Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
9
Utlönd
Vatnsveður gerir Evrópubúum enn ffið leitt:
Þúsundir á f lótta
Þúsundir manna flúöu heimili sín
undan flóðum í vatnsbólgnum ám í
norðanverðri Evrópu í gær þar sem
úrhellisrigning hélt áfram að gera
mönnum lífið leitt. Tveir drukknuðu
í Þýskalandi, einn í Lúxemborg og
þrír létust í Belgíu um helgina í slys-
um af völdum vatnsagans.
Veðurspá gerir ráð fyrir áfram-
haldandi rigningarveðri og búast
embættismenn við að flóðin muni
færast í aukana á næstu dögum.
Vatnsborðið í Rín hækkaði enn frek-
ar í Köln og voru hlutar gamla bæjar-
ins, þar sem allir helstu skemmti-
staöimir eru, undir tveggja metra
djúpu vatni. Vatnsborðið í Köln
komst í 10,4 metra síðdegis í gær en
metið er 10,63 metrar frá jólunum
1993 þegar „flóð aldarinnar" varð á
þessum slóöum.
Til hvassra orðaskipta kom á göt-
um Kölnar milli önugra borgarbúa
og fólks sem kom til að taka myndir
af vatninu sem flæddi yfir varnar-
garða og skemmdum af þess völdum.
„Þeir kunna ekki að skammast sín,
þessir flóðatúristar," sagði einn íbú-
anna. „Þeir klappa bara þegar vatns-
yfirborðið hækkar."
Áin Meuse heldur áfram að vaxa
milli frönsku landamæranna og bæj-
arins Anseremme í sunnanverðri
Belgíu. Talið er að flóðið í ánni eigi
eftir að verða meira en það sem varð
í desember 1993.
Á þriðja tug manna hefur farist af
völdum vatnsveðursins í Evrópu síö-
ustu vikuna, þar af sextán í Frakk-
landieinu. Reuter
Flugslysið við Thule á Grænlandi:
Dönsk stjórnvöld létu afmá öll
verksummerki eftir flugslysið við
Thule á Grænlandi í janúar 1968
þegar bandarísk sprengjuvél með
fjórar vetnissprengjur um borð
hrapaöi til jarðar þrátt fyrir aö
danskir og bandarískir kjamorku-
sérfræðingar teldu það bæði
ónauðsynlegt og hættulegt.
Þetta kom fram i danska blaðinu
Jótlandspóstinum í gær og var vís-
að ti) bandarískra skjala í þvi sam-
bandi.
Þar sagði að með þessu hefðu
dönsk stjómvöld lagt mörg hundr-
uö starfsmenn herstöðvarinnar í
Thule í hættu vegna geislamengun-
ar. Tveir danskir vísindamenn,
sem tóku þátt í verkinu, staðfestu
upplýsingarnar. Ritzau
Einstakt tækifæri
fyrir handhafa ökutækjastyrks
Tryggingastofnunar ríkisins
Ekki er víst að undirfatnaður af þessu taginu henti vel á frostköldum vetrar-
kvöldum uppi á íslandi en hann sómdi sér aftur á móti vel á nærfatasýning-
unni sem haldin var í Paris um helgina. Símamynd Reuter
Höfum til sölu eftirtalda notaða Fiatbíla sem
falla undir skilmála Tryggingastofnunar:
Tegund
Uno Arctic 45S, 3ja dyra
Uno Arctic 45,5 dyra
Uno Arctic 45S, 3ja dyra
Uno Arctic 45,5 dyra
Uno Arctic 45,5 dyra
Bílarnir eru sem nýir og í verksmiðjuábyrgð.
Við tökum loforð um styrk sem útborgun strax
og lánum eftirstöðvarnar til allt að 36 mánaða.
Argerð Litur Ekinn Verð
1993 hvítur 13.000 670.000
1993 blár 17.000 650.000
1994 hvítur 17.000 720.000
1994 rauður 14.000 720.000
1994 rauður 21.000 720.000
ÍTALSKIR BILAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • Sími (91) 5887620
"NV-HD90 er nýjasta myndbandstækiS í langri röS fróbærra myndbandstækja frá
Panasonic, þaS er ekki neinum blöSum um þaS aS fletta, þú einfaldlega kveikir á
tækinu og gæSin koma í Ijós." WhatVideo
Fjarstýringin
gó&a sem
virkar einnig
á flest
sjónvarpstæki
í' 3° Cf'
I' JU JU
NiCAM
HiFi
Brautarholti & Kringlunni
Sími 562 5200