Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
Fréttir
Bæjarráð sendi kjörstjóm í Helgafellssveit skammarbréf:
Framkoma á kjörstað var
ósæmandi stjórnarmönnum
-fólkierhótað
„í Stykkishólmi eru menn farnir
að hóta unghngum og fullorðnu fólki
uppsögnum. Það var gert í stórum
stíl fyrir kosningar og er gert í dag.
Það hefur veriö sagt við krakkana
að þeir fái ekki vinnu í sumar ef
sveitarfélögin verði ekki sameinuö.
Ég veit um sjómann sem flutti lög-
heimihð sitt úr Helgafehssveit í
Stykkishólm því að honum var til-
kynnt að ef hann ætlaði að halda
plássinu yrði hann að eiga lögheimil-
uppsögnum, segir Bjami Guðmundsson, kjörstjómarmaður í
ið þar. Þetta er leiðinlegasta og versta
mál sem ég hef komið nálægt," segir
Bjami Guðmundsson, kjörstjómar-
maður í Helgafehssveit.
Kjörstjórn vegna alþingiskosninga
í Helgafellssveit ætlar að rita sýslu-
manni í Stykkishólmi bréf th að fá
upplýsingar um það hvaða mistök
kjörstjórnin hafi gert viö undirbún-
ing alþingiskosninganna 8. apríl í
félagsheimihnu Skhdi í Helgafehs-
sveit en bæjarráð Stykkishólmsbæj-
ar sendi kjörstjóminni bréf að kvöldi
kjördags þar sem sagt var að fram-
koma kjörstjórnarmannanna á kjör-
stað fostudagskvöldið 7. aprh hefði
verið ósæmheg og ekki sæmandi
skyldum kjörstjórnarmanna. Kjör-
stjórnarmenn hefðu bmgðist trausti
bæjarstjómar.
„Það kom ekki fram hvað við hefð-
um gert af okkur og ekkert rætt við
okkur heldur var okkur hótað og
sagt að afleiðingar vegna óþarfa af-
skipta af gólfi félagsheimhisins áöur
en tjónmat vegna vatnsflóðs á park-
etinu hefði farið fram yrði kannað
síðar. Við tókum lausa spýtu til að
fólk dytti ekki um hana og lögðum
spónaplötu yfir, útbjuggum kjörklefa
í eldhúsinu og þvoðum stóla og borð
og sópuðum eins og við höfum alltaf
gert. Svo fengum við bara skammar-
bréf eftir að við höfðum lokið störf-
um,“ segir hann.
„Hin kjörstjórnin var búin að koma
Helgafellssveit
sér fyrir í salnum og við vorum
óhressir með að þeir skyldu taka nið-
ur það sem hún hafði gert og færa
það úr stað án þess að hafa samband
við hana þannig að hún varð að finna
sér nýjan stað en það á ekki við rök
að styðjast að menn séu famir að
hóta uppsögnum," segir Bæring
Guðmundsson, bæjarráðsmaður í
Stykkishólmi.
-GHS
Viðræður stj ómarflokkanna hófust í gær:
Eykur erf iðleik-
ana að hafa bara
32 þingmenn
- sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra
„Ef málefnavandamálin eru erfið
þá eykur það erfiðleikana að stjóm-
arflokkarnir hafa bara 32 þingmenn
samanlagt. Ef flokkarnir hefðu ríf-
legan þingmeirihluta væru vanda-
málin ekki eins erfið viðureignar.
En þegar ekkert má út af bera í þing-
inu þá þarf að vera ljósari og skýrari
málefnaafstaða í erfiðum málum. En
það er vilji fyrir því að skoða þetta
aht með jákvæöum hætti,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra eft-
ir fund hans, Friðriks Sophussonar
fjármálaráðherra, Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráöherra
og Sighvats Björgvinssonar, heh-
brigðis- og tryggingaráðherra, um
framhald stjómarsamstarfsins í gær.
„Þetta var ágætur fundur. Við fór-
um yfir þau mál sem við teljum að
þurfi að hggja skýrar fyrir milh
stjómarflokkanna áður en ákveðið
verður um framhald samstarfsins,
bæði málefnalega og efnisatriði, eins
og hugsanlega skiptingu ráðuneyta
og fleira. Ákveðið var að kortleggja
þessi atriði nákvæmlega og safna öh-
um gögnum sem þarf varðandi atriði
eins og GATT og önnur ágreinings-
mál. Síðan ætlum við að hittast í lok
vikunnar eða byrjun þeirrar næstu,"
sagði Davíö.
Hann sagði að fariö hefði veriö yfir
ágreiningsmál eins og GATT-máhð,
stjórnun fiskveiðanna og Evrópu-
máhn og landbúnaðarmálin og rík-
isfjármál. Á næsta fundi æth menn
að mæta með öh gögn hvað þetta
varðar. Davíð sagði aö þeir Jón Bald-
vin væru sammála um að gefa við-
ræðunum ekki langan tíma. Þeir
vhdu ekki hlaupa th verksins en
heldur ekki tefja þaö um of. Vika eða
tíu dagar ættu að vera hámark.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra:
Gerlegt að leggja upp
með knappan meirihluta
„Ég er sannfærður um að það er
gerlegt að leggja upp með eins at-
kvæðis meirihluta á Alþingi. Það
getur hugsanlega verið einhver
áhætta í því fólgin," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson, utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins, eftir
fund hans og Davíðs Oddssonar í
gær, aðspurður hvort hægt væri að
leggja upp með jafn knappan þing-
meirihluta og raun ber vitni hjá
stjómarflokkunum.
Hann sagði varðandi þennan fund
ráðherranna að það væri svo sem
ekkert nýtt í stöðumatinu.
„Við hittumst hér sem forystu-
menn flokka sem hafa átt samstarf í
ríkisstjóm á hðnu kjörtímabih og
niðurstaða kosninganna er sú að
þessir flokkar halda þingmeirihluta.
Verkefni þessa fundar var að kort-
leggja komandi viðræður um fram-
hald samstarfsins. Við fómm yfir
þau mál sem við ætlum að láta kort-
leggja og vinna úr á næstu dögum,“
sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að þeir Davíð væm
sammála um að hefja nú þegar viimu
á thteknum málasviðum þannig að
ahar upplýsingar og thlögur verði
við höndina þegar næsti fundur
verður haldinn. Þar í flokki væm
ríkisfjármál, fiskveiðisljómun,
framkvæmd GATT-samningsins og
önnur mál tengd landbúnaðinum og
afstöðunni til Evrópusambandsins á
kjörtímabihnu. Líka jöfnun atkvæð-
isréttar í landinu. Þá nefndi Jón
Baldvin eitt af þeim málum sem bar
mjög á góma í kosningabaráttunni
en það eru of háir jaðarskattar. Menn
væm sammála um að það þurfi að
leiðrétta.
Jón Baldvin var spurður hvort
rætt hefði verið um að bjóða Kvenna-
listanum aðhd að ríkisstjóminni?
„Ekki öðravísi en aö það var rætt
um það sem menn hafa kallað hinn
tæpa meirihluta. Við skiptumst á
skoðunum um það og mat okkar á
því hvort hann væri traustur. Auð-
vitað var farið um það nokkrum orð-
um sem möguleika að ræða við
Kvennalistann. En raunverulega
bíða allar shkar umræður eftir því
að við ljúkum þessari heimavinnu
sem við voram að skipuleggja,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
„Nei, ég er ekki alveg hætt störfum. Það er ekki fyrr en ný rikisstjórn hefur
verið mynduð og nýr forseti Alþingis hefur verið kjörinn að ég læt formlega
af störfum. Þetta er vegna þess að forseti Alþingis er einn af handhöfum
forsetavalds í forföllum forseta íslands. En ég er svona að taka saman
minar einkaeigur hér á skrifstofunni," sagði Salome Þorkelsdóttir, forseti
Alþingis, er tíðindamenn DV hittu hana á skrifstofu forseta Alþingis í Alþing-
ishúsinu. Hún hafði þá sett ýmsa smáhluti niður i kassa og var að Ijúka við
að ganga fré skrifstofunni fyrir nýja þingforseta. DV-mynd ÞÖK
Stuttar fréttir
Útgjöld ríkissjóðs umfram
heimhdir íjárlaga nema um 1 'A
inihjaröi króna. Seðlabankinn
tclur það óviðunandi að halli rík- ;
issjóðs verði meiri á þessu ári en
því síðasta.
íslenskur fiskur kom í lögreglu-
fylgd ih Boulogne í Frákklahdi I
gær vegna mótmælaaðgeröa
franskra sjómanna.
Enn koma kippir
Hvergerðingar fundu snarpan
jarösKjálfta undir fótum sér um
kvöldmatarleytiö í gær.
Kapphlaup er hafið um hluta-
bréf í SÍF, Sölusambandi Ss-
lenskra fiskft-amleiðenda, sem
hagnaðist um 164 miUjónir á síö-
asta ári aö sögn Morgunblaðsins.
Rafveitanílax
Rafmagnsveita Reykjavikur
hefur fengið heimhd borgarráös
th að taka þátt í uppkaupum á
laxveiöiréttindum í sjó fyrir 1,5
milljánir, samkvæmt Mbl.
ivræKimgura^Kaganrt
Afkastamikh kræklingaverk-
smiðja tekur til starfa á Akranesi
í hausL Að sögn Stöðvar 2 mun
hún skapa 40-60 ný störf.
Kæra á þrotabú EG
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
hefur th meðferöar kæru á
þrotabú Einars Guðfinnssonar
hf, fyrir að hafa ekki greitt 5 mhlj-
óna króna skyldusparnað. Ríkis-
sjónvarpiö greindi frá þessu.
Landinn eykur bjórkaup
. Fyrstu þrjá mánuði ársins seldi
ATVR áfengi og tóbak fyrir 2,7
milljarða. Bjórsala var 45% meiri
en á sama tima 1993.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Óskaembættið landbúnaðarráðherra
- vandséð af hverju við ættum að sleppa utanríkisráðuneytinu
Jón Baldvin Hanmbalsson var
spurður að því að loknum ráðherra-
fundi í gær hvort hann sæi fyrir sér
uppstokkun á ráðherraembættum og
ráðuneytum milli flokkanna ef
stjómarsamstarf Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks heldur áfram.
„Það er ótímabært að segja neitt
um það. Við munum ræða um verka-
skiptingu ráöuneyta mhh flokka að
nýju en við munum ekki fara í þær
viðræður að gagni fyrr en niðurstaöa
um málefnalegar lausnir hggur fyrir.
- Ljærð þú máls á að skipta á utan-
ríkisráðuneytinu og einhveiju öðra
ráðuneyti fyrir sjálfan þig?
„Við eram ekkert famir að ræða
þá hluti umfram það sem fram hefur
komið í íjölmiölum. Það er nú svo í
samstarfi flokka að það eru þrjú
þungavigtarráðuneyti. Það er auðvit-
aö forsætisráðuneytið, síðan kemur
utanríkisráðuneytið venjulega núm-
er tvö og fj ármálaráöuneytið númer
þijú. Fyrir þessu er ákveðin hefð.
Við höfum ekki gert neinar kröfur
um að fá fjármálaráöuneytið í okkar
hlut. Satt að segja er það svo að mínu
mati að það er eðlhegast að forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra séu úr
sama flokki vegna þess að samstarfið
þama á milh þarf að vera mjög náið.
Það er því vandséð með hvaða rökum
í tveggja flokka samstarfi ætti aö fara
fram með kröfur um að Alþýðuflokk-
urinn léti af hendi utanríkisráðu-
neytið.
- Gætir þú hugsað þér að fara í sjáv-
arútvegsráðuneytiö?
„Eins og menn vita hefur hfs-
draumur minn snúist um að verða
landbúnaöarráðherra," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.