Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Page 18
18
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
Fréttir
Ólafs^arðarvegur:
Fjögur hross
drápust í árekstri
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri: Pjögur hross drápust ogþrjú slös- uðust mikið þegar þau uröu fyrir bifreið á Ólafsfjarðarvegi á laugar- dagsmorgun. Bifreiðinni var ekið í átt th Akur- eyrar þegar hrossahópur birtist skyndhega á veginum. Ökumanni bifreiöarinnar tókst aö komast fram hjá fremstu hrossunum en lenti síðan inn í hóp hrossanna. Tvö lágu dauð eftir á veginum en tveir menn í bifreiðinni, en þeir voru bílbeltalausir, meiddust Util- lega, annar á enni. Þegar birti skömmu síðar fund- ust önnur tvö hross dauð inni á túni skammt frá og þrjú til viðbótar slösuð. Hrossin höfðu komist úr hólfl sem þau voru höfö í og girð- ingar við veginn voru engin hindr- un fyrir þau þar sem þær era á kafi í snjó. Eigendur lirossanna munu hafa verið að leita þeirra þegar óhappiö átti sér stað.
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Dalaland 14, hluti, þingl. eig. Heimir Þ. Sverrisson, gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, 3. febrúar 1995 kl. 11.00.
Geitland 7, þingl. eig. Þóraiinn Frið- jónsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 3. febrúar 1995 kl. 10.30. Hrísateigur 22, kjallaraíbúð, þingl. eig. Pétur Gissurarson, jgerðarbeið- endur Búnaðarbanki Islands og Gjaldheimtan í Reykjavík, 3. febrúar 1995 kl. 15.30.
Austurberg 36, 2. hæð 02-03, þingl. eig. RannveigRafnsdóttir, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í Reykjavík og Vá- tryggingafélag íslands hf„ 3. febrúar 1995 kl. 11.30.
Barónsstígur 27, norðurendi rishæðar, þingl. eig. Walter Marteirisson, gerð- arbeiðendur Hitaveita Reykjavíkur og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, 3. fe- brúar 1995 kl. 14.30. Stórholt 20, 2. hæð t.h. 0202, þingl. eig. Jóna Þórdís Magnúsdóttir, gerð- arbeiðendur Byggingarsjóður verka- manna og Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum, 3. febrúar 1995 kl. 15.00.
Borgartún 31, hluti, þingl. eig. Sindra- Stál hf., gerðarbeiðendur Gjaldheimt- an í Reykjavík og Iðnlánasjóður, 3. febrúar 1995 kl. 16.30. Öldugata 59, 3. hæð m.m„ þingl. eig. Óskar Guðmundsson og Kristín A. Ólaísdóttir, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóðm' ríkisins, Sparisjóður Rvíkur og nágrennis og íslandsbanki hf., 3. febrúar 1995 kl. 13.30.
Bragagata 33A, hluti, þingl. eig. Sig- urgeir Eyvindsson, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands, Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyrissjóður starís- manna ríkisins og Lífeyrissjóður verslunarmanna, 3. febrúar 1995 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
n
UTBOÐ
F.h. Malbikunarstöðvar Reykjavíkurborgar er óskað eftir
tilboðum í 13.500-16.300 tonn af asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 23. mars
1995, kl. 11.00.
mal 14/5
F.h. gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum
í kaup á gangstéttarhellum.
Magn: 40 x 40 x 5 cm 7.000 stk.
40 x 40 x 6 (7) cm 24.000 stk.
Afhendingu skal lokið fyrir 1. júlí næstkomandi.
Útboðsgögn verða afhent á Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar, Fríkirkjuvegi 3, gegn 1.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. febrúar
1995, kl. 15.00.
gat 15/5
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til-
boðum í jarðvinnu leikskóla við Laufrima.
Fielstu magntölur:
Uppgröftur 990 m3
Fylling 360 m3
Lagnir 24 m
Verkinu á að vera lokið 10. mars 1995.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 15. fe-
brúar 1995, kl. 11.00.
bgd 16/5
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fnl iikim.■<|, 3 • Sinii 2 58 00
Sölumál Útgerðarfélags Akureyringa hf.:
Vaxandi fylgi við
samstarf við ÍS
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ekki er nokkur vafi á því að þeirri
hugmynd að Útgerðarfélag Akur-
eyringa gangi til samstarfs um sölu-
mál við íslenskar sjávarafurðir hf.
hefur vaxið mjög fylgi á Akureyri.
Ýmsir „þungaviktarmenn" í at-
hafnalífi bæjarins hafa t.d. lýst þeirri
skoðun sinni að það að fá höfuðstööv-
ar íslenskra sjávarafurða til bæjar-
ins sé eins og himnasending fyrir
atvinnulífið í bænum.
„Það er mín skoðun að flutningur
höfuðstöðva íslenskra sjávarafurða
til Akureyrar með öllu sem því til-
heyrir sé langbesti kosturinn. Ég get
líka sagt að langflestir þeirra manna
sem eru í einhverjum umsvifum hér
í bænum og ég hef rætt við um þessi
mál eru þeirrar skoðunar aö tilboð
ÍS gefi okkur mun meira í atvinnu-
legu tilliti en tilboð Sölumiðstöðvar-
innar,“ segir Skúli Ágústsson fram-
kvæmdastjóri og einn af eigendum
Bílaleigu Ákureyrar og Höldurs hf.
Sú yfirlýsing Gísla Konráðssonar,
fyrrum framkvæmdastjóra ÚA í um
3 áratugi og stjómarmanns í SH í
nær jafnlangan tíma, að taka eigi til-
boði ÍS, hefur vakið mikla athygli.
Þá hefur Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja, lýst
þvi yfir að í þessu máli jafnist ekkert
á við það í atvinnulegu tilliti að fá
höfuðstöðvar ÍS til bæjarins.
Á það hefur m.a. verið bent að um
600 manns, þar af mjög margir er-
lendir, eigi erindi í höfuðstöðvar ís-
lenskra sjávarafuröa á ári. Um sé að
ræða erlenda kaupendur sjávaraf-
urða og sölumenn svo einhverjir séu
nefndir, og þetta telja margir Akur-
eyringar að vegi þungt, því þetta eitt
og sér skapi mikla atvinnu í þjón-
ustu. Þá er á það bent að Samskip
hafi lýst yfir vilja sínum að byggja
frystigeymslu á Akureyri, tryggt
verði að útflutningur þaðan aukist
mjög og ÍS hafi lýst yfir áhuga á sam-
starfi við Háskólann á sömu forsend-
um og SH hefur boöist til. Loks hefur
stjórnarmaður hjá Málningu hf. í
Reykjavík lýst því yfir að áhugi fyrir-
tækisins á kaupum hlutabréfa
Landsbankans í Slippstöðinni Odda
sé alls ekki háður því að SH fái viö-
skiptin við ÚA. Allt þetta hefur orðiö
til þess að almenningsálitiö og álit
margra af þeim sem fremstir standa
í atvinnurékstri á Akureyri hefur
snúist mjög ÍS í hag.
Baráttan um sölumálin fyrir Útgerðarfélag Akureyringa:
Talsmenn SH og ÍS
ákaf lega bjartsýnir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Við fengum drög að skýrslunum
til lestrar og gerðum örfáar athuga-
semdir við skýrslu Andra Teitsson-
ar. Það mætti reyndar allt eins kalla
það leiðréttingar og við höfnuöum
skýrslunum alls ekki,“ segir Bene-
dikt Sveinsson, framkvæmdastjóri
íslenskra sjávarafurða hf.
Benedikt segir að ÍS hafi komið sín-
um málum á framfæri og ÍS-menn
bíði nú einungis niðurstöðu heima-
manna á Akureyri. „Ég hef alltaf
verið vongóður um aö lok þessa
máls verði þau að ÍS flytji höfuð-
stöðvar sínar norður og ég er það
auðvitað ennþá. Ég tel það ótvírætt
betri kost fyrir Akureyringa að
ganga að tilboði okkar,“ sagöi Bene-
dikt.
Um tímafrest þann sem rætt hefur
verið um segir Benedikt að ÍS-menn
haldi stjómarfund á miðvikudag og
þá vilji þeir hafa niðurstöðuna á
borðinu. Um það hvort ÍS gæfi máhð
frá sér á þeim tímapunkti hefðu bæj-
aryfirvöld ekki tekið afstöðu til til-
boða ÍS og SH sagðist hann ekki geta
svarað því, það væri stjórnar fyrir-
tækisins að ákveöa það.
„Ég er ákaflega bjartsýnn," segir
Jón fngvarsson, stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
„Eftir að hafa kynnt mér skýrsludrög
þeirra aðila sem hafa unnið að mál-
inu að undanförnu get ég ekki sagt
annað en að þær staðfesta það sem
ég hélt, að við erum á réttu róli. í
mínum huga er ekki spuming um
að við höldum viðskiptunum við ÚA
ef menn eru að hta th þess sem máli
skiptir," segir stjórnarformaður SH.
Sölumál Útgerðarfélags Akureyringa:
Endanlegar skýrslur
lagðar fram í dag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Eftir að ég hafði lesið skýrsludrög-
in er það ekki spuming í mínum
huga að skýra þarf betur ýmis
grandvallaratriði. Þar er bæði um
að ræða atriði sem ráða hreinlega
hver afstaða mín verður í þessu máh
og hitt er að það voru hlutir í skýrslu-
drögunum sem stönguðust á,“ segir
Gísh Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins á Akureyri.
Nýsir hf. og Andri Teitsson ráð-
gjafi skiluðu skýrsludrögum sínum
fyrir helgi um áhrif þess að flytja
viðskipti Útgerðarfélags Akur-
eyringa frá Sölumiöstöðinni til ís-
lenskra sjávarafurða hf. Eins og þau
skýrsludrög hafa veriö túlkuð var
ekki gert upp á milli SH og ÍS sem
söluaðila afurða ÚA í skýrsludrögum
Nýsis en í skýrslu Andra munu hafa
verið hlutir sem taldir vora SH í vil
og snúa aðallega að öflugri stöðu SH
á markaði í Bandaríkjunum.
Alhr aöilar málsins fengu tækifæri
tíl að gera athugasemdir við skýrsl-
umar og leita nánari skýringa og
munu hafa gert það óspart. Um helg-
ina hafa ráðgjafarfyrirtækin unnið
hörðum höndum aö endanlegri gerð
skýrslna sinna sem leggja á fyrir
vinnuhóp bæjarstjómar Akureyrar
í dag.
Ökumenn
íbúöarhverfum
Gerum ávallt ráö fyrir
börnunum
K
563 2700
- skila
árangri