Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 23 Fréttir Eggert Haukdal inni og úti við talningu atkvæða: Viðlagaákvæði kom mörgum á óvart - gildir um síðasta jöfnunarsætið hafi flokkar ekki nægjanlegt fylgi Við talningu atkvæða aðfaranótt sunnudags reyndi í fyrsta sinn á svo- kallað viðlagaákvæði í kosningalög- unum. Það varð til þess að Eggert Haukdal á Suðurlandi fór þrisvar sinnum irm og út af Alþingi um nótt- ina. Ákvæðið kom mörgum í opna skjöldu enda verið lítið í umræðunni. Þorkell Helgason, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, er einn helsti sérfræðingur landsins í kosninga- löggjöfinni. Að sögn Þorkels er gripið til viðlagaákvæðisins þegar ekki er hægt að útdeila síðasta jöfnunarsæt- inu til flokka í tilteknu kjördæmi þar sem þeir hafi ekki náð lágmarksat- kvæðafjölda. í stjómarskránni er skýrt kveðið á um hvað hvert kjördæmi skuli hafa mörg þingsæti en einnig er gerð krafa um jöfnun milli flokka. Flókn- ar reglur gilda um það hvemig á að útdeila þingsætunum út í kjördæmin innan þessa ramma. Þegar kemur að síðasta þingsætinu er ljóst í hvaða kjördæmi og til hvaða flokks það eigi að fara. Hafi viðkomandi flokkur hins vegar ekki tiltekið lágmarks- fylgi reyni hins vegar á svokallaö viðlagaákvæði. Þorkell segir að á þetta ákvæði hafi reynt í talningunni þegar í ljós kom að hvorki Kvennalisti né Þjóð- vaki hafði tiltekið lágmarksfylgi til að fá síðasta jöfnunarsætið, sem ætl- að var Suðurlandi. Þá hafi menn staöið frammi fyrir því að að annað- hvort yrði undan að láta, krafan um að þingsætið færi til Suðurlands eða krafan um jöfnun milli flokka. „Stjómarskráin tekur af vafa um hvort eigi að gera... Suðurland verður að fá sætið. Og í kosningalögunum er ákvæði um hvemig skuli bregðast við þegar þessi staða kemur upp. Þá skal í rauninni víkja til hliðar jöfnuninni milli flokka og úthluta sætinu í kjör- dæminu eins og um kjördæmasæti væri að ræða. Það hefði lent hjá Eg- gert Haukdal á tímabili,“ segir Þorkell. Að sögn Þorkels era einkum tvær ástæður fyrir því að í nýafstöðnum kosningum reyndi á viðlagaákvæðið. Annars vegar hafi tvö landsframboð, Kvennalisti og Þjóðvaki, verið undir því lágmarki sem þarf til að fá jöfn- unarsæti og að auki hafi verið tvö sérframboð, á Vestfjörðum og Suður- landi. Til samans hafi þetta haft í för Hitaveita Suðumesja: Tekjur af varn- arliðinu hafa minnkað um 130 milljónir Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; „Það er alltaf slæmt að missa tekjur en við vonum að það verði minna í framtíðinni en verið hefur undan- farin ár,“ sagði Júlíus Jónsson, for- stjóri Hitaveitu Suðumesja, í samtali við DV. Tekjur hitaveitunnar af varnarliðinu hafa minnkað um 130 milljónir króna síðustu tvö árin. Aðallega stafar það af minni vatns- notkun hjá vamarliðinu en var áður fyrr en einnig af minni rafmagns- notkun enda hefur varnarliðsmönn- um fækkað verulega síðustu árin. Árið 1994 minnkaði sala á vatni um 40 milljónir króna en um 80 milljónir árið 1993. Þá hafa tekjur hitaveitunn- með sér mikla dreifingu á atkvæð- um. Hin skýringin sé að nú sé búið að festa „flakkarann" í Reykjavík. Áöur hafi hann virkað sem viss stuðpúði við útdeilingu þingsæta. -kaa r m Þrátt fvrir töluverðar breyting- ar á rekstri Sölu varnarliðseigna veröur Alfreð Þorsteinsson áfram forstjóri og stai’fsmanna- fjöldi verður sá sarai. Sala vaim- arliöseigna sem slík hefur verið lögð niöur og í staðinn kemur stofiiun með aukin umsvif sem nefnist Umsýslustofnun vamar- mála. RENAULT CLIO Einn allra besti bíllinn í sínum verðflokki „Ekkert er svo gott að það geti ekki orðið betra“ höfðu hönnuðir Renault að leiðarljósi þegar ákveðið var að bæta enn við kosti Renault Clio, þessa margverðlaunaða afbragðs bíls, sem nú er kominn á markað betri en áður, þótt hann sé að grunni til sami bíllinn. Það er sama hvar borið er niður, aðrar bíltegundir í þessum verðflokki hafa ekkert fram yfir Renault Clio í samspili verðs og gæða. VERÐ FRÁ KR. 1.049.000,- M/ RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU Reynsluaktu Renault! Þú gerir ekki betri bílakaup. RENAULT RENNUR ÚT! Áy'x Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. j IB I LJ7| ÁRMÚLA 13 • SÍMI 5 53 1 236
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.