Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
31
Fréttir
Seyðisgörður:
Sr. Sigurður Ægisson til Grenjaðarstaðar:
Sauðárkrókur:
Skíðalyftan á
Fjarðarheiði
stækkuð
Gott að koma
Þýskir
togarar
landa
Jóhann Jóhannason, DV, Seyðisfirðt
Seyðíirðingar eiga sér skíöa-
svæði á einkar ákjósanlegum
staö á Fjarðarheiði, neðan Staf-
dalsfeUs, um 10 mínútna akstur
frá bænum. Þar var reist skíða-
lyfta 1990. Hún var fyrst 620 metr-
ar en hefur nú veriö lengd um
þriöjung. Ýmsar fleiri endurbæt-
ur hafa verið unnar þar að und-
anfömu og er nú aðstaða aö verða
mjög góð.
Svæðið var opnað 21. janúar.
Þar var fjölmenni og fagna skíða-
menn rojög þeirri breytingu sem
orðin er. Það hefur að sjálfsögðu
kostaö átök og erfiði en samtaka-
máttur félaganna og öflug forysta
ruddi öllum hindrunum úr vegi.
Lyftan er austurrísk og hefur
reynst vel.
Seinna í vetur fer þarna fram
unglingameistaramót íslands.
Alhr eru að sjálfsögðu velkomnir
til æfmga og leikja.
Hjúkrunarheimili:
178 milljónir
úr borgarsjóði
Gert er ráö fyrir að 178 milljón-
ir fari úr borgarsjóði til íram-
kvæmda í þágu aldraðra á þessu
ári og er reiknað með íram-
kvæmdalánum úr Byggingar-
sjóði ríkisins að tjárhæö 36 millj-
ónir og framlagi úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra að fjár-
hæð 16 milljónir króna á móti
framlagi borgarinnar.
Áætlað er að greiða samtals
rúmar 125 milfjónir til fram-
kvæmda við þjónustusel við
Þorragötu og byggingar sund-
laugar á lóð Hraínistu við Norö-
urbrún. Þá fara 30 milljónir til
dagdeildar fyrir Alzheimer-sjúkl-
inga á Lindargötu og svipuð upp-
hæð fer í þjónustumiðstöð fyrir
aldraða í Suður-Mjódd auk fram-
lags til breytinga á Droplaugar-
stööum og Seljalilíð.
í ræöu borgarsfjóra í fyrstu
umræöu um fjárhagsáætlun kom
fi-am að hlutur borgarinnar i
byggingu hjúkrunarheimilis í
Suður-Mjódd væri 352 milljónir.
Borgarsfióri sagðist vilja skoða
hugmyndir um að minnka heim-
ilið og koma því fyrr í notkun.
Suöumes:
Vaxandiað-
sóknaðöld-
ungadeildinni
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Áhugasömustu nemendurair
eru i öldungadeild skólans ogþar
eru konur i meirihluta. Þær sjá
um heimili, vinna fullan vinnu-
dag og koma síðan á kvöldin í
öldungadeildina. Þá eiga þær eft-
ir að sinna heimavhmunni. Þetta
eru þakklátustu nemendurnir,"
sagði Hjálmar Áraason, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, í samtali viö DV.
Vaxandi aðsókn hefur verið í
öldungadeild skólans síðustu ár-
in. Nú eru þar skráðir 160 á þess-
ari önn, Meðalaldurinn hefur
iækkaö en nú er fólk þar á aldrin-
um 2Ú-70 ára.
í dagskóla eru skráðir 650 nem-
endur. Þá eru 120 manns á endur-
menntunarnámskeiðum úr at-
vinnulífinu. Fleiri nemendur sem
ljúka grunnskóla fara stráx í
framhaldsskóla. Þegar skólinn
var stofnaður 1976 fóru 12%
hvers árgangs í framhaldsnám en
núna 95% nemenda.
heim í hlýjuna
- eftir tveggja ára dvöl í Noregi
„Norska þjóðkirkjan er allt öðru-
vísi en sú íslenska. Ég kann betur
að meta íslensku þjóðkirkjuna eftir
að hafa veriö prestur hér. Kirkjuleg
yfirvöld hér eru stíf og frekar
„ferköntuð", hugsa ekki nægilega
mikiö um fólkið. Þannig má til
dæmis einungis skíra í messu á
sunnudegi meðan skírt er hvenær
sem er og hvar sem er heima á ís-
landi. Og fleira mætti tína til. ís-
lenska kirkjan er miklu hlýrri og
ég hlakka til að koma í hlýjuna,"
sagði sr. Sigurður Ægisson, sókn-
arprestur í Luröj, elsta sjávarplássi
Noregs, við DV.
Sóknarnefndir í Grenjaðar-
prestakalli hafa kallað Sigurð til
starfa og hefur hann störf 15. mars
næstkomandi. Sjö sóttu upphaflega
um stöðuna eij tveir umsækjendur
hættu við. Urðu sóknarnefndirnar
sammála um að kalla Sigurð heim
til starfans. Sigurður var áður
sóknarprestur í Bolungarvík.
Hann sótti um ársleyfi frá störfum
þar og hélt til starfa í Noregi. Þegar
árið var hðið sagði hann starfinu í
Bolungarvík upp og var um kyrrt
í Noregi.
Hugmyndin fæddist
í heita pottinum
- Af hveiju fórst þú til Noregs?
„Hugmyndin varð eiginlega til í
heita pottinum á ísafiröi. Þar voru
Siguröur Ægisson þjónar Grenj-
aöarstaöarprestakalii frá og með
15. mars næstkomandi.
umræöur um kjör presta og í ljós
kom að prestar í Noregi hefðu það
miklu betra en prestar hér. Meðan
prestar hér heima voru kannski
með tæpar 100 þúsund krónur í
fastalaun voru norskir starfsbræð-
ur þeirra með 180 þúsund. Sá mun-
ur hefur reyndar minnkað snar-
lega eftir leiðréttinguna á kjörum
presta í fyrra, auk þess sem allar
aukatekjur eru innifaldar í fasta-
launum norsku prestanna. Annars
langaði mig líka að breyta til.“
Ábáti milli
prédikunarstaða
Luröj er á eyju í eyjaklasa við
heimskautsbauginn. Sinnir Sig-
urður 13 prédikunarstöðum í einni
sókn og fer á milh í bát. í fyrstu
var hann aðstoðarprestur Sighvats
Birgis Emiissonar í tveimur sókn-
um en Sighvatur er nú prestur
sunnar í Noregi. Sigurður hefur séð
um aðra sóknina og er mjög ánægð-
ur með dvölina ytra. Segir hann
þeim hjónum hafa verið mjög vel
tekiö en kona hans er Sigurbjörg
Ingvadóttir. Börnin þrjú hafa sótt
skóla á eynni. Sigurður segist hafa
flutt mikið með sér að heiman í
starf sitt í Noregi og mörgum hafi
líkað það vel, svo vel að mörg sókn-
arbarnanna segjast ætla að heim-
sækja hann að Grenjaðarstað.
Fjórar sóknir eru í Grenjaðar-
staöarprestakalli: Grenjaðar-,
Þverár-, Einarsstaða- og Nessókn.
Siguröur segir það leggjast mjög
vel í sig að koma heim og fara norð-
ur til starfa. „Ég er frá Siglufirði
og konan frá Akureyri og því má
segja að við séum að fara aftur á
heimaslóðir."
EFTA-ufsa
Þórhallur Ármunds., DV, Sauðárkróid;
Tekist hafa samningar milii
Skagfirðings á Sauðárkróki og
útgerðar þýsku isfisktogaranna
Europa og Bremen um að skipin
landi hér á næstu vikum og mán-
uðum 6-700 tonnum af stórum
ufsa sem veiddur er úr kvóta
EFTA við strendur írlands.
Reiknað með að skipin komi
hingað í 2-3 skipti hvort. Fyrsti
farmurínn kemur um miöjan fe-
brúar.
„Viö gerðum okkur reyndar
ekki miklar vonir um það fyrir-
fram að þessi viöskipti væru
möguleg og það kom okkur á
óvart þegar þýska útgerðin sló til.
Ég býst við að þarna spih inn í
viðskipti sem við höfum átt við
þennan aðiia bæði með sölu okkar
togara í Bremerhaven og síðan
sölu þýsku skipanna hér sl. sum-
ar. Ég á von á því að framhald
verði á löndunum þeirra í sumar
einnig," sagði Einar Svansson
framkvæmdastjóri en öll þessi
viðskipti fara fram í gegnum sama
umboösmann í Bremerhaven.
Aö sögn Einars er þetta líklega
í fyrsta skipti sem stópsfarmar
eru keyptir hingað til lands þar
sem uppistaðan er ufsi. Stærsti
ufsinn fer í salt og er reiknað með
mikilli vinnu í salthúsinu. Vonast
er til að fiskurinn sé það góður
að hluti hans fari í frystingu.
„Það er mjög erfitt nuna að fá fisk
frá Rússunum þannig að þetta
bakkar okkur upp næstu mán-
uði,“ sagði Einar í Fistóðjunni.
Viðlalstímar
borgarfulltrúa
í Reykjavík
í upplýsingaþjónustu ráðhússins
ertekið á móti bókunum
og þar eru veittarfrekari upplýsingar
um viðtalstíma borgarfulltrúa
í síma 563 2005
Alfreð Þorsteinsson mánudaga frá kl.12-13 í húsi Rafmagnsveitu Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34, sími 560 4600
Árni Sigfússon þriðjudaga frá kl.15:50-17 í ráðhúsinu
Árni ÞórSigurðsson miðvikudaga frá kl. 10:30-12 á skrifstofu Dagvistar barna, Hafnarhúsinu, sími 552 7277
Guðrún Ágústsdóttir föstudaga frá kl.10-12 í ráðhúsinu
Guðrún Zoega föstudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Guðrún Ögmundsdóttir miðvikudaga frá kl.13-15 í ráðhúsinu
Gunnar Jóhann Birgisson mánudaga frá kl.10-11 í ráðhúsinu
Hilmar Guðlaugsson mánudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Inga Jóna Þórðardóttir fimmtudaga frá kl.10-12 í ráðhúsinu
Jóna Gróa Siguróardóttir þriðjudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Pétur Jónsson miðvikudaga frá kl.14-15 í ráðhúsinu
Sigrún Magnúsdóttir miðvikudaga frá kl.10:30-12 í ráðhúsinu
Steinunn V. Óskarsdóttir mánudaga frá kl.13-15 á skrifstofu ÍTR Fríkirkjuvegi 11, sími 562 2215
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þriðjudaga og föstudaga frá kl.10-11 í ráðhúsinu
Viðtalstímar borgarstjóra eru á miðvikudögum milli kl. 10 og 12.
Panta þarf tíma í síma 563 2000 kl. 8:20 daginn áður.
m
w
O
Skrifstofa borgarstjóra