Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Side 16
16
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
Meruiing
Veggteppi vanmet-
ins listamanns
- sýning á verkum Óskars Magnússonar í Hveragerði
í tilefni af opnun dvalaríbúöar listamanna í Hvera-
geröi var Gylfi Gíslason fenginn til setja upp sýningu
á veggteppum hins um margt vanmetna listamanns,
Óskars Magnússonar. Óskar, sem lést fyrir rúmu ári,
bjó lengi ásamt Blómeyju Stefánsdóttur, konu sinni, í
allsérstæðu húsi í Blesugrófinni í Reykjavík. Þegar
umferðarþungi fór aö aukast þar fluttu þau hjón sig
upp á Hellisheiði meö vefstóla sína og tíndu til afgangs-
timbur í nýtt hús þar efra. í svefnherbergi dvalarhúss-
ins hefur verið komið fyrir ljósmyndum eftir Leif Þor-
steinsson og Jóhönnu Ólafsdóttur af sérstæðum híbýl-
um þeirra hjóna og af þeim sjálfum í húsi sínu á heið-
inni.
í bernskumanda
Myndverk Óskars eru mörg hver innblásin af heilög-
um eldmóði kommúnismans þar sem Stálmaðurinn
með yfirskeggið er besti vinur barnanna. Vinnubrögð-
in og nálgunin er í bernskum anda eins og hann er
einlægastur og sannastur. Athyglisverð eru hér einnig
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
portrett af íslenskum skáldum eins og Jóhanni Sigur-
jónssyni og Einari Benediktssyni. Það er mikill fengur
í slíkri sýningu á verkum einlægs alþýðulistamanns
sem fór aldrei troðnar slóðir og flutti meira að segja
upp í óbyggðir til áréttingar þeim ásetningi sínum.
Er vonandi að nú verði farið að huga að stofnun safns
um verk íslenskra naívista. Verk sem þessi kalla bein-
línis á slíka framkvæmd.
Veggteppi eftir Óskar Magnússon, „vefarann á fjallinu".
Áskrifendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
jmm |
Kmm
m.':
« 'Hj
iOÍ
AUGLYSINGAR
—,---------
ÍM BWfc.
JsSlL trM
1
llk
/ V .
m wsmr JMSœ*. Æmm
Þverholti 11 -105 Reykjavík
Sírni 563 2700 - Bréfasími 563 2727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugið!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
Dvalarhús listamanna og rithöfunda i grennd við Hótel Ljósbrá, nefnt Auð-
brekka. DV-myndir ÓE
Dvalaríbúð listamanna
opnuð í Hveragerði
Á laugardag var stór dagur í menn-
ingarlífinu í Hveragerði því að auk
þorrablóts voru þar opnaðar dvalar-
íbúð og vinnustofa listamanna. Mót-
taka var á Hótel Örk þar sem forseti
bæjarstjórnar, Knútur Bruun, gerði
grein fyrir tildrögum þeirrar ákvörð-
unar að opna dvalaríbúð í húsi er
Guðmundur Sólmundarson byggði
árið 1929 nálægt gamla hótelinu Ljós-
brá. Fyrstu áætlanir um viðgerð á
húsinu voru þess eðlis að menn fóru
að kalla húsið Auðbrekku og varð
hár kostnaður nokkurt bitbein í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum.
Menn voru hins vegar nokkuð ein-
huga um nauðsyn framkvæmdar-
innar þótt mismunandi áætlanir hafi
verið uppi um rekstrarformið og út-
hlutunarreglur.
Til myndlistarmanna
og rithöfunda
A endanum var sæst á að myndlist-
armenn skyldu fá húsið til afnota
þrisvar sinnum tvo mánuði á ári og
rithöfundar tvisvar sinnum tvo mán-
uði. Tveir mánuðir skyldu svo vera
til úthlutunar aukalega til lista-
manna sem stjómin teldi þess mak-
lega að fá inni í íbúðinni. Þá skyldi
einkum hugsað til tónskálda eða
annarra þeirra listamanna sem ekki
teldust myndlistarmenn eða rithöf-
undar. Stjóm dvalaríbúðarinnar
verður skipuð einum fuUtrúa frá
Hveragerðisbæ, einum fulltrúa frá
Sambandi íslenskra myndlistar-
manna og einum fulltrúa frá Rithöf-
undasambandi íslands.
Vandað til frágangs
Vinnustofa listamanna er í sér húsi
nokkuð frá íbúðarhúsinu. í vinnu-
stofuhúsinu voru áður geymd garð-
yrkjuáhöld. Þar er um að ræða u.þ.b.
þijátíu fermetra skúr með stórum
skáhallandi suðurgluggum, vöskum
og snyrtingu. Dvalaríbúðin sjálf hef-
ur hins vegar að geyma eitt svefnher-
bergi, rúmgóða stofu, eldhús og
snyrtingu. Húsið er allt panelklætt
aö innan í gömlum anda og vel vand-
að til frágangs.
Indriði G. Þorsteinsson rithöfund-
ur, sem um langt skeiö hefur búiö í
Hveragerði, flutti ítarlega tölu á Hót-
el Örk um þau skáld er búið hafa í
Hveragerði og gert garðinn frægan.
Þar má frægastan telja Jóhannes úr
Kötlum, Kristmann Guðmundsson
og Kristján frá Djúpalæk. Af seinni
tíma skáldmæringum Hvergerðinga
nefndi Indriði sérstaklega Gunnar
Dal heimspeking. Knútur Bruun
klykkti síöan út með því að bæta
Veggteppi eftir Óskar Magnússon.
Björn Pálsson héraðsskjalavörður
hélt erindi i dvalarhúsinu.
Meðal gesta voru Garðar Hannes-
son og Gisli H. Brynjólfsson er mál-
aði hiö nýja dvalarhús.
Meðal gesta voru Flosi Ólafsson og
Sólveig Eggertsdóttir.
Jónasi Svafár við upptalninguna og
fara með eitt hans kunnu atómljóða.
Og málarar líka
I dvalaríbúðinni tók Björn Pálsson
héraðsskjalavöröur svo upp þráðinn
og nefndi til sögu þekkta myndlistar-
menn sem í gegnum tíðina hafa dval-
ist um lengri eða skemmri tíma í
Hveragerði, þ.á m. Ríkharð Jónsson
og Gunnlaug Scheving. „Höskuldur
Bjömsson mun þó vafalaust koma
fyrst upp í huga margra Hvergerð-
inga þegar spurt er um myndlistar-
menn frá Hveragerði. Kristinn Pét-
ursson er annar slíkur listamaður
sem hér bjó lengi og má segja aö
hafi samsamast staðnum/ sagði
Björn Pálsson.
Án endurgjalds
Hugmyndin hjá bæjaryfirvöldum í
Hveragerði er að þeir listamenn sem
fái inni í dvalaríbúðinni dvelji þar
endurgjaldslaust. Ekki er ætlast til
þess að þeir sýni eða eftirláti bænum
verk en skólayfirvöld munu þó hafa
áhuga á að fá viðkomandi til að halda
fyrirlestra, námskeið eða annað í!
þeim dúr. Áhugasömum listamönn-
um er bent á að hafa samband við.
félög sín. Ólafur J. Engilbertsson