Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1995, Blaðsíða 32
44
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995
Veður fer hlýnandi
Guðmundur J. Guðmundsson.
Samningavið-
ræðum hefur
verið slitið
„Ég get ekki litið öðruvísi á en
aö samningaviðræðum hafi verið
slitið. Áhugi VSÍ er enginn. það
hefur enginn fundur verið boð-
aður.. .og sá síöasti endaði með
sprengingu eftir að við höfðum
verið móðgaðir gróflega,“ segir
Guðmundur J. Guðmundsson í
DV.
Þetta er mánudagsbíll
Skýringin er einfaldlega sú að
þetta er mánudagsbíll.. .Bíllinn
byrjaði að bfla rétt eftir að hann
kom norður og er búinn að vera
Ummæli
til vandræða síðan eins og sést
af því að það þurfi að fara með
hann 17 sinnum á verkstæði,"
segir Ríkarður Másson, sýslu-
maður á Hólmavík, í Morgun-
blaðinu.
Hundurinn er borgarbarn
„Hundurinn er ekki lengur
vinnudýr í sveit. Hann er líka
hluti af borgarmenningu þjóðar-
innar og hefur unnið sér þann
» J)egnrétt sjálfur. Hundurinn er
og verður borgarbarn og á hvergi
betur heima en við arinyl Reyk-
víkinga," skrifar Ásgeir Hannes
Eiríksson í Timann.
Monsterið USA
„Aðeins einföldustu fyrirbæri ná
að sameina þetta monster sem
USA er: Forsetinn, fáninn,
McDonald’s og sameiginlegur
gjaldmiðill," skrifar Hallgrímur
Helgason í Alþýðublaöið.
Snjóflóð og
áhættumat
í dag kl. 17 heldur umhverfis-
og og byggingarverkfræöiskor
fyrstu málstofu sína í stofu 157 i
VR-II við Hjaröarhaga. Viöfangs-
efni fundarins er snjóflóð og
áhættumat. Frummælendur eru
Helgi Björnsson jarðeðlisíræð-
ingur og Gunnar Guðni Tómas-
son dósent. Sérstakur gestur
fundarins verður Össur Skarp-
héðinsson umhverfisráðherra.
Fundir
Um fálka og rjúpur
í dag kl. 20.30 verður fyrsti
fraaðsluftmdur Hins íslenska
náttúrufræðifélags á þessu ári.
Fundurinn er haldinn i stofu 101
í Odda, Hugvísindahúsi Háskól-
ans. Á fundinum flytur Ólafur
K. Nielsen fuglafræðingur erindi
sem hann nefnir Um fálka og
tjúpur.
Opinnfundurum
tilvísanakerfið
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja stendur fyrir opnum fundi
um tilvisanakerfið í Félagsmið-
stöðinni Grettisgötu 89 í Reykja-
vík í fag kl. 17. Yfirskrift fundar-
ins er Tilvísankerfiö: í þágu
hverra? Á ftindinum verða færö
rök með og á móti tilvisanakerf-
inu. Fundurinn er opinn öllu
áhugafólki um málefnið.
I dag verður allhvöss eða hvöss norð-
austanátt norðan- og vestanlands og
víöa slydda eða snjókoma en allhvöss
Veðrið í dag
suðaustanátt og rigning suðaustan-
lands. Veður fer hlýnandi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður all-
hvöss norðaustanátt og slydda eða
snjókoma. Hiti 0-3 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 17.08
Sólarupprás á morgun: 10.12
Síðdegisflóð i Reykjavík: 18.19
Árdegisflóð á morgun: 6.43
Heimild: Almanuk Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri alskýjað -3
Akurnes skýjað -4
Bergstaðir snjókoma -5
Bolungarvík skafrenn- ingur -2
Kefla víkurflugvöllur snjóél 0
Kirkjubæjarklaustur skýjað -7
Raufarhöfn alskýjað -5
Reykjavík úrk.í grennd -2
Stórhöfði skýjað -1
Bergen léttskýjað -4
Helsinki snjókoma -3
Kaupmannahöfn alskýjað 2
Stokkhólmur snjókoma -5
Þórshöfn snjóél -2
Amsterdam rigning 8
Berlín rigning ..7
Feneyjar þokumóða 8
Frankfurt rigning 10
Glasgow úrk. í grennd 4
Hamborg ■skúr 7
London rigningog súld 10
LosAngeles hálfskýjað 12
Lúxemborg rigning 7
Maiiorca skýjaö 15
Montreal heiðskírt -17
New York heiðskírt -7
Nice skýjað 14
Orlando alskýjað 18
París rigning 11
Róm léttskýjað 15
Vín Washington skúr 5
Armann-Haukar í
1. deild kvenna
Eftir viöburðaríka helgi er frek-
ar rólegt í iþróttum í dag og í
kvöld og fyrir þá áhugasömustu
er rétt að benda á að ávallt á
mánudögum eftir ellefufréttir í
íþróttir
sjónvarpinu er alltaf farið yfir
Evrópufótboltann.
Einn leikur er þó á dagskrá í
kvöld í 1. deild handbolta kvenna.
Er það síðasti leikurinn í 15.
umferðinni á milli Ármanns og
Hauka. Fer hann íram í Laugar-
dalshöll og hefst kl. 21.00. Ár-
mann og Haukar eru bæði í neðri
hluta deildarinnar og koma ekki
til með að berjast um íslands-
meistaratítilinn en hvert stíg er
dýrmætt í botnbaráttunni og
verður því örugglega hart barist.
Þá má geta þess að það fara
fram nokkrir leikir í kvöld í
NBA-boltanum.
Bridge
Svíar hafa alla tíð verið taldir til sterkari
þjóða í bridge og yfirleitt verið í barátt-
unni um efstu sæti á þeim mótum sem
þeir hafa tekið þátt í. Tyrkir hafa hins
vegar verið taldir frekar brokkgengir í
íþróttinni hingað til og sjaldan náð ár-
angri á alþjóðamælikvarða. Þess vegna
taldist það til tiðinda þegar Svíar töpuðu
stórt á Evrópumótinu í Estoril á árinu
1970 fynr Tyrkjum, 1-19. Ein af ástæðun-
um fyrir stórtapinu í þeim leik var þetta
spil þar sem Svíar töpuðu 14 impum.
Svíinn Lindqvist hóf sagnir á hálfkröf-
unni tveimur spöðum eftir pass austurs
í upphafl. Austur var gjafari og NS á
hættu: ^ g
V D106
♦ ÁKD6543
+ 75
♦ DG108
V 92
♦ G7
+ Á10932
♦ ÁK975432
V 5
♦ --
4. KDG4
Austur Suður Vestur Norður
Pass 24 54 Dobl
Pass 54 Pass 64
Dobl 64 Pass Pass
Dobl p/h
Það er ekki oft sem maður fær þvílíkt
„skrímsli" á hendurnar eins og Svíinn
Lindqvist fékk í þessu spili en framhaldið
á sögnum varð honum ekki hagstætt.
Tyrkinn í vestur fann mjög góða sögn,
fimm hjörtu á hagstæðum hættum sem
Svíarnir réðu lítið við. Dobl norðurs
sýndi jákvæða hendi en var ekki hreint
refsidobl og Svíinn breytti eðlilega yfir i
5 spaða. Lindqvist var ekki sérlega hepp-
inn að geta ekkert notast við jákvæða
hendi norðurs í 6 spöðum og hann var
enn óheppnari með leguna í spaðalitnum.
Spilið fór fjóra niður og 1100 til AV (Hver
hefði trúað því með þessa hendi í suður)
og það var 14 impa gróði því Tyrkimir
spiluðu rólega 4 spaða á hinu borðinu
sem fór einn niður.
Skák
Ungverski stórmeistarinn Zoltan Alm-
asi, sem tefldi á alþjóðlega mótinu í Kópa-
vogi í fyrra, er að komast í hóp þeirra
bestu. Hann sigraði glæsilega á stórmót-
inu í Groningen um áramótin en varð
þó að sætta sig við tap gegn Miles sem
hafnaði í 9. sæti.
Þessi staða kom upp í skák þeirra. Mi-
les hafði svart og átti leik og virðist nú
eiga í erfiðleikum eftir síðasta leik hvíts,
25. d5-d6 sem hótar 26. d7 - ef 25. - cxd6
26. Rxd6 og ógnar báðum hrókunum.
Hvað lék Miles?
25. - He6!Ef nú 26. d7 Hd8!! 27. Rxd8
Hh6 28. Hel Dh2+ 29. Kfl Dhl + ! og
mát í næsta leik. Eftir 26. dxc7 Bxc7
27. Dd7 Hae8! 28. He3 Hxe3 29. Dxh3
Rxh3+ 30. Kg2 Hxf3 gafst hvítur upp.
Bogi Þorsteinsson í þróttafröm u ðu r:
voru
„Menn hafa verið ákaflega ai-
mennilegir og vingjarnlegir við mig
og þá nefni ég fyrst körfuboltadeild
Njarðvíkur. Eftir að ég fatlaðist
hafa menn alltaf verið tilbúnij- að
hjálpa mér og keyra mig á leiki og
er ég afar þakklátur þeim,“ segir
Bogi Þorsteinsson, 76 ára Njarðvík-
ingur, sem oft hefur veriö nefndur
faðir körfuboltans á Islandi. Bogi
hefur fengið margra viðurkenning-
Maður dagsins
ar fyrir störf sín að félags- og
íþróttamálum. Hann er eini hand-
hafi Heíðurskross KKÍ, hefur feng-
ið Heiðurskross ÍSÍ og siðastliðið
sumar var hann sæmdur Fálkaorö-
unni. Bogi var fyrstí formaður KKÍ
árið 1961 og var formaður í tæp tíu
ár en tók þá við formennsku hjá
körfuboltadeild Njarðvíkur og
gegndi því starfi í átta ár.
í gegnum árin hefur Bogi fylgst
vel með körfubolta og missir helst
Bogi Þorsteinsson.
ekki úr leík hjá Njarðvík. Þaö var
1991 sem hann fékk heilablóöfall
og lamaðist talsvert á vinstri hlið
en hann lætur það ekki aftra sér
þegar stórleikir eru annars vegar
hjá Njarðvík. Bogi segir að karfan
hafl tekið ótrúlegum framfórum á
undanförnum árum í öllum flokk-
um: „Það er ótrúlegt að sjá bolta-
meðferðina híá þessum strákum.
Það eina sem vantar er hávaxnir
strákar.”
Bogi er ánægður með þá umfjöll-
un sem karfan fær í fjölmiðlum.
,J>að koma mun fleiri áhorfendur
í dag en fyrr á árum. Þegar við
vorum að bytja í gamla daga þótti
gott ef áhorfendur voru fleiri en
leikmennirnir. Þá áttí karfan erfitt
uppdráttar og fáir sem hana stund-
uðu.“
Bogi Þorsteinsson starfaði lengst
af sem yfirflugumferðarstjóri á
Keflavíkurflugvelli en hætti störf-
um 1985. Á stríðsárunum var hann
lofskeytamaður á Dettifossi en
hætti þegar skipið var skotiö niöur
undir stríðslok en hætti þá og fór
í land. Stuttu síðar fór Bogi til
Bandaríkjanna í framhaldsnám á
vegum flugumferðarstjórnar og
tók við flugturninum á Keflavíkur-
flugvelli þegar bandaríski herinn
kom hingað. Bogi hefur einnig
stundað golf og fór holu í höggi
1975 og vann svo einheijamótið
tveimur árum síðar.
V ÁKG8743
♦ 10982