Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Page 4
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Fréttir
titrmgi i
Væntanleg innkoma kanadíska
olíufélagsins Irving Oil á íslenska
olíumarkaðinn er farin' að valda
titringi í atvinnuiífinu. Áforra Ir-;
ving Oii eru stórtæk. félagið stefnir
að fiárfestingu upp á 1,5 miiijaröa
króna. Vilyrði hefur fengist fyrir
birgðastöð og þremur ióðum undir
bensínstöövar í Reykjavík og horflr
léiagið til nágrannasveitarfélag-
anna með lóðir undir fieiri tetisín-
stöövar. Þótt Irving Oil ’ byrji á
bensínstöðuiauMiyM^áai.að félagið
kynnt sér rækilegá skýrslu sem
LÍÚ lét gera á síðasta ári um oliu-
verð til fiskiskipa. Þar komst LÍÚ
að þeirri niöurstöðu að útgerðin
gæti sparað 650 milljónir á ári með
því að flytja sjálf inn skipaoliu.
Borgarráð samþykkti á þriðjudag
að ganga til samninga við Irving
Oil um sölu á 3 ióðum fyrir bensín-
stöðvar og verslun með ýmsum fyr-
irvörum og afgreiðslu nokkurra
borgarstofnana á erindinu. Þá var;
: það skilyrði sett fyrir lóðasöiunni
að samningar tækjust við fy rirtæk-
ið um lóð og uppbyggingu birgða-
stöðvar við Reykjavíkurhöfn.
Bensinstöðvalóðirnar eru við Eiðs-
granda, Stekkjarbakka og Bæjar-.
háls. Sjálfstæðismenn í borgarráði
samþykktu þe’ssa afgreiðslu að
ööru leyti en því að þeir telja lóðina
við Stekkjarbakka ekki heppilega
undir bensinstöð.
ffjá borgaryfirvöldum liggja
eínnig umsóknir frá hinum olíufé-
lögunum um lóðir undir bensín-
stöðvar. Borgarráö samþykkti á
sama fundi að fela borgarskipulagi
og borgarverkfræðingi aðfara yiir
umsóknir þeirra og aöstöðu í borg-
inni og leita lausna í því sambandi.
'Talað hefur verið um lóðaum-
sóknir olíufélaganna þriggja sem
mótleik gegn Irving Oil. Skeljungur
er með 18 bensinstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu, Oh'ufélagið með 14
og Qlís með 11. Að auki hefur Skelj-
ungur vilyrði íýTÍr tveímur lóðum
í Reykjavík og OIís fyrir einni.
Skaparfjölda starfa
Með 1,5 milljarða flárfestingu í;
huga er ljóst að hún kemur til með
að skapa flölda starfa fyrir íslend-
inga. I viðtali DV við Irving-feðga
i byrjun desember sl. kom fram að
þeir myndu eingöngu ráöa íslend-
ihga til starfa en ekki væri ljóst
hversu marga þyrfti til.
Þegar meðalvelta einnar bensín-
stöðvar í Reykjavík, um 15 milljón-
ir á mánuði, er skoðuð sést berlega
að Irving Oil ætlar ekki að treysta
reksturinn á íslandi á bensínsölu
heldu olíusölu til útgerðarinnar.
Miðað við 3 bensínstöðvar í Reykja-
vik yrði velta Irving það htil af
þeim að flárfesting upp á 1,5 millj-
aröa skilaði sér seint og illa.
Hér að néðan má lesa skoðanir -,
nokkurra aöha úr þjóðfélagia* á
fyrirhuguðum íjárfestingura Irving
Oil á íslandi.
.Einar Benediktsson:
Mismunun
„Frá okkar
bæjardyrum
séö er þetta
þannig að við
buum í- fíjálsu
landi með
frjálsa sam-
keppni þannig
aðþaðerekkert
annað að gera en að takast á við þá
samkeppnisem að höndum ber. Þær
athugasemdir sem viö höfum helstar
eru að okkur finnst þessi umsókn
hjá Reykjavíkurborg hafa fengið
óeðhlega fljóta og hagstæða umfiöll-
un og forgang umfram öniiur mál
sem hefur yerið leitað með frá olíufé-
lögunum. í okkar tilviki höfum viö
bent á að í 67 ára sögu Olís hefur
félagið fengið 6 bensínstöövalóðir í
Reykjavík, þrátt fyrir- ahnokkuð
fleiri beiðnir. Við leggjum áherslu á
að hér ér um mismunun að ræða,“
segir Einar Benediktsson, forstóri
Olís.
„Varðandi hafnaraðstöðu er verið
að vinna að úrlausn á henni á nýju
svæöi í Reykjavék, samhliða Irving
Oil. Það er engu að síður staðreynd
að við höfum greitt 2,2 milljaröa í
hafnargjöld án þess að hafa nokkurn
tíma fengið hafnaraðstöðu."
Jóhannes Gunnarsson:.
Væntamáauk-
innarsamkeppni
„Á þessum
markaði hefur
ríkt mikil fá-
keppni. Það á
ekki síst við um
þær vöruteg-
undirsemneyt-
endur hafa
helst ætlast til
að samkeppni ríkti um, þ.e.a.s. á
bensín- og ohusölu. Við hljótum því '
að fagna því að nú kemur flórði aðil-
inn inn á þennan markað. Vænta
má aukinnar samkeppni og að verð-
þróun verði með öðrum og hag-
kvæmari hætti fyrir neytendur en
ríkt hefur," segir Jóhannes GUnnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna.
Vilhjálmur Egilsson:
Ánægjulegt
„ísland er op-
ið land fyrir
flárfestingar.
Það er ánægju-
legt ef íslenskt
atvinnuhf er
þannig að
menn vilji flár-
festa í því. Þeg-
ar nýr keppinautur kemur á markað-
inn og breytir því samkeppnis-
mynstri sem verið hefur munu hinir
keppninautarnir ekki sitja auðum
höndum. Þeir munu að sjálfsögðu
reyna aö mæta þessari samkeppni.
Nýr aðili mun í upphafi koma til að
leita bestu bitanna á markaðnum,"
segir Vilhjálmur Egilssön, alþingis-
maður og framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs íslands.
GeirMagnússon:
Vondurboðskap-
uryfirvalda
„Við höfum
ekki enn þá
feUgið þá af-
greiðslu sem
þessir útlend-
ingar virðast
eigá að fá varð-
andi forgang í
kerfi Reykja-
víkurborgar. Ef þetta er boðskapur
yfirvalda til innlendra fyrirtækja um
að útlendingar skuli hafa forgang þá.
er það vondur boðskapur. Ef okkur
vantar flárfestingu útlendingá í at-
vinnulífið þá þurfum við að reyna
að velja því farveg þar sem er vöntun
á fiárfestingu frekar en að koma því
þar sem flárfestirtg virðist vera
næg,“ segir Geir Magnússon, for-
stjóri Ohufélagsins.
„Mér skilst að þetta land sem Ir-
ving Oil fékk í Reykjavíkurhöfn hafi
ekki verið á verkefnaáætlun hafnar-
innar næstu flögur árin. Ég efast um
að við hefðum fengið að koma okkar
erindum fram fyrir verkefnaröðun
með þeim hætti sem þarna átti sér
stað, þó svo við hefðum boðist til að
flármagna það.“
Kristinn Bjömsson:
Veriðaðvekja
uppfalsvonir
„Ég tel í sjálfu
sér 'ekkert við
það að athuga
að nýir aöilar
komi til starfa í
phuverslun á
íslandi frekar
en á öðrum
sviöum. En mér
þykir hins vegar vera annmarki á
afgreiðslu borgarráðs á þriðjudag.
Hvað sem öðru líður finnst mér það
ekki eðlilegt að borgarráð úthluti til
nýs aðila á einu bretti þremur lóöum
sem eru utan skipulags og í trássi
við þann framgangsmáta sem hefur
verið á slíkum úthlutunum undan-
fama áratugi," segir Kristinn
Björnsson, forstjóri Skeljungs.
„Ég tel ekki vera mikið svigrúm til
bensínveröslækkunar. Menn mega
ekki gera mikið úr þeim væntingum
sem virðast vera famar að gera vart
við sig. Að mínu mati er verið aö
vekja upp falsvonir hjá neytendum."
Runólfur Ólafsson:
Veitirokkur
aukiðaðhald
„Að sjálf-
sögðufagnabif-.
reiðaeigendur
aukinni sam-
keppni á 'mark-
aðnum. Ég hef
trú á því að Ir-
ving Oil veiti
aukið aðhald og
ýti .undir hag-
kvæmara verð fyrir neytendur," se'g-
'ir Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra ’bifreiöaeig-
enda, FÍB.
„Á suðvesturhorninu verður verð-
stríð til.að byrja nieð. Að vísu verð-
um við að viðurkenna áð við höfum
ákveðnar áhyggjur vegna lands-
byggðarinnar. Ég efa það ekki að hin
olíufélögin mæti þessari sanikeppni.
Þau hafa ákveðið forskot. Á móti
kemur að Irving Oil er óhemju öflugt
fyrirtæki."
Benedikt Davíðsson:
Séekkiþörf
áfleiri
bensínstöðvum
„Það er auð-
. vitað jákvætt
að hér skapist
atvinna vegna
flárfestingar
þessara aöila.
En ég held að
það sé ekki lík-
legt eða sjálf-
gefið til lengri tíma htið að þeir leiði
til lækkunar á olíuverði. Það hefur
ákveðin hagræðing átt sér stað hjá
olíufélögunum. Að minnsta kosti er
maður farinn að sjá sömu merkin á
flbkkmm bensínstöðvum. Ég sé ekki
að hér sé mikil þörf á flölgun bensín-
stöðva," segir Benedikt Davíðsson,
forseti ASÍ.
Sighvatur Bjamason:
Irvingekki
lausnarorð
„Ég get ekki
ímyndað mér
að höfuö-
márkmiöið með
þessum rekstri
Irving Oil sé að
reka bara bens-
ínstöðvar í
Reykjavík.
'Álagningin í þeim „bransa“ er ekki
merkileg. Þeir munu ekki fara í oliu-
dreifingarkerfi um alit land og hljóta
að setja sig á ákveðnar hafnir. Hér í
Vestmannaeyjum em þrjú dreifing-
arkerfi fyrir þannig að þetta er ekki
stór markaður. Ef það flórða bætist
við held ég áð við munum borga
brúsann þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ segir Sighvatur Bjamason, fram:
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.
„Aukin samkeppni er alltaf til
góða. Auðvitað þurfa olíufélögin að
taka sér tak eins og flest önnur fyrir-
tæki. En ég held að Irving Oil sé ekk-
ert lausnarorð á olíuveröi fyrir ís-
lenska útgerð. Eins og ahir vita er
útgerðin iha stödd. Hún skuldar mik-
ið þannig að nýtt fyrirtæki hlýtur að
leggjast á bestu kúnnana. Ef lækka
á olíuverð til skamms tíma en hækka
svo til lengri tíma er ég ekki mjög
spenntur fyrir þessu.“
IRVING
GeirH.Haarde:
Ínnlendufélögin
sitjiviðsamaborð
er 1
sjálfu sér hið
besta mál þegar
erlendur aðih
vill flárfesta á
ísiandi í stómm
stíl. Það er
ómögulegt að
segja til' um
áhrif Irving Oil á markaðinn. Hann
stækkar náttúrlega ekki. Það er mik-
ilvægt að innlendu olíufélögin sitji
við sama borð hvað varðar sam-
- keppnisaðstöðu, að þetta erlenda fé-
lag fái ekki einhverja séraðstöðu
umfram hin félögin. Samkeppnin
sem skapast þarna er að sjálfsögðu
af hinu góða,“ segir Géir H. Haarde,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Guömundur K. Magnússon:
Sjálfsagtað
verajákvæður
„Menn hafa
haft áhyggjur
af gjaldeyrisút-
streymi og flár-
festingu lífeyr-
issjóðanna er-
lendis að það
verði aldrei
góður jöfnuður
á flármagnshreyfingum út og inn
nema við leyfum mönnum að flár-
festa í einhverju hér á landi. Þó finnst
mér reglan hafa verið þannig að við
viljum ekki fá útlendinga til að flár-
festa í neinu nema því sem ekki ber
sig. Ég tel það sjálfsagt að vera já-
kvæður fyrir flárfestingum Irving
Oil og sjá hvort þetta tekst ekki hjá
• þéim. Ef ekki þá fáum við samt sem
áður einhvem ávinning," segir Guð-
mundur K. Magnússon, forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar' Háskól-
ans.
• Svava^pestsson:
Verðum aðspila
eftirleikreglum
,-,Mér finnst
.borgarstjómar-
meirihlutinn
hafa tekið
skynsamlega
ákvörðun -í
þessu máli.
Málið sgýsf
ekki bara um
flórða olíuféiagið til eða frá. Fyrir
ahmörgum árum vorum við með
þrjú ohufélög sem bjuggu í ríkis-
verndúðu umhverfi og tryggðu sér
aðgang að skömmtunarkerfi ríkisins
með „tragíkómískum" hætti. Nú er
það hðin tíð. Við erum orðin hluti
af flölþjóðlegu viðskiptasamstarfi og
þá verða menn að spila eftir þeim
leikreglum. Um þessi áramót erum
við að missa flármagn úr landi þann-
ig að við hljótum að taka því vel að
fá flármagn inn í landið í staðinn,"
segir-Svavar Gestsson, þingmaður
Alþýðubandalagsins.
Anna Ólafsdóttir Bjöms’son:
Séekki
rökámóti
„Ég hef lítið
velt þessu fyrir
mér en í fljótu
bragði sé ég
engin rök gegn
flárfestingum
Irving Oil á ís-
landi. Um
kvartanir
hinna ohufélaganna heyri ég ekk
betur en að borgaryfirvöld taki lík,
vel í þeirra kröfur. Það er sjálfsag
að þau sitji við sama borð og ekki si
tekið meira tillit til nýrra aðila,“ seg
ir Anna Ólafsdóttir Björnsson, þing
kona Kvennalistans.
IRVING