Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994
Afmæli
Ragnar Guðmundur Ingimarsson
Ragnar Guðmundur Ingimarsson,
forstjóri Happdrættis HÍ (í leyfi sem
prófessor við HÍ), Mávanesi 22,
Garðabæ, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp á Skólavörðuholtinu og í
Hlíðunum. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR1954, B.Sc-prófi í bygginga-
verkfræði frá St. Andrew’s háskól-
anum í Skotlandi 1957, B.Sc. w.
Hon.-prófi frá sama skóla 1958 og
doktorsprófi í byggingaverkfræði
við Michiganháskóla í Bandaríkjun-
um 1964.
Ragnar var verkfræðingur hjá
Bæjarverkfræðingnum í Reykjavík
1958-59, verkfræðingur við verk-
fræðistofnun Michiganháskóla 1964,
sérfræðingur við Reiknistofnun HÍ
1964-65, sérfræðingur og síðan
deildarstjóri við Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins 1964-71, dós-
ent í byggingaverkfræði við HÍ
1971-73 og prófessor v ið HÍ í bygg-
ingaverkfræði við HÍ frá 1973. Hann
hefur veriö forstjóri Happdrættis
HÍ frá 1991. Þá hefur Ragnar verið
meðdómsmaður og matsmaður á
vegum dómstóla frá 1968.
Ragnar var formaður Bandalags
háskólamanna 1970-72, forseti
Verkfræöi- og raunvísindadeildar
HÍ1979-81, formaður bygginga-
nefnda vegna Félagsheimilis stúd-
enta og fyrstu hjónagarða HÍ, for-
maöur starfsnefndar háskólaráðs
HÍ vegna nýbygginga á vegum há-
skólans 1978-91 og varaformaður
þarfrál991,ístjórnHappdrættis »
HÍ1974-83, stjórnarformaður Hag-
tryggingar hf. 1970-85, formaður
stjórnar Minningarsjóðs Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar frá stofnun, í stjórn Menning-
ar og framfarasjóðs Ludwig Storr
frá stofnun og í stjórn Nordtek frá
stofnun.
Ragnar stóð, ásamt öðrum, að
undirskriftasöfnun vegna varnar-
mála 1974 undir kjörorðinu Varið
land. Hann hefur, auk doktorsrit-
gerðar, samið fjölmargar greinar,
álitsgerðir og rit á sviði jarðtækni,
vegagerðar og húsagerðar.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 26.3.1960 Hall-
dóru Margréti Bjarnadóttur, f. 12.12.
1938, deiidarstjóra. Hún er dóttir
Bjarna Ingimarssonar skipstjóra,
sem er látinn, og Elísabetar Hjartar-
dóttur húsmóður, nú til heimilis á
Seltjarnarnesi.
Börn Ragnars og Halldóru Mar-
grétar eru Arna, f. 14.9.1960, hús-
móðir á Hellu á Rangárvöllum en
sambýlismaður hennar er Arnar
Hjaltason glerskurðarmaður og eiga
þau þrjú börn; Ingimar, f. 6.3.1963,
byggingaverkfræðingur í Mission
Vejio í Kaliforníu í Bandaríkjunum,
kvæntur Lori Anne Figone bygg-
ingaverkfræöingi og eiga þau þrjú
börn; Bjarni, f. 5.5.1966, tölvunar-
fræðingur í Reykjavík, kvæntur
Þorgeröi Kristinsdóttur húsmóður
og eiga þau eitt barn; ívar, f. 15.1.
1975, nemi viö MR.
Systir Ragnars er Kolbrún Ingi-
marsdóttir, f. 31.3.1944, læknafull-
trúi í Reykjavík, var gift Ingólfi Arn-
arsyni tannlækni og eiga þau íjögur
börn en sambýlismaður Kolbrúnar
er Eyjólfur Magnússon kennari.
Foreldrar Ragnars: Ingimar Ást-
valdur Magnússon, húsasmiða-
meistari í Reykjavík og síðar
Garðabæ, og Guörún Guðmunds-
dóttir húsmóðir.
Foreldrar Ingimars voru Magnús
Gunnlaugsson, bóndi að Ytri-Hof-
dölum í Viðvíkursveit í Skagafirði,
og k.h., Guðrún Bergsdóttir hús-
freyja.
Ragnar Guðmundur Ingimarsson.
Foreldrar Guðrúnar voru Guð-
mundur Hannesson, bóndi að Litla-
Holti í Saurbæ í Dalasýslu, og k.h.,
Þrúður Jónína Guðmundsdóttir.
Ragnar tekur á móti gestum á
Hótel Holti laugardaginn 10.9. milli
kl. 16.00 og 18.00.
Til hamingju með
afmælið 11. september
.. .......... Haukur Clausen,
90 ára
Fannborg 1, Kópavogi.
Björn Gunnlaugsson,
Kolugili, Þorkelshólshreppi.
85 ára
60ára
Þorvaldur Ragnar Lárusson,
Brautarholti 18, Reykjavík.
Kristján Sveinsson,
Lindarflöt 49, Garðabæ.
Jakobína H. Schröder,
Bírkihlíð við Nýbýlaveg, Kópavogi.
Baldur Pálsson,
Ásgarðsvegi9, Húsavík.
80 ára
Anna S. Lárusdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Guðrún
Kristinsdóttir,
Skipholti 32,
Reykjavík.
Guðrún verður
aö heiman.
Sigurveig Þorsteinsdóttir,
Suðurgötu 8, Seyöisfiröi.
75ára
Þórhildur Árnadóttir,
Þiljuvöllum29, Neskaupstaö.
Margrét Hallgrímsdóttir,
Aflagranda 40, Reykjavík.
70 ára
Sigurður Friðriksson,
Víöihlið 29, Sauöárkróki.
Kristrún Guðmundsdóttir,
Kambsvegi 37, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á heimili
sínu á afmælisdaginn milli kl. 15.00
og 18.00.
50ára
Birgir Tómasson,
Þverbrekku 4, Kópavogi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir,
Seljalandsvegi 100, ísafiröi.
Hólmfríður Vilhjálmsdóttir,
írafelli, Kjós.
Herdís Ólafsdóttir frá Naustum,
matráðskona VMA,
Tjamarlundi llG, Akureyri.
Maöur hennar er Torfi Sverrisson
leigubílstjóri.
Herdis tekur á móti gestum laugar-
daginn 17.9. frákl. 16.00-20.00 á
heimili Sverris sonar síns að Múla-
síöu 36.
Jón Guðmundsson,
Bjargartanga 5, Mosfellsbæ.
Guðný Marinósdóttir,
kennarabústaö að Eiöum, Eiða-
hreppi.
Arndís Magnúsdóttir,
Hafhargötu 18, Keflavík.
40ára
Ellen Margrét Larsen,
Blönduhlíö 22, Reykjavík.
ReynirHelgason,
Seljahlíð ÍF, Akureyri.
Jensína Ólöf Sævarsdóttir,
Völusteinsstræti 4, Bolungarvík.
Sigríður H. Kristinsdóttir,
Seiðakvísl 21, Reykjavík.
Frímann Már Sigurðsson,
Borgarsandi 6, Hellu.
Guðmundur Steinþór Magnússon
Guömundur Steinþór Magnússon
vörubílstjóri, Langholtsvegi 60,
Reykjavík, er níræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Ólafsvík en
ólst upp að Hrútsholti í Eyjahreppi
á Snæfellsnesi. Sextán ára hóf hann
almenn verkamannastörf, m.a. á
eyrinni, til að afla heimilinu tekna.
Hann flutti alfarinn til Reykjavíkur
1934 og stundaöi almenna verka-
mannavinnu til 1942. Þá keypti hann
vörubíl og stundaði síðan vörubíla-
akstur. Guðmundurvar mikill
áhugamaður um búskap og átti
sauðfé árum saman.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Áslaug
Sigurðardóttir, f. 15.8.1907, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Sigurðar Guð-
mundssonar bónda og Dagbjartar
Ásmundsdóttur húsmóður.
Börn Guðmundar og Áslaugar eru
Eygló Fjóla, gift Eggerti Guðjóns-
syni; Erla Sæunn, gift Guðmundi
Þorkelssyni; Gestur Óli, kvæntur
Leu Þórarinsdóttur; Anna Maggý,
gift Kristjáni Guöleifssyni; Áslaug
Gyða en sambýlismaður hennar er
Gunnlaugur Óskarsson; Guömund-
ur Heiöar, kvæntur Kristínu Magn-
úsdóttur; Magnús, kvæntur
Guðnýju Kristmundsdóttur; Hrönn,
gift Una Guðjóni Björnssyni; Sig-
urður, kvæntur Sigurlín Jóhanns-
dóttur.
Systkini Guðmundar: Sigríður, nú
látin; Magnús, nú látinn; Kristján,
nú látinn; Guðjón; Þórarinn, nú lát-
inn; Hjörtur, nú látinn; Júlíus; Mar-
ía; Sigurbrandur, nú látinn; Sigur-
borg sem dó í frumbernsku.
Guðmundur Steinþór Magnússon.
Foreldrar Guðmundar voru
Magnús Þórarinsson, bóndi í Hrúts-
holti í Eyjahreppi, og Anna Sigur-
brandsdóttir húsmóðir.
Einar Sigurbergsson
Einar Sigurbergsson málarameist-
ari, Dverghömrum 19, Grafarvogi,
ersextugurídag.
Starfsferill
Einar fæddist í Grænhól í Ölfusi.
Hann hóf nám í húsamálun 1952,
lauk sveinsprófi 1956 og stundaði
síðan húsamálun til 1959. Þá hóf
hann leigubílaakstur sem hann
stundaði til 1981. Hann var síðan
bensínafgreiðslumaður i átta ár en
tók þá aftur til við húsamálun sem
hann hefur stundað síðan.
Einar er einn af stofnendum
Snarfara, sat í stjórn félagsins
1978-81 og var gjaldkeri þess í tvö
ár. Þá var hann aðalhvatamaður að
stofnun siglingafélagsins Sigurfara
á Seltjarnarnesi 1981 og var gjald-
keriþess 1981-87.
Fjölskylda
Einar kvæntist 10.9.1961 Ólínu
Guðmundsdóttur, f. 21.5.1938, hús-
móður og afgreiöslukonu, en þau
hófu sambúð 1956. Ólína er dóttir
Guðmundar Jónssonar og Málfríðar
Einarsdóttur.
Börn Einars og Ólínu eru Ragnar
Ómar, f.11.1.1956, garðyrkjumaöur,
og á hann tvö börn; Arnfríður, f.
18.7.1957, húsmóðir, gift Stefáni
Hermannssyni og eiga þau tvö börn;
Bergur, f. 19.9.1958, verkamaöur,
og á hann þrjú börn; Heimir, f. 24.11.
1959, kokkur, kvæntur Kristínu
Guðjónsdóttur og eiga þau tvö börn;
Einar Óli, f. 31.1.1967, við ljós-
myndanám í Englandi; Hinrik, f.
15.3.1974, við nám í rafvirkjun.
Einar á einn hálfbróður og þrjú
alsystkini.
Foreldrar Einars: Sigurbergur Jó-
Einar Sigurbergsson.
hannsson, f. 18.8.1886, d. 1963, bóndi
að Grænhóli, og Arnfríður Einars-
dóttir, f. 8.7.1906, húsfreyja.
Einar og Ólína verða stödd erlend-
is á afmælisdaginn.
Sigurlaug Ásgerður Sveinsdóttir
Sigurlaug Ásgerður Sveinsdóttir,
húsmóðir og verkakona, Karlsbraut
13, Dalvík, er sjötug í dag.
Fjölskylda
Sigurlaug fæddist á Tjörn á Skaga
og ólst þar upp í stórum systkina-
hópi.
Hún giftist 26.1.1947 Antoni Guö-
laugssyni, f. 15.4.1920, fiskmats-
manni. Hann er sonur Guðlaugs
Sigurjónssonar og Önnu Maríu
Jónsdóttur í Miðkoti á Dalvík.
Börn Sigurlaugar og Antons eru
Guðbjörg, f. 1947, forstöðumaður
íþróttahúss, gift Níels Kristinssyni
netagerðarmanni og eiga þau þrjú
börn; Elín Sigrún, f. 1948, markaðs-
fræðingur, gift Skafta Hannessyni
málarameistara og eiga þau fjögur
börn; Anna Dóra, f. 1952, sérkenn-
ari, gift Sveini Sveinssyni sjómanni
og eiga þau tvö börn; Arna Auður,
f. 1955, meinatæknir, gift Hreini
Pálssyni kennslufræðingi og eiga
þau tvö börn, auk þess sem Arna á
barn frá fyrri sambúð; Þórólfur
Már, f. 1957, líffræðingur, kvæntur
Hrönn Vilhelmsdóttur textílhönn-
uði og eiga þau tvö börn; Árdís
Freyja, f. 1967, félagsráðgjafi.
Foreldrar Sigurlaugar Ásgerðar
voru Sveinn Mikael Sveinsson, f.
29.9.1890, d. 6.4.1932, bóndi á Tjörn
á Skaga, og Guðbjörg Kristmunds-
dóttir, f. 2.10.1897, d. 18.6.1967, hús-
freyjaogbóndi.
Sigurlaug og fjölskylda hennar
Sigurlaug Ásgerður Svelnsdóttir.
taka á móti gestum í Bergþórshvoli,
Dalvík, í dag kl. 16.00-19.00.