Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grisham:
The Chambar.
2. Judith McNaught:
Until You.
3. T. Clancy & S. Piaczenik:
Tom Clancy's Op-Center.
4. Danielle Steel:
Accident.
5. Dick Francis:
Decider.
6. Clive Cussler:
Inca Gold.
7. Amanda Quick:
Mistress.
8. Allan Folsom:
The Ðay after tomorrow.
9. Belva Plain:
Daybreak.
10. Barbara Taylor Bradford:
Angel.
11. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
12. Margaret Atwood:
The Robber Bride.
13. Michael Crichton:
Congo.
14. Margaret Truman:
Mudrer on the Potomac.
15. Phíllip Margolin:
Heartstone.
Rit almenns eðlis:
1. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
2. Thomas Moore:
Care of the Soul.
3. Elizabeth M. Thomas:
The Hidden Life of Dogs.
4. Dannion Brinkley&Paul Perry:
Saved by the Light.
5. Sherwin B. Nuland:
How We Die.
6. Thomas Moore:
Soul Mates.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
8. Delany, Detany & Hearth:
Having Our Say.
9. Mary Pipher:
Reviving Opheiia.
10. Jerry Seinfeld:
Seinlanguage.
11. Nathan McCali:
Makes Me Wanna Holler.
12. Maya Angelou:
Wouldn't Take Nothing fðr
My Journey now.
13. Karen Armstrong:
A History of Qod.
14. Maya Angelau:
I KnowwhytheCaged Bird Síngs.
16. M. Hammer & J. Champy:
Reengineering the Corporation.
(Byggt á New York Times Book RBView)
Shakespeare
og Elísabet
Þótt fjöldi bóka um líf stórskáldsins
Williams Shakespeares hafi litið
dagsins ljós um aldimar er í reynd
óskaplega fátt vitað um ævi þessa
mikla meistara leikhússins. Og þrátt
fyrir andlitsmyndir sem eiga að vera
af skáldinu veit heldur enginn
hvernig hann leit út í raun og veru.
Nú hefur verið sýnt fram á að ein
þekktasta andhtsmyndin af skáldinu
og sú sem prentuð var með fyrstu
heildarútgáfu leikrita hans er ekki
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
byggð á eldri myndum af rithöfund-
inum heldur dregin eftir mynd af
Elísabetu fyrstu Englandsdrottn-
ingu.
Það er tölvutækni nútímans sem
hefur gert sérfræðingum kleift aö
átta sig á þessu. Liliian Schwartz,
sem er kunn fyrir yflrgripsmikla
þekkingu sína á tölvugraflk, hefur
ggrt athuganir á mörgum frægum
hstaverkum með aðstoð tölvuforrita
og birtir nokkrar niðurstöður sínar
í nýjasta tölublaði bandaríska tíma-
ritsins Scientific American.
Það var árið 1990 sem Lillian fór
fyrst að bera fyrirliggjandi andhts-
myndir af Shakespeare saman við
hhðstæðar myndir af ýmsum sam-
tímamönnum hans til að komast að
því hvort þar væri um einhvem
skyldleika að ræða. í þessu skyni fór
hún m.a. til Englands.
Elisabet fyrsta.
William Shakespeare.
- samanburður i tölvu leiddi í Ijós að myndin af Shakespeare er i meginat-
riðum byggð á drottningarmyndinni.
Sömu augun
Margir fræðimenn hafa talið að
upprunalegasta andhtsmyndin af
Shakespeare sé sú sem fylgdi fyrstu
„Foho“-útgáfunni á verkum hans
árið 1623.
Sú málmrista var gerð af ungum
listamanni, Martin Droeshout.
Schwartz bar þessa mynd saman við
andlitsmyndir af kunnum samtima-
mönnum Shakespeares, þeirra á
meðal mynd járlsins af Oxford sem
sumir hsdda fast við að telja höfund
leikritanna.
„Ég komst ekkert áfram. Engar
myndanna virtust passa saman,"
segir Schwartz í grein sinni. „En á
síðasta degi mínum í Englandi fór
ég aftur í National Portrait Gallery.
Og þar sá ég nákvæmlega sömu aug-
un og ég hafði verið að kanna í tölv-
unni vikum saman stara á móti mér
frá andlitsmynd af Elísabetu fyrstu
Englandsdrottningu. Nákvæmur
samanburður í tölvunni leiddi síðan
í ljós að flestar línumar í mynd Droe-
shouts og andlitsmynd drottningar-
ínnar, sem er eftir George Gower, eru
þær sömu.“
Hún lýsir síðan í smáatriöum þess-
um samanburði og skýrir þær með
þeim hætti að Droeshout hafi aug-
ljóslega dregið línumar í andliti
Shakespeares eftir myndinni af
drottningunni - enda ekki haft neina
fyrirmynd til að byggja á.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Catheriné Cookson:
Justice Is a Woman.
2. Stephen Fry:
The Hippopotamus.
3. Frederick Forsyth:
The Fist of God.
4. Hilary Mantel:
A Change of Climate.
5. Caroline Harvey:
Parson Harding’s Daughter.
6. Elizabeth George:
Playing for the Aslies.
7. Jonathan Coe:
What a Carve Up!
8. Mary Wesley:
An Imaginative Experience.
9. Joanna Troliope:
The Choir.
10. Peter Hoeg:
Miss Smilla's Feeling for
Snow.
Rit almenns eðlis:
1. Margaret Thatcher:
The Downing Street Years.
2. Jung Chang:
WiTd Swans.
3. Stella Tillyard:
Aristocrats.
4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
6. W.H. Auden:
Tell MetheTruth about Love.
6. Julian Benyon:
We Just Clicked.
7. Jean P. Sasson:
Daughters of Arabia.
8. Konrad Spindler:
The Man in the lce.
9. R. Bauval & A. Gilbert:
The Orion Mystery.
10. Quentin Tarantino:
Pulp Fiction.
(Syggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Jung Chang:
Vilde svaner.
2. Mary Wesley:
Kærlighed og kogekunst.
3. Josteín Gaarder:
Sofies verden.
4. Rosie Thomas:
Den hvide due.
5. Paul Orum:
Syndebuk.
6. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
7. Jorn Riel;
En arktisk safari og andre
skroner.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Fljúgandi furðuhlutir
eru bara í draumheimi
Hvort þessi fljúgandi furðuhlutur er draumsýn eður ei skal ósagt látiö.
hlöður
Vísindamenn í Japan hafa náð
mikilsverðum árangri í leidmni
að nýjum og léttari rafhlöðum en
þeim sem við eigum aö venjast.
Rafskautin í þessum nýju raf-
hlöðum eru úr lífrænu plasti.
Rafhlöðumar sem við brúkum
daglega eru byggöar á rúmlega
100 ára gamalli tækni. Málmefni
eru notuð sem jákvæð og nei-
kvæð rafskaut og flæðir orka um
hlaöinn vökva sem kallaður er
rafvaki. Slíkar rafhlöður eru'
þungar, geyma ekki mikia orku
og endast stutt.
Nýja rafskautið er búið til úr
tveimur Qölliðum og virkar það
í liþíum raíhlööum.
Ekki sam-
málaum
svefnstöðu
Tvær nýlegar rannsóknir kom-
ast að mismunandi niðurstöðu
um hvort tilfellum af svokölluö-
um vöggudauða fækki með því
að láta ungbörn sofa á bakinu eða
hliöinni í stað þess að soia á mag-
anum.
Þetta dularfulla fyrirbæri, sem
sérfræðingar segja ekki hægt að
rekpa til neinnar einnar ástæðu,
er helsta dánarorsök barna á
aldrinum eins mánaðar til eins
árs í Bandaríkjunum.
Umsjón
Guötaugur Bergmundsson
Fjórir kanadískir sálfræðingar
telja að ósköp jarðbundnar skýringar
séu á fljúgandi furðuhlutum og ver-
um frá öðram hnöttum: Þetta era
bara draumar sem fólk hefur dreymt
í meira eða minna vakandi eða hálf-
sofandi ástandi.
Fjórmenningamir ræddu við 176
karla og konur á öllum aldri um FFH
og skylda hluti. Fjöratíu og níu úr
þessum hópi fullyrtu að þeir hefðu
haft kynni af FFH einu sinni eða oft-
ar. Aðrar rannsóknir sýna að meiri-
hluti Bandaríkjamanna trúir á tilvist
fljúgandi furðuhluta.
Þessum 49 var síðan skipt í tvo
hópa. í „veikari" hópnum voru þeir
sem höfðu upplifað furðuhlutina
veikt en í „sterka" hópnum voru aft-
ur á móti þeir sem ekki voru í nokkr-
um vafa og höfðu upplifað gestina
utan úr geimnum á sterkan hátt.
Nokkrir úr þeim hópi héldu því einn-
ig fram aö þeir hefðu sjáifir ferðast
til ókunnra hnatta um borð í FFH.
Allir þeir 179 sem tóku þátt í rann-
sókninni voru látnir gangast undir
persónuleikapróf af ýmsum toga en
ekki fannst neinn merkjanlegur
munur sem gæti skýrt hvers vegna
49 þeirra höfðu hitt fyrir FFH en hin-
ir rúmlega eitt hundrað könnuðust
ekkert við slíkt.
Það var ekki fyrr en farið var að
kanna á hvaða tíma þátttakendumir
uppliíðu furðuhlutina fljúgandi að
eitt og annað skemmtilegt kom í ljós.
í veika hópnum var engin upplifun
tengd svefni á nokkum hátt, svo sem
að viðkomandi hefði verið vakinn af
FFH eða hefði séð FFH skömmu eftir
að hann vaknaöi.
i sterka hópnum reyndist miklu
meira en helmingur tilfellanna hafa
gerst í nánum tengslum við svefninn.
Viðkomandi vaknaði t.d. við skært
ljós fyrir utan gluggann sinn og það
reyndist síðan vera geimskip með
fullt af htlum köllum allt í kring.
Þessi sláandi munur á aðstæðun-
um, sem hópamir tveir lýsa, hefur
leitt til þess að sálfræðingarnir fjórir
telja að sterk upplifun á fljúgandi
furðuhlutum sé í mörgum tilvikum
draumaupplifanir sem viðkomandi
heldur í svefnrofunum aö séu raun-
veralegar.
Það sem styður þessa kenningu er
að margir í sterka hópnum sögðu frá
því að þeir hefðu verið eins og lamað-
ir þegar þeir urðu fyrir þessari
reynslu. Það sama var nær aldrei
uppi á teningnum í hinum hópnum.
Nú er vitað að vöðvar okkar era í
raun lamaðir á meðan okkur dreym-
ir.
Dúkkur gegn
löngun í böm
Margir nýbakaðir ungir for-
eldrar gera sér ekki grein fyrir
þvi að litlu sætu börnin geta tekið
á taugarnar meö gráti sínum nótt
sem nýtan dag. Raunveruleikinn
getur því komið þeim á óvart.
Hér eftir á slíkt að vera óþarfi
þvi til eru grátdúkkur sem líkja
ótrúlega vel eftir kornabömum
og geta undirbúið veröandi for-
eldra. Tilgangurinn með fram-
leiðsiu dúkknanna var hins vegar
sá að letja mjög ungt fólk til barn-
eigna.
Dúkkan, sem vegur um íjögur
kiló, er útbúin rafeindabúnaði
sem lætur hana gráta hátt og
snjallt með 80 mínútna til fjög-
urra klukkustunda hléi. Eina
leiðin til að fa dúkkuna til að
hætta óhijóðunum er að taka
hana upp og hugga liana. En eftir
einhverja stund byrjar balliö aft-
ur.
Reykur linar
sársauka
Reykingar eiga sér formælend-
ur fáa. Samt eru til sjúklingar
sem geta linað þjáningar sínar
meö því að fá sér reyk, sam-
kvæmt læknisráði. Og það á iíka
við þá sem ekki eru vanir að
reykja. Þetta era þeir sem þjást
af þarmasjúkdómi sem á latínu
heitir því ágæta nafni colitis ulce-
rosa.
Rannsóknir benda til að sjúkl-
ingar meö sjúkdóm þennan hafi
það mun betra ef þeir taka bæði
lyf og reykja með eða fá nikótín
meö tyggigúmmíi eða nikótín-
plástrum í sex vikur.