Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 9 Utlönd Grálúðudeila ESB og Kanada: Kanada gef ur enn dagsfrest - Spánverjar illa séðir á heimsins höfum Samningaviðræður milli Evrópu- bandalagsins og Kanada um lausn grálúðudeilunnar voru í hnút í gær og ekkert gerðist þrátt fyrir að Kanadamenn hafi hótað aðgerðum gegn spænskum togurum á grálúðu- miðunum fyrir utan lögsöguna við Nýfundnaland í dag ef ekkert gerðist í samningamálunum. Kanadamenn hafa nú gefið ESB frest í einn dag í viðbót. Þeir segja að samningur í deilunni sé búinn að liggja fyrir lengi en innri deilúr í Evrópusambandinu komi í veg fyrir undirritun hans. Þar mun helst vera átt við að Spánverjar krefjast þess að ESB fái jafn stóran grálúðukvóta á Miklabanka og Kanadamenn sjálfir eða helming heildarkvótans. Reyna á til þrautar að finna samningsflöt í dag. Bæði írsk og s-afrísk yfirvöld Stóðu spænska togara að meintum ólögleg- um veiðum í gær og virðist framferði Spánverja á heimsins höfum vera að koma þeim í koll. Bæði þessi lönd hafa hótað frekari aðgerðum gegn Spánverjum en írar eru eins og kunnugt er aðilar að Evrópusam- bandinu. Tveir spænskir skipstjórar verða leiddir fyrir rétt á Irlandi í dag en þeir voru teknir á mánudaginn grun- aðir um að hafa farið verulega fram úr veiðiheimildum Evrópusam- bandsins og að nota auk þess ólögleg veiðarfæri. írskir sjómenn kvarta mikið yfir Spánverjunum, eins og Kanadamenn. Þeir vilja að miklu betur veröi fylgst með hinum stóra flota Spánverja. Fiskistofnar séu víða í hættu. Spænskur skipstjóri er í haldi í Suður-Afríku grunaður um að hafa notað net með svo litlum möskvum að það er kallað „Dauða- veggurinn". Reuter Uppboð Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Hamraborg 14a, Kópavogi, laugardag- inn 22. apríl 1995, kl. 13.30. Garland steikingarpanna, djúpsteikingarpottur, kartöfluhitari, goskælir, 2 pitsuofnar, Electrolux ísskápur, gamall kælir, 3 vinnsluborð, 3ja metra langt borð, reiknivél, Husqvarna ísskápur, gamall ísskápur, ritvél, Vestfrost frysti- kista, Taylor ísvél, Taylor shakevél, samlokugrill, 4 borð, 16 stólar, ýmis eldhúsáhöld, s.s. sleifar, ausur, steikingarspaðar, 24 diskar og ca 15 hnífa- pör, sjóðvél, fatahengi, 2 svartir stólar og barnastóll. Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir aðeins teknar gildar með samþykki gjald- kera. Sýslumaðurinn í Kópavogi 11. apríl 1995 VÉLFRÆÐIN G AR Okkur vantar mann með vélfræðimenntun og þekkingu á kælikerfum. Sjálfstætt starf, góðir tekjumöguleikar. Óskað er upplýsinga um nám og fyrri störf. Bjóðum greiðslu kostnaðar við flutning búslóðar. GÓÐ VINNUAÐSTAÐA - FRAMTÍÐARSTARF Uppýsingar hjá framkvæmdastjóra, sími 94-3092 PÓLLINN HF„ ísafirði Rússnesku geimfararnir Alexander Viktorenko, Yelena Kondakova og Val- ery Polyakov voru formiega boðin velkomin heim úr geimnum í gær eftir nýjustu geimferðina. Þau hafa verið í endurhæfingu síðustu dagana. Poly- akov á metið meðal geimfara. Hann hefur verið lengst allra í geimnum, eða i 438 daga samfellt. Þau standa fyrir framan styttu af Yury Gagarin, fyrsta geimfara Russa. Simamynd Reuter Breskir málafærslumenn: Enn prýddir hrosshári Breskir málafærslumenn, en það eru lögfræðingar með réttindi til málflutnings fyrir æðri dómstólum, verða áfram prýddir hinum frægu hrosshárs-hárkollum sínum sem margir þeirra myndu vilja gera allt til að losna við. Æðsti yfirmaður dómsmála í landinu, Mackay lávarð- ur, sagði í úrskurði símum í málinu í gær að málafærslumennirnir yrðu að halda áfram þessari aldagömlu hefð. Lögfræðingar höfðu gert könn- un þar sem í ljós kom að meirihluti VÍldÍ losna VÍð þær. Reuter Glæsilegt Kanarítilboð 24. maí í 3 vikur frá kr. 47.800 HEIMSFEHÐIk Verð kr. 47,800 m.v. hjón með 2 böm, 2-14 ára. Innifalið í verði: flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli, flugvallarskattar, forfallagjöld. Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 624600 Við bjóðum nú glæsilegt kynn- ingartilboð til Kanaríeyja 24. maí á nýjan gististað sem við kynnum nú í fyrsta sinn í sumar, Sun’s Garden, smáhýsi í hjarta Maspa- lomas. Stór og fallegur garður með sundlaug, verslun, móttaka, örstutt að fara í Tívolí, Faro 2 verslunarmiðstöðina og vatna- garðinn. Kanaríferðir okkar í sumar hafa fengið frábærar viðtökur. Bókaðu meðan enn er laust. í tilefni af 300ustu Raynor hurðinni uppsettri ú íslundi VERKVER tt-3 1 ■ 1 ■ : 1 1 bjóða Raynor og Verkver nú 15% afslótt af öllum bílskúrshurðum pöntuóum fyrir 28. apríl VerSdæmi: FulningahurS 213 x 244 cm kr. 55.66S rm. Innifaliö í verSi eru brautir og þéttilistar. BYGGINGAVÖRUR Siðumúlo 27, 108 Reykjavík •S 581 1544 *Fax 581 1545

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.