Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
Utlönd
Nektarmyndln af Karli prinsi komin undir smásjá breskra sérfræðinga:
Kynfæri Karls voru
máð út af myndinni
- franska tímaritið Paris Match hefur guggnað á að birta myndir af prinsinum ‘
Útgefendur þýska dagblaösins Bild
viðurkenna að þeir hafi látið tækni-
menn sína má kynfæri Karls Breta-
prins út af frægri nektarmynd sem
birtist í blaðinu fyrr í vikunni.
Hjá Bild segja menn að myndin
hafl verið óþægilega skýr neðan til
og því hafi verið gripið til þess ráðs
að laga hana á þann veg að rétt sæist
móta fyrir kynfærunum.
Með þessu móti vonast þeir hjá
Bild til að sleppa meö lægri sektir
fyrir birtingu myndarinnar. Af hálfu
Karls er veriö að undirbúa málsókn
á hendur blaðinu og þykir lögmönn-
um einsýnt að prinsinn fari þar með
sigur af hólmi.
Franska tímaritið Paris Match
keypti myndir teknar í sama sinn og
myndin í BUd og greiddi stórfé fyrir.
Töluverðrar öfundar gætir hjá breskum blaðamönnum vegna birtingar þýska
blaðsins Bild á nektarmyndinni af Karli prins. The Sun hefur þó látið eftir
sér að birta mynd af tvifara Elísabetar drottningar að rýna í Bild.
Ekkert verður af birtingu myndanna
þar eftir að ljóst var hvernig prinsinn
og hans menn ætla að halda á málum
gagnvart Bild.
Hjá Paris Match fóru menn flatt á
birtingu mynda af elskhuga Söru
Ferguson uppteknum við að sjúga á
henni tærnar. Frakkarnir ætla ekki
að greiða öðru sinni sektir fyrir sama
brotið.
í Bretlandi standa blöðin einhuga
með Karli. Þykir gæta þar öfundar
vegna þes aö Þjóðverjarnir urðu fyrri
til við að koma nekt Bretaprins á
prent. The Sun birti þó í gær mynd
af tvífara Elísabetar II. drottningar
að rýna í Bild. Þar á drottning að
kvarta undan því að hún sjái bara
alls ekkert. Nær hitanum fara Bret-
amir ekki.
Tveir milljarðar í risalottópotti
„Það hefur stórlega dregið úr pen-
ingagjöfum til bágstaddra í Rúanda.
Allir virðast leggja fé sitt í lottóið,"
segir talsmaður hjálparstofnana í
Þýskalandi og ber sig aumlega vegna
þess að Þjóðverjar eru almennt
gengnir af göflunum í lottóæði.
í dag verður dregið um stærsta
lottópott sem um getur í sögunni.
Þegar síðast fréttist voru komnir um
tveir milljarðar íslenskra króna í
pottinn og var hann enn að þenjast
út. Orsök æðisins er að í tíu vikur
röð hefur potturinn ekki gengið út.
Lottóæðið þýska hefur því smám
saman verið að magnast og aukast
og er nú búið að heltaka gjörvalla
þjóðina.
Umferðaröngþveiti hefur skapast á
landamærastöðvum því fólk frá ná-
lægum löndum veðjar unnvörpum á
þýska risapottinn. Þannig voru 1
gærkvöldi víða langar biðraðir bíla
við landamærin og fólk æst að kom-
ast í ótrúlegan ævintýraheim þýska
lottósins.
Spámenn af ýmsu tagi hafa þegar
greint frá réttu tölunum opinberlega
og vitna þar til stjamanna. Þá hefur
komið upp svokallað „lottóólæsi" hjá
þeim sem aldrei hafa verið með áður
og veröa nú að læra listina.
Nærri lætur að hver Þjóðverji, sem
vetlingi getur valdið, hafi þegar
keypt sér aðgang að sigurlaununum.
Þeir stórtækustu veðja jafnvel öllum
eigum SÍnum. Reuter
í< *
SÍStf:
■: r.V » :
Þjóðverjar bíða þess nú í ofvæni að dregið verði í lottóinu í kvöld. Um risapott er að tefla, þann stærsta í sögu lottós
í heiminum. Þjóðverjar hafa þvi siðustu daga verið helteknir af lottóæði. Nágrannaþjóðirnar hafa og tekið sóttina
og bíða í löngum röðum við landamærin eftir að komast yfir nokkrar raðir.
Símamynd Reuter
Kauphalllr erlendis:
Hækkun í
Hong Kong
Hang Seng hlutabréfavísitalan í
Hong Kong fór vel yfir 10.000 stig í
vikunni og hefur ekki veriö hærri í
hálft ár. Reyndar kom örlítill aftur-
kippur á fimmtudag sem rakinn var
til minni áhuga stórra erleridra fjár-
festa.
í Tokyo gerðist það hins vegar á
fimmtudag að Nikkei vísitalan fór
niöur fyrir 20.000 stig í fyrsta sinn í
fjóra mánuði. Ástæðan er einkum
rakin til óvenju líflegrar spákaup-
mennsku.
Af Rotterdam-markaði er það að
frétta að 92 okt. bensín lækkar enn,
nú komið í 160 dollara tonniö en var
í 200 dollurum fyrir mánuði. Hins
vegar hafa aðrar bensíntegundir
hækkaölítillegaívikunni. -Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis |
Dow Jones
3800 3700
r
3600 3902,4
■m:f j j a s
3300 FT-SE100
3200
3100
3000 ^
2900|
2800.
2700 3180,0
J J Á S
—--------------rr
i
•2000~
1
10150,98
J J Á..........S
j 310 U 305y:
300 '
295 / \Jf
290ff 285 V
280 302,8
■ y J Á s
200 : // //
y
182,71
j J Á S
1 BBI
250
15
150 182,5 $/t J J Á S s/10 16,48 tunna J J A S
lOV
Stuttar fréttir dv
ÓsigurBosníumanna
Bosníumenn nrisstu tvær her-
deildir í átökum við Serba í gær.
Bardagar eru þar harðir.
Clintonániðurieið
Ásíðustuátta
mánuðum hef-
ur Bill Clinton
Bandaríkjafor-
setí tapað tiltrú
15% fyrri fylgj-
enda sinna. Að-
eíns þriðjungur
Bandaríkja-
manna telur samkvæmt nýrri
skoðanakönnun rétt að kjósa
hann í embætti öðru sinni.
Ringuireið í Kaíró
Fullkomin upplausn er nú á
mannfjöldaráðstefnunni í Kaíró í
Egyptlandi.
Páfinnennreiður
Menn páfa á mannfjöldaráð-
stefnunnni í Kaíró segja að hafm
sé áróðursherferð gegn honum
um heim allan.
Landstjórn að fæðast
Góðar líkur eru á að ný lands-
stjóm fjögurra flokka verði
mynduð í Færeyjum um helgina.
Adams vill tii Ameriku
Gerry Adams, leiðtogi pólitísks
arms IRA, hefur sótt um vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna.
Svar er ókomið.
Bjóða Gólanhæðirnar
ísraelskir landnemar eru ævir
af reiði vegna tilboðs stjórnar
landsins til araba um að skila
Gólanhæðunum.
Kim Jong-li situr heima
Kim Joung-Il,
væntanlegur
þjóðar- og
flokksleiðtogi í
Noröur-Kóreu,
var ekki sjáan-
legur á þjóðhá-
tíðardegí
landsins í gær.
Var hann aö sögn heima og er það
talið benda til andstöðu við hann
meðal áhrifamanna í landinu.
Orsök flugslyss óljós
Enn er allt á huldu um hvað
olli flugslysinu mikla nærri Pitts-
burgh í Bandaríkjunum í gær. 132
menn fórust.
40sáririsprengingu
f þaö minnsta 40 menn særöust
þegar öflug sprengja sprakk í
höfuðborg Búrúndi í gær.
Þeirgömlutraustir
Talið er að núverandi þing-
menn hfjóti örugga kosningu til
þings í héraöskosningum í aust-
urhluta Þýskalands í dag.
Svart hjá námumönnum
Breskir kolanámumenn eru
vantrúaðir á að nýr leiðtogi
Verkamannaflokksins reynist
þeim vinur í raun.
Frá Volvoíbankann
Pehr Gyllen-
hammar, fyrr-
um forstjóri
Volvo, er nú
orðinn banka-
stjóri og ætlar
sér stóran hlut
á evópskum
peningamark-
aöi. Gyllenhammar var lengi tal-
inn meö snjöllustu fjármála-
mönnum heims.
Ffóttamennifríi
Hópur flóttamanna í Noregi
hefur farið heim í frí í suraar
þrátt fyrir sögur um lífshættu.
Reuter, TT og NTB