Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Vísnaþáttur Eyjólfur ljóstollur Eyjólfur fæddist í Hraunhöfn í Staðarsveit í Snæfellssýslu þann 6. júní 1841. Foreldrar hans voru Magnús Gíslason, þá amtsskrifari á Stapa á Snæfellsnesi en síðar sýslumaöur í Mýrasýslu, Dalasýslu og ísaijarðarsýslu, og Steinunn Gísladóttir, bústýra þar. Eyjólfur ólst upp á heimili fóður síns og fékk þar nokkra menntun. Hann varð barnakennari í Borgar- firði og lærði einnig eitthvað til bókbands. Var af því látið að rit- hönd hans væri sérlega falleg. Um skeið var Eyjólfur ekki um allt heill til geðs og gerði það hon- um þrengra um vik. Á efri árum ferðaðist hann víða um byggðir en óeirinn var hann við verk en í stað þess orti hann vísur um menn og málefni. Hvorki mun lundarfar eða kveðskapur hans hafa aflað honum vinsælda. Eyjólfur var fenginn til þess að kveða niður Stokkseyrar- drauginn og kraföist þess að áður fengi hann vel útilátna brennivíns- flösku. Einnig þyrfti hann afhýsi nokkurt svo hann ótruflaður gæti beitt særingarmætti sínum við ókind þessa. Tvær ókvæöisvísur Eyjólfs hafa lifað fram á seinni tíð og eru þær svo: Eyrarbakka auðnuslig alvalds hönd þig roti. Svarti djöfull ég særi þig frá Sigga í Ranakoti. Og hin hljóðar svo: Ég þér stefni að allra vil aldjeflis í treyju. Um níu ára næstu bil norður Drangs í eyju. Tókust særingar Eyjólfs vel og þóttu gefa góða raun. Árinn lét ekki á sér kræla næstu nótt og tók- ust reimleikar þessir af með öllu. Þegar Símon Dalaskáld heyrði tíöindi þessi varpaði hann fram vísu þessari en milli þeirra voru lithr kærleikar. Bragar hraðast buflan gekk best í skældu trýni og í staðinn fulla fékk flösku af brennivíni. Eyjólfur kom á bæ einn og voru leðurskór hans orðnir slitnir. Bað hann vinnukonuna að bæta þá fyr- ir sig en hún tók heldur fálega und- ir það. Þá kvað Eyjólfur: Þó ég sé dóni að ýmsum sið ekki þjóna verður, taktu skóna og tylltu við títuprjónagerður. Um lastabælið Reykjavíkurkaup- stað hvað Eyjólfur: Reykjavíkur breiður bær bestu kostum hlaðinn, heilags anda blíður blær breiðist yflr staðinn. Eyjólfur mun sem og fleiri hafa sótt um styrk úr landsjóði en ekki fengið hann eða kannski hefur vís- an fylgt umsókn hans: Ei skal skelfa Eyjólfs haus íslands valdatyrkinn. Fari úr böndum fjandinn laus fái ég ekki styrkinn. Eitt sinn fór Eyjólfur frá Akra- nesi til Reykjavíkur. Með bátnum var annar farþegi sem Árni hét og bar viðumefnið „gáta“. Ekki er annars getið en Ámi þessi stæði sig prýðilega þó að þungur væri sjór en Eyjólfur var aumur mjög því hann var manna sjóhræddastur. En þegar komið var til Reykjavíkur hoppaði hann upp á steinbryggjuna og var hinn hróðugasti og kvað viö Vísnaþáttur Vatdimar Tómasson raust yflr samferðamönnum vísu þessa: Eyvi kátur er og snar, á þó bjáti veður. En Árni gáta verri var vili og gráti meður. Meðan ritsímamáflð var hið mesta þrætumál hérlendis hitti Einar Benediktsson Eyjólf á götu og bað hann að yrkja tÚ sín vísu; Ljóstollur kvað svo: íslands meðan almúginn á þér skatt að gjalda ritsíminn og ráðgjafinn ríki um aldir alda. Um mann er kallaður var spari- frómur kvað Eyjólfur: Æðir lómur ótryggur otar gómarafti, sparifrómur spaugnefndur spýtir tómum kjafti. Um sjálfan sig kveður Eyjólfur: Ég er eins og ýlustrá enginn frjóvgun döggva, og með dauðans ætti ljá óðara að höggva. Eyjólfi líkaði vel að koma að Kol- viðarhóli og gisti þar oft. Einhvern tíma er hann var á leið þangað mætti hann manni nokkrum er vildi telja honum trú um að honum myndi úthýst á Kolviðarhóli. Þá kvað Eyjólfur vísu þessa: Kolviðar ég kem á hól hvílist þá minn andi. Þar mér verður búið ból best á Suðurlandi. Valgerður mér veitir fús vist, þá geðið hlýnar, sífellt hennar sæluhús svæfir raunir mínar. Um þing vort og ráðgjafarsam- kundu kvað Eyjólfur: Stanslaust flaug um fold og laug frekur kjaftastraumur, orðinn að draug á öskuhaug eldhúsrafta flaumur. Ævintýraferðir Áskriftarsíminn er í hverri viku 63*27*00 til heppinna áskrifenda Island DV! , Sækjum það heim! Matgæðingur vikuimar Ofnbakaður kræklingur „Mér finnst mjög gaman að prófa alls kyns heita smárétti eða gesta- rétti og langar til að bjóða hér slíka rétti,“ segirMálfríðurBjörnsdóttir, læknaritari og matgæðingur vik- unnar. „Þetta eru allt saman mjög auðveldir og góðir réttir sem ég hef boðið upp á í mörg ár og alltaf við jafn miklar vinsældir. Fyrsti rétt- urinn, ofnbakaðir krækflngar, er tilvalinn réttur í saumklúbb eða hvers kyns veislur. Einnig má vel nota hann sem forrétt en ég hef alltaf ristað brauð með honum,“ segir Málfríður. „Annar rétturinn hefur einnig verið mjög vinsæll en ég hef bara kallað hann risotto. Þann rétt hef ég oft á hlaðborði, t.d. í fermingarveislum. Loks ætla ég að bjóða upp á ööruvísi ham- borgara en það er uppskrift sem ég klippti út úr amerískri bók fyrir 25 árum og gerir alltaf lukku, sér- staklega hjá börnum," segir Mál- fríður ennfremur. Ofnbakaður kræklingur 2 stórar dósir Limfjords krækflng- ar 2 msk. smjör eða smjörlíki 4 msk. hveiti 6 dl kræklingasoð og rjómi blandað saman salt og hvítur pipar eftir smekk 4 eggjarauður 4 msk. riflnn sterkur ostur Smjörlíkið er brætt í potti og hveitinu hrært samanvið þannig að úr veröi smjörbolla, jafnað með soöinu úr dósunum og rjómanum. Látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur og síðan kælt aðeins áður en eggjarauðurnar eru hrærðar Málfriður Björnsdóttir. saman við, rifni osturinn og krydd- ið. Þá eru kræklingarnir settir á botninn í eldföstu móti og jafningn- um hellt yfir. Þakið með ostsneiö- um og bakað þar til osturinn verö- ur ljósgylltur. Risotto 2 laukar 1 hvítlauksrif 2 msk. smjör eða smjörlíki 1 dós niðursoðnir tómatar 5 dl kjötkraftur (af einum stórum teningi) 3 'h dl af hrísgrjónum 1 tsk. oregano 1 tsk. chiliduft 'A tsk. svartur pipar 'A tsk. salt 2 grænar paprikur 250-300 g soðin eða reykt skinka 300 g stórar rækjur (geyma nokkr- ar til skreytingar) Laukurinn og hvítlaukurinn er saxaður og steiktur í helmingnum af smjörinu. Síðan er innihaldi tómatdósarinnar hellt út í og kjöt- kraftinum. Látið krauma án loks í fimm mínútur við miölungshita. Þá er hrísgrjónunum bætt út í og kryddinu en vel má auka við það eftir smekk. Þetta er hrært vel sam- an og látiö sjóða undir loki í 20-25 mínútur og hrært í annað slagið í. Á meðan eru paprikurnar skornar í strimla og skinkan í bita. Paprik- urnar eru mýktar í smjörinu sem eftir var, skinkan síðan sett út í og síðast rækjurnar. Þessu er síðan blandað saman við hrísgtjóna- blönduna sem passa verður að sé ekki of þurr. Krydda má þennan rétt eftir vild og rétturinn er síðan skreyttur með rækjum og borinn fram með hvítlauksbrauði. Öðruvísi hamborgarar 500 g nautahakk 1 smátt saxaður laukur chilisósa sweet pickles relish Nautahakkið. og laukurinn er steikt saman í heitri feiti á pönnu og kryddað með salti og pipar eftir smekk. Síðan er bætt út í rúmlega hálfum bolla af chilisósu og hálfum bolla af sweet relish og blandað vel saman við hakkið. Á meðan er ofn- inn hitaður vel í 200 gráður. Stór pylsubrauð eru holuð aðeins að innan og smurð með smjöri og síð- an hituð þangað til þau verða heit og stökk. Þá er kjötfyllingin sett í brauðin og má hafa alls kyns sósur með ef fólk vill. Málfríður ætlar að skora á vin- konu sína, Helgu Höskuldsdóttur ljósmóður, að verða næsti matgæð- ingur. „Hún er klár kokkur og lúr- ir á mörgum skemmtilegum upp- skriftum. Dálkurinn mun því enn um stund vera á Akranesi. Hmhliðin Trausti veðurfræð- ingur í uppáhaldi - segir Marta Halldórsdóttir sem syngur Maríu í West Side Story „Mér líst mjög vel á að leika Maríu. Þetta er magnað verk. En þetta verður örugglega krefjandi því ég er óvön,“ segir Marta Hall- dórsdóttir sem leikur Maríu í upp- færslu Þjóðleikhússins á West Side Story í vetur. Marta stundaði nám í Tónlistar- skólanum í Reykjavík í fjögur ár áður en hún hélt til Þýskalands í söngnám haustið 1988. Hún var í fimm ár í Tónfistarháskólanum í Munchen. Frumraunin hérna heima var í fyrravor þegar hún tók þátt í uppfærslu Akureyrar á Óperudraugnum. Fullt nafn: Marta Guörún Hall- dórsdóttir. Fæðingardagur og ár: 9.8. 1967. Maki: Óm Magnússon. Börn: Halldór Bjarki, 2 ára. Bifreið: Citroén Visa, árgerð ’84. Starf: Söngkona. Laun: Upp og ofan. Áhugamál: Eg hef áhuga á ýmiss konar tónlist og svo því sem ég er að fást við hverju sinni. Þessa stundina er það rifsbeijasulta og krækiberjavín. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að Marta Halldórsdóttir. gera? Að vera uppi í sveit í góðu veðri og tína ber. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að fara út með ruslið. Uppáhaldsmatur: Lambalæri. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Júdókapp- inn Bjarni Friðriksson. Uppáhaldstímarit: Ég á ekkert uppáhaldstímarit. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan maka? Harrison Ford í Vitninu. Ertu hlynnt eða andvig rikisstjórn- inni? Ég er ekkert rosalega ánægð með hana núna. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Gorbatsjov. Uppáhaldsleikari: Feflx Bergsson. Uppáhaldsleikkona: Rósa Guðný Þórsdóttir. Uppáhaldssöngvari: Bandaríska söngkonan Jan De Gaetani. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi- björg Sólrún Gísladóttir. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Rasmus Klumpur. Uppáhaldssjónvarpsefni: Taggart. Ertu hlynnt eða andvíg veru varn- arliðsins hér á landi? Andvíg. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Gamla Gufan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Gestur Einar Jónasson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Trausti veöurfræðingur. Uppáhaldsskemmtistaður: Mokka. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Ekkert. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Ég stefni að því að hafa alltaf nóg aö gera. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég vann í garðinum og fór í vikuferö til London.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.