Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Fréttir Hafharfjörður: Heimsókn þýsku kafbátanna Erum ekki að klekkja á Guðmundi Árna - segir Þorgils Óttar „Mér finnst óeölilegt hvemig Guðmundur Árni hefur hagað sér og ég veit að kjósendum finnst það líka. Þessi umræöa styrkir Guömund Áma ekki í kosning- Fyrsta kurteisis- heimsóknin í 55 ár unum í vor en ég skal ekki segja hvemig kjósendur og alþýðu- flokksmenn hugsa. Ég lít á þessi mál sem spillingu enda gagn- rýndi ég kratana fyrir spillingu allt síðasta kjörtímabil," segir Þorgils Óttar Mathiesen, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði. Guömundur Ámi Stefánsson félagsmálaráöherra og sam- flokksmenn hans í Hafnarfiröi og Kópavogi hafa aö undanfórnu haidið því fram að umfjöllun fjölmiðla um málefni Hafnar- fjaröarbæjar sé runnin undan rifjuin nýja meirihlutans í Hafn- arfirði. „Á þessu stigi ætía ég ekki að fella neinn dóm um það hvort spiliing hafi verið í stjómartíð alþýöuflokksmanna í Hafnar- firði. Ég geri það þegar ég hef dæmin í höndunum. Alþýöu- flokkurinn hefur gengiö gegnum erfiðieika núna og þvi verður staöa Guðmundar Árna bara að sýna sig í kosningunum," segir Magnús Jón Ámason, bæjar- stjóri í Hafnarfiröi, þegar málið er borið undir hann. Magnús Gunnarsson, forseti bæjarráðs, segir að meirihlutinn hafi ekki gert annað en að svara beinskeyttum spumingum fréttamanna og sagt satt og rétt frá. Tilgangurinn hafi ekki verið að kiekkja á Guðmundi Árna eins og kratamir hafi haldið fram. Beöið er skýrslu iöggiltra end- urskoðenda um fjármál Hafnar- fjarðarbæjar og verður hún kynnt meirihiutanum í bæjar- stjórn eftir helgi. Atskákmót um helgina: Hinnaldni skákmeistari Bronstein meðal þátttakenda Hiö áriega at- skákmót Skák- sambands ís- lands fer fram um þessa helgi í húsnæði Iðn- skólans í Reykjavík. Auk sterkustu skák- manna ísiands veröur þar hinn frægi skákmeist- ari David Bronstein sem varö sjö- tugur á þessu árL Bronstein er i hópi kunnustu núiifandi skákmeistara í heimin- um Þá er hann ekki síður frægur skákrithöfundur. David Bronstein tefldi einvígi um heimsmeistaratitiiinn við Botvinnik árið 1951. Bronstein hafði vinning yfir aö ioknum 22 skákum af 24. Hann tapaöi hins vegar 23. skákinni og lauk einvíg- inu með jafntefli. Það dugði Bot- vínnik til að halda heimsmeist- aratitlinura. Þess má til gamans geta að árið 1974 tók Bronstein þátt í Reykjavíkurskákmótinu og átti fimmtugsafmæli meðan á því stóð. Var honum haldin hér mikil veisla af því tileftii. Varðandi atskákmótið þá ræðst það um helgina hvaða fjórir skák- menn munu taka þátt i lokaslagn- um sem fer fram árlega í beinni útsendingu í sjónvarpinu. - fyrriheHnsóknirþýskrakafbátaísöguleguljósi Sigluhörður: Aldrei fleiri ferðamenn Ferðamenn sem lagt hafa leið sína til Siglufiarðar hafa aldrei verið fleiri en á þessu ári og Björn Valdimarsson bæjarstjóri er ekki í vafa um að átakið „island sækj- um þaö heim“ hefur skilað sér vel til bæjarins. „Þaö er líka vegna þess að viö skipulögðum sumarið mjög vel. Strax í febrúar vorum viö búnir að setja niður dagskrá fyrir nær aliar helgar sumarsins og ávallt var boðið' upp á eitthvað skemmtiiegt, s.s. síldarsöltun, gönguferðir í Héðinsfjörð, harmónikuhátíð og fleira þess háttar. Þetta auglýstum við síðan mjög vel,“ segir Björn. Hann segir að Síldarminjasafn- iö sé einnig greinilega núkið að- dráttarafl fyrir ferðamenn. í safn- ið komu fram að verslunar- mannahelgi um 1800 manns en þá helgi fylltist bærinn af fólki sem kom til að vera á Síldarhátíð. Utgáfa í flokki ævisagna og viðtalsbóka svipuð og 1 fyrra: Nærmynd af Óla Kr., for- sljóra OLÍS, og æsku- minningar Jakobínu Útgáfa í flokki ævisagna og svo- kaliaðra viðtalsbóka virðist ætla aö verða svipuð og í fyrra. Handrit að slíkum bókum eru að skila sér til forleggjaranna og sumar bókanna þegar komnar í prentun. Skjaldborg mun gefa út bók um Óla Kr. Sigurðsson heitinn, fyrrum forstjóra Olís. Höfundur bókarinnar er Bjarki Bjarnason kennari. Byggir hann á samtölum við samferðamenn Óla, fjölskyldu, vini og samstarfs- menn svo úr verður eins konar nær- mynd. Á sama staö kemur út sjálf- sævisaga Karls Kortssonar, dýra- læknis á Hellu til margra ára. Karl, sem er þýskur, skrifar bókina á móð- urmáli sínu en Óskar Ingimarsson þýöir með aðstoð Ásgeirs Guðmund- sonar sagnfræðings. Þá er einnig væntanleg bók eftir Kristján Péturs- son, fyrrum tollara, um nútímasaka- mál á íslandi. Er fjallað um mál sem hann vann að, bæði upplýst og óupp- lýst. Þá er ónefnd 6. bókin í flokknum Betri helmingurinn, um konurnar á bak viö manninn. Þar er meöal ann- arra rætt við Sigrúnu Magnúsdóttur borgarfulltrúa, Jóhönnu Kristveigu Ingólfsdóttur, eiginkonu Matthíasar Johannessens og Mínervu Bjöms- dóttur, eiginkonu Geirmundar Val- týssonar. DV hefur fregnað að hjá Máli og menningu komi út bók um líf og starf leikarahjónanna Erlings Gíslasonar og Brynju Benediktsdóttur sem þau skrifa í samvinnu viö Ingunni Þóru Magnúsdóttur. Þá munu æskuminn- ingar Jakobínu Sigurðardóttur vera væntanlegar en hún hafði klárað þær skömmu áður en hún dó. Skáldið sem sólin kyssti heitir ævi- saga Guðmundar Böðvarssonar, skálds og bónda á Kirkjubóli, sem SOja Aðalsteinsdóttir skrifar og Hörpuútgáfan gefur út. Þar á bæ kemur einnig út saga HaOdóru Briem eftir Steinunni Jóhannesdótt- ur. HaUdóra, dóttir séra Þorsteins Briem, bjó lengst af í Svíþjóð og var fyrst íslenskra kvenna til að leggja stund á byggingarlist. Halldóra lést skömmu eftir að Steinunn lauk við bókina. Hjá Forlaginu kemur út þriðja bók- in í flokki svokallaðra forsetabóka en Gylfi Gröndal skrifar um Svein Björnsson forseta. Þá kemur einnig út bók um ævi Aðalheiðar Hlínar Spass, eins af stofnendum og fyrsta formann verkakvennafélagsins Sóknar. Skrifar Þorvaldur Kristins- son um ævi Aðalheiðar. Hjá öðrum forlögum, Iöunni, Vöku-HelgafeUi og AB voru bækur í flokki ævisagna og viötalsbóka í und- irbúningi en of snemmt þótti að full- yrða um útgáfu þeirra. Þýsk flotadeUd tveggja skipa og þriggja kafbáta er stödd hér á landi í kurteisisheimsókn. Skipin liggja við Miðbakka Reykjavíkurhafnar og gefst almenningi kostur á að skoða þau í dag, frá klukkan 13 til 17. . Nú eru liðin 55 ár frá seinustu kurt- eisisheimsókn þýskra kafbáta. Þá voru það kafbátar þýska einræðis- ríkisins en nú eru það kafbátar lýð- ræðisríkis og bandamanna okkar í Nato. Það var síðla sumars 1939 sem tveir þýskir kafbátar komu hingað. Frá þessu er greint í bók Þórs White- heads sagfræðings, Ófriður í aðsigi. Kafbátaforingi í þeirri för var Hans- Georg von Friedeburg og bauð hann Hermanni Jónassyni forsætisráð- herra að skoða bátinn. Nafn von Friedeburgs komst síðar á spjöld sög- unnar þegar hann varð yfirmaður þýska kafbátaflotans árið 1943 og tveimur dögum fyrir uppgjöf Þjóð- verja æðsti yfirmaður þýska flotans. Von Friedeburg endaði líf sitt fyrir eigin hendi í stríðslok en þýskir for- ingjar litu ekki á slíkt sem sjálfsmorð heldur „frelsi dauðans". Þór skrifaði einnig bókina Stríð fyrir ströndum og í henni kemur fram að 19. september 1939 hafi þýski kafbáturinn U-30 siglt inn til Reykja- víkurhafnar og lagst að bryggju. Til- efni þeirrar heimsóknar var allt ann- aö en þeirrar fyrri og heimsókn þýsku kafbátanna í dag. í bók Þórs er greint frá heimsókn U-30 og rakin sú atburðarás sem varð til þess að báturinn kom hingað til lands. Þar kemur fram að það var U-30 sem sökkti breska farþegaskipinu Athenia við Bretlandsstrendur en lengi vel kenndu Þjóðverjar Bretum um að hafa sökkt því skipi. Eftir það verk elti kafbáturinn uppi annað skip og fóru skipverjar af U-30 um borð í skipið til aö koma sprengiefni fyrir í því. Áhöfn skipsins var hins Almenningi gefst kostur á að skoða þýsku kafbátana i dag en 55 ár eru liðin frá því þýskir kafbátar komu hingað í vináttuheimsókn. Á innfelldu myndinni, sem Skafti Guðjónsson Ijósmyndari tók árið 1939, má sjá Hans- Georg von Friedeburg kafbátaforingja í brú kafbáts síns, U-27. Von Friede- burg varð æðsti yfirmaður þýska flotans tveimur dögum fyrir uppgjöf Þjóð- verja. DV-mynd Brynjar Gauti vegar tekin til fanga. í sömu mund og skipverjarnir komu sprengiefninu fyrir í skipinu gerðu breskar orr- ustuflugvélar árás á það og særðu þrjá þýska sjóliða. Yfirmaður U-30, Fritz-Julius Lemp, tók þá ákvöröun að sigla til íslands því einn sjóhðanna særðist alvarlega. Lagðist hann hér að bryggju og var sjóliðinn fluttur í land en kafbáturinn hélt leiðar sinn- ar. Eftir stríð upplýsti svo sjóliðinn, Adolf Schmidt, að U-30 hefði sökkt Atheniu. Seinasta viðkoma þýsks kafbáts hingað til lands er líklega koma þýsks kafbáts sem Bretar hertóku suður af landinu, aö líkindum áriö 1941. Sá kafbátur kom að landi í Hvalfiröi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.