Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
Dagur í lífl Eggerts Magnússonar, formanns Knattspymusambands íslands:
Landsleikur undirbúinn
Þessi dagur byrjaöi óvenju snemma
en ég var kominn á fætur klukkan
hálfsjö. Yfirleitt er ég morgunglaður
og mættur í vinnu klukkan hálfátta.
En á þessum miðvikudagsmorgni
var stór dagur runninn upp því um
kvöldið var landsleikur íslands við
bronslið Svía. Við höfðum unnið
markvisst að þessum leik í einn og
hálfan mánuð. Ég var mjög ánægður
þegar ég leit út um gluggann á bað-
herberginu, áður en ég skellti mér í
sturtu, yfir hversu veðrið lofaði
góðu. Ég vissi aö það myndi skipta
sköpum varðandi mætingu á leikinn.
Ef íslenska landsliöið á að ná árangri
er nauðsynlegt að fá marga á völlinn
því það er bæði hvatning fyrir liðiö
og einnig geta áhorfendur haft áhrif
á dómara leiksins. Þetta er nokkuð
sem við upplifum oft í landsleikjum
erlendis.
Ég var kominn út úr húsi klukkan
sjö og var mættur í morgunmat á
Holiday Inn skömmu síðar. Þar átti
ég fund með framkvæmdastjóra
Knattspyrnusambandsins og fórum
við yfir ýmislegt varðandi landsleik-
inn um kvöldið. Þetta er venja, sem
við höfum komið upp, að hittast í
morgunmat síðustu þrjá dagana fyrir
heimaleik.
Síðan lá leið mín í Kexverksmiðj-
una Frón, þar sem ég er fram-
kvæmdastjóri, og þar biðu mín mörg
verkefni. Við höfum verið í þeirri
skemmtilegu en samt erfiðu aðstöðu
í fyrirtækinu að undanfórnu að hafa
ekki undan að framleiða kex til að
sinna eftirspurninni. Það verður að
vera mjög gott skipulag á framleiðslu
og sölu þegar ástandið er þannig.
Menntaskóla-
þýskan rifjuð upp
Ég þurfti líka aö undirbúa mig lítil-
lega vegna hádegisverðar sem
menntamálaráðherra haföi boðið til
vegna landsleiksins. Þaö er ekkert
vandamál fyrir mig að tjá mig á
sænsku en eftirlitsmaöur Evrópu-
inni á hóteli að borða með þeim eins
oft og ég get.
Umkringdur 15
þúsund manns
Ég var kominn á völlinn um sex-
leytið og þá var þegar kominn tals-
verður fiöldi fyrir utan hliðið. Þarna
sá maður að aðsóknin á leikinn ætl-
aði að veröa frábær enda kom á dag-
inn að næstum fimmtán þúsund
manns mættu og geysilega mikil
stemning myndaðist strax.
Rétt fyrir leikinn fékk ég mjög
skemmtilegt verkefni þegar ég heiðr-
aði þrjá frábæra knattspyrnumenn
sem leikið hafa flesta landsleiki fyrir
íslands hönd en það eru þeir Atli
Eðvaldsson með 70 landsleiki, Sævar
Jónsson með 69 og Marteinn Geirs-
son með 67 leiki. Fyrir utan að vera
frábærir knattspyrnumenn eru þetta
allt miklir mannkostamenn þannig
að þetta var skemmtileg stund.
Leikurinn sjálfur var ágætlega
leikinn af okkar mönnum og ég var
sérstaklega ánægður með seinni
hálíleikinn. Við áttum svo sannar-
lega skilið að ná alla vega jafntefli
en svona er fótboltinn og við urðum
að sætta okkur við að tapa eitt núll.
Það var þó greinilegt að áhorfendur
voru mjög ánægðir með leik íslenska
liðsins og voru margir sem óskuðu
mér til hamingju eftir leikinn þrátt
fyrir tap og man ég ekki eftir slíku
fyrr.
Klukkan hálfellefu mættu síðan
leikmenn ásamt eiginkonum sínum
í Átthagasal Hótel Sögu ásamt stjórn
Knattspyrnusambandsins og nokkr-
um gestum í kvöldverð. Það hefur
verið hefð undanfarin ár eftir síðasta
heimaleik ársins að bjóða til svona
veislu, aðallega til aö gera eitthvað
fyrir okkar ágætu eiginkonur. Við
hjónin vorum komin heim upp úr tvö
en maður var náttúrlega ekki sofnað-
ur fyrr en þrjú, hálffiögur, enda erf-
itt að ná sér niður eftir svona stór-
kostlegan dag.
Eggert Magnússon heiðrar hér knattspyrnumennina Atla Eðvaldsson, Sævar Jónsson, (faðir hans tók við viðurkenn-
ingunni) og Martein Geirsson áður en landsleikur íslands og Sviþjóðar hófst á miðvikudagskvöldið.
DV-mynd Brynjar Gauti
knattspyrnusambandsins er þýskur
og mig langaði til að ávarpa hann á
þýsku. Þess vegna þurfti ég að rifia
upp mína gömlu góðu menntaskóla-
þýsku og fá smá aðstoð. Veislan hófst
klukkan hálfeitt í Grillinu á Hótel
Sögu og mættir voru um þrjátíu
manns. Þetta var mjög afslappaður
og góður hádegisverður.
Ég var kominn aftur í Frón um
hálfþrjú en staldraði ekki lengi viö
enda átti leikurinn hug minn allan.
Næst lá leiöin inn á skrifstofu KSÍ
og þar þurfti að afgreiða ýmis krítisk
mál sem koma upp fyrir leiki og ég
ætla ekki að fara nánar út í hér.
Klukkan hálffimm var ég mættur
á Holiday Inn þar sem íslenska
landsliðið dvaldi og dvelur alltaf fyr-
ir heimaleiki. Við höfðum ákveðið
að hittast í te og rist eins og það er
kallað en þá borða menn saman
ferska ávexti, ristaö brauð með osti
og annaö hollt og gott. Síöan er hald-
inn fundur þar sem þjálfarinn fer
yfir aðalatriðin varðandi leikinn. Ég
reyni þessa þrjá daga sem liðið er
Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn
eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hefur fimm atrið-
um veriö breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja við þau með krossi á
myndinni til hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860
krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf.
'OPIB
Myndirðu vilja skila kveðju minni til kokksins!
Nafn:
Vinningshafar fyrir tvö hundruð sjötugustu og aðra
getraun reyndust vera:
Heimili
1. Guðrún R. Aðalsteinsd.,
Múlasíöu 6,
603 Akureyri.
2. Harpa Sæþórsdóttir,
Klapparstíg 5,
230 Keflavik.
2. verðlaun:
Fimm Úrvalsbækur. Bækumar, sem eru
i verðlaun, heita: Þú ert spæjarinn, Sím-
inn, Á ystu nöf, í helgreipum haturs og
Lygi þagnarinnar. Bækumar eru gefnar
út af Frjálsri fiölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú funm breytingar? 274
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík