur hundruð trébretti. Aðstandendur hátíðarinnar von- uðust til að fá 2.500 manns á hátíðina en fengu aöeins 1.400 og talið er að verulegt tap hafi verið á henni. Aö sögn aðalskipuleggjanda, sem vildi ekki láta nafns síns getið, hefur verið samið við alla aðila sem komu ná- lægt hátíðinni. Þeir fengu mun minna en gert var ráð fyrir í upp- hafi þar sem tapið var mikið. Heilahimnubólga: Hættaá faraldri - segir landlæknir Margt bendir til þess að heila- himnubólgufaraldur skelh yfir landsmenn næstu daga og vikur enda hefur orðiö skyndileg aukn- ing á heilahimnubólgu að und- anfornu. Ekki er búið að vinna nógu gott bóluefni gegn þessari tegund af sjúkdómnum og getur heilahimnubólgan þvi orðið lífs- hættuleg ef sjúkdómurinn breið- íst út. „Ef eitthvað er frábrugðið venjulegum hitasóttum, til dæm- is skert meövitund, stirðleiki, stífni í hnakka eða útbrot, verður fólk aö leita strax til læknis. Menn geta veikst mjög snögglega og þurfa þá virkilega að halda vöku sinni en í flestum tilfellum tekur þetta töluverðan tíma,“ segir Ólafur Ólafsson landlæknir. 21 sjúkUngur hefur greinst með heilalúmnubólgu hér á landi á þessu ári. 'v Stuttar fréttir I haust verður nýtt skólahús- næði fyrir Hvaleyrarskóla í Hafn- arfirði tekiö í notkun. Um er að ræða fyrri hluta annars áfanga sem byrjað var á í janúar. RUV greindi frá þessu. Hreppsnefnd Borgarfjarðar eystra hefur áhyggjur af heil- brigöisþjónustu á staðnum en henni hefur veriö sinnt frá Egils- stöðumeinu sinni í viku í sumar. Skv. RUV er húsnæöi í boði fyrir hiúkrunarfræðing sem vtil sefj- ast að í Borgarfirði. Verknámið i hætfu Forstöðumenn Fjölbrautaskóla Suðurlands og Sjúkrahúss Suð- uðurlands leita nú leiða til að bjarga verknámi 7 sjúkraliða- n,efla;.Skv- Bylgjunni fengust ekkt fjarmunir til verknámsins. Flug herþotna Varnarliðsins yfir Njarðvik hefur aukist að undanfórnu. Suöumesjafi-éttir nafa eftir íbúum að ástandið sé óþolandi vegna hávaðans. Alls 36 skip frá íslandi eru nú í Smugunni, 10 eru á leiö heim en 6 em á útleiö. Óöinn kom um miðnætti á miöin eftir olíutöku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.