Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Page 4
4
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
Fréttir
Hægagangur í kj araviðræðunum:
Eins og allir séu að
bíða eftir öllum
- segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
„Þetta er afar einkennileg staöa.
Þaö er alger kyrrstaða eins og er og
líkast því aö allir séu að bíöa eftir
öllum,“ sagöi Kristján Gunnarsson,
formaöur Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur, í samtali viö DV í
gær um stööuna í kjarasamningun-
um.
Hann sagöi aö formenn félaganna
þriggja, sem mynda Flóabandalagið,
myndu ráða ráöum sínum í dag,
mánudag. Þeir teldu aö boltinn væri
nú hjá Vinnuveitendasambandinu
hvaö frekari samningafundi varöaöi.
Flóabandalagsfélögin eru öll komin
með verkfallsheimild og eru þau einu
verkalýðsfélögin sem hafa aflað sér
verkfallsheimildar.
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambandsins, sagði aö
samningamenn sambandsins hefðu
átt fund meö forsvarsmönnum VSÍ á
laugardaginn. Þar voru launakröfur
þess kynntar.
„Viö fóram yfir kröfurnar og það
varö enginn hvellur og leiö ekki yfir
neinn,“ sagöi Björn Grétar.
Hann segir að Verkamannasam-
bandið hafi undanfariö veriö í við-
ræðum viö vinnuveitendur um
sérkjaramálin. Þaö hefur samt held-
ur lítið mjakast í þeim samningum.
„Þaö er óhemjumikil vinna aö fara
yfir sérkjaramálin. Umræöa um þau
hefur ekki farið fram í mörg ár og
þaö verður hreinlega að taka á þessu
núna. Þetta er ekki mál sem hægt er
að hrista af á stuttum tíma. Menn
verða aö gefa sér þann tíma sem þarf
til að fara yfir allt sviðið og ljúka
gerð nýs sérkjarasamnings," sagöi
Bjöm Grétar Sveinsson.
sjónvið Sogið
ogÁHtavatn
„Ég sá tvo emi eltast við önd
yfir Álftavatni. Hún stakk sér
alltaf um leið og þeir steyptu sér
skipulega til skiptis á eftir henni.
Ég sá ekki hvernig leikurinn end-
aöi en það er sjaldgæft aö sjá tvo
emi í einu hér á seinni árarn,"
sagði Guðmundur Þorvaldsson á
Bíldsfelli í Grafningi í samtali við
DV.
Guðmundur sá nýlega til arn-
anna en hann sagöi að undanfar-
ið hefði verið talsvert algengt að
ernir flygju um svæðið við Sogið
og Álftavatn í ætisleit. Hann
sagðist telja að emirnir tveir
hefðu veriö ungar enda með mik-
ið hvítt í stélinu. Guðmundur
sagöí að trúlega verpti öminn
ekki í Ingólfsfjalli. Hann sagðist
hins vegar hafa heyrt aö öminn
verpti í Hvalfirði. Yfir sumartím-
ann er mikið um fýl og önd við
Álftavatn og Sogið og sést öminn
þágjarnanáþeimslóðum. -Ótt
Loðnaner
komin
Jóhann Jóhannaaon, DV, Seyðisfirði:
Fyrstu loðnuna, sem barst til
SR mjöls á Seyðisfirði, kom Örn
KE með síödegis á laugardaginn.
Hún veiddist í Reyðarfjaröardýpi
nóttina áður. Farmurinn var tæp
700 tonn og fékkst að mestu i
tveimur köstum. Loðnan stóð
djúpt og sagði skipstjórinn að það
mætti þakka djúpri nót skipsins
að þessi afli fékkst. Loönan var
nokkuð blönduö.'
Miklu léttara er nú yfir mönn-
um og er þess vænst að loðnan
færist nú suöur á granninn, skilji
sig betur og að veiðin glæðist.
Biöin eftir loðnunni nú hefur ver-
ið mönnum erfiðari en oftast áður
vegna þess að aliar spár höfðu
hnigið í þá átt að síðsumars- og
haustveiði yrði góö. Sú von sem
bundin var þeim spám brást.
Þvi hafði verið spáð aö fyrsta
loðnan bærist á þorrablótsdegi
Seyðfirðinga eins og þijú síðast-
liðin ár. Það stóðst.
Anna G. Ivarsdóttir, formaður Sambands islenskra bankamanna. Þau fagna
nú sextugsafmæli sinu. Bankar og sparisjóðir bjóða upp á kaffi og meðlæti
i dag vegna tímamótanna. DV-mynd BG
Samband íslenskra bankamanna sextugt:
Bankamönnum hefur
fækkað um f immtung
síðan 1987
„Konur eru að miklum meirihluta
innan samtakanna eða um 75 pró-
sent. Karlarnir eru þó að miklum
meirihluta í æðstu stjórnunarstöð-
um. Það má glöggt sjá þessa skipt-
ingu i dæmigerðum litlum útibúum
þar sem útibússtjórinn er í mörgum
tilvikum karlmaður en aðrir starfs-
menn konur," segir Anna G. ívars-
dóttir, formaður Sambands íslenskra
bankamanna, en samtökin fagna í
dag 60 ára afmæli sínu. í upphafl
voru samtökin fagfélag en þau voru
stofnuð 30. janúar 1935 af starfsfólki
Landsbankans og Útvegsbankans. í
dag verður boðið upp á veitingar í
öllum bönkum og sparisjóðum. Inn-
an samtakanna eru rúmlega 3000 fé-
lagar.
„íslenska bankakerfiö er mjög
tæknivætt og það er hér aðeins ein
tölvumiðstöð sem gerir það aö verk-
um að allar færslur eru mjög fljótar
að skila sér og það gerist nánast sam-
dægurs. Um leið og einhver hreyfmg
á sér stað sést það jafnt á Súganda-
firði sem í Reykjavík. Sem dæmi má
nefna að þaö tekur sjö daga í Suður-
Afríku að sjá hreyfingu af reikn-
ingi,“ segir Anna.
Samkvæmt grein úr alþjóðlegu
bankablaði álykta samtökin að ís-
lenskur gjaldkeri afkasti þrisvar
sinnum meiru en bandarískur starfs-
félagi hans. Anna segir að banka-
kerfið hafi á 10 árum tekið miklum
stakkaskiptum í átt til hagræðingar.
„Frá því fjöldi bankamanna var í
hámarki 1987 hefur þeim fækkaö um
20 prósent. Það byggist á beinlínu-
væðingu, notkun debetkorta, hrað-
banka og fyrirtækjatenginga. Okkur
fækkar, liggur við, frá mánuði til
mánaðar,“segirAnna. -rt
I dag mælir Dagfari___________________
í stríði við norðurljósin
Það munaði engu að kjamorku-
styrjöld brytist út í síðustu viku.
Það var eiginlega fyrir tilviljun aö
svo varð ekki. Þetta sýnir hins veg-
ar að við lifum á viðsjárverðum
tímum og jafnvel þótt kalda stríð-
inu sé lokið og kommúnisminn fyr-
ir bí er eiginlega meiri hætta á
stríðsátökum og tortímingu en
nokkra sinni fyrr. Friðartímarnir
eru hættulegastir.
Tildrög þessa máls voru þau að
Norðmenn hugðust senda eldflaug
á loft til að kanna norðurljósin.
Ekki vildi betur til en svo að Rúss-
ar sáu allt. í einu eldflaug á lofti sem
þeir héldu aö stímdi á sig. Varð
uppi fótur og flt og Jeltsín var bú-
inn að opna lsvarta kassann og far-
inn að fikta við takkana þegar þeim
í Atlantshafsbandalaginu tókst að
útskýra það fyrir Rússunum að
eldflaugin væri ætluð norðurljós-
unum en ekki blessuðum Rússun-
um. Nógur var nú samt hjá þeim
stríðsreksturinn í Tsjetsjeníu þótt
ekki bættist við kjarnorkustríð á
móti Norðmönnum.
En þetta vekur menn til umhugs-
unar um að kjamorkustyijöld er
yfirvofandi á hverri stundu og það
er eiginlega glópalán að ennþá hef-
ur hún ekki brotist út. Ef fleiri en
Norðmönnum dettur í hug að rann-
saka norðurljósin, ef einhverjum
dettur í hug að rannsaka stjömurn-
ar eða himinhvolfiö út frá náttúru-
legum sjónarhóli og notar til þess
eldflaugar er það undir hæhnn lagt
hvort kjamorkueldflaugar eru
sendar á loft til aö granda saklaus-
um norðurljósaflaugum.
Það fer nánast eftir því einu hvort
Boris Jeltsín er fullur eða edrú.
Þarna situr hann í Moskvu með
gamla svarta kassann frá því að
Sovétríkin vora og hétu og þó hann
hafi ekkert eftir af völdum annaö
en þennan svarta kassa stafar af
honum ógn og skelfmg vegna þess
að enginn stjórnar því hvað þess-
um eina manni dettur í hug aö gera
þegar hann er orðinn mátulega
fullur. Því er nefnilega haldið fram
að Jeltsín hafi verið vel hálfur þeg-
ar hann frétti af norsku eldflaug-
inni og hann ætlaði sko ekki að
láta Norðmenn taka sig í bólinu og
opnaði kassann og ef hann hefði
verið búinn að drekka einu glasi
meira hefði ekki þurft að spyrja að
leikslokum.
Friðurinn er sem sé kominn und-
ir því hvað Jeltsín er kominn langt
í drykkju sinni þegar norðurljósin
era rannsökuð. Næst verða Norð-
menn og aðrir visindamenn að
spyrjast fyrir um það hvað Jeltsín
hafi drukkið mörg glös áður en
þeir voga sér að senda eldflaugar á
loft. Raunar má segja að það sé
sama hvað menn vilja senda á loft.
Það er aldrei að vita nema eftirlitið
í Moskvu og á öðrum hernaðarlega
mikilvægum stöðum í heiminum
haldi að ókennilegir hlutir, sem eru
á ferð upp í himinhvolfið, sé upp-
haflö að kjarnorkuárás. Eftirlits-
menn með vígbúnaði og vopna-
skaki eru orönir óvanir og stirðir
í fræðunum og þreyttir á friönum
og þeir geta rokið upp með andfæl-
um og blásiö til gagnsóknar, þó
ekki væri fyrir annað en efna til
ófriðar.
Sannleikurinn er sá að hernaðar-
yfirvöld, bæði vestan hafs og aust-
an, eru orðin langþreytt á aðgerð-
arleysi og ótímabærum friði í ver-
öldinni og það var sennilega út af
einskærum leiðindum aö rússneski
herinn lagði til atlögu við Tsjetsje-
níumenn til að æfa sig í að drepa
fólk. Síðan hefur Boris Jeltsín verið
í stríðsleik heima í Moskvu og er
kominn í æfingu og hvað munar
hann þá um eitt stykki kjarnorku-
stríð við Norðmenn? Einhvern veg-
inn verður hann að viðhalda völd-
um sínum og það gera einræðis-
herrar ávallt með þvi aö búa til
stríð við ímyndaða fjandmenn til
að þjappa þjóð sinni á bak við sig.
Dagfari telur skynsamlegast fyrir
Norömenn og náttúrufræðinga að
láta af öllum fyrirætlunum sínum
um að rannsaka norðurljósin.
Menn eiga að halda sig við að
kaupa þau eða selja og þess vegna
mætti svosum reyna aö selja Jelts-
ín norðurljósin til að honum stafaði
ekki hætta af því að þau séu rann-
sökuö. En í guðanna bænum ekki
skjóta flugeldum eða eldflaugum á
loft ef menn vilja koma í veg fyrir
kjarnorkustyrjöld af misgá.
Fyrst er að minnsta kosti að
ganga úr skugga um aö Jeltsín sé
ófullur eða offullur.
Dagfari