Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Side 22
22
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
Dagur í lífl Sivjar Friðleifsdóttur:
Tekið við hamingjuóskum
Dagurinn hcfst mjög snemma
þar sem Bylgjan haföi óskað eftir
mér í beina útsendingu klukkan
átta. Ég vaknaði klukkan hálfsjö
og eftir venjuleg morgunverk
læddist ég út og skildi eiginmann-
inn, Þorstein Húnbogason, og syn-
ina, Húnboga 10 ára og Hákon tæp-
lega tveggja ára, eftir sofandi. Á
Bylgjunni tóku Eiríkur og Þorgeir
vel á móti mér og við lukum hressi-
legu viðtali. Þá hélt ég aftur heim
á leiö.
Ég var nýkomin heim þegar gam-
all vinur birtist óvænt í kaffi. Hann
kom færandi hendi með stórt,
heiðgult sólblóm í tilefni kosninga-
sigursins. Um sama leyti vaknaði
Hákon sem var heima þennan
morgun þar sem dagmamman,
Rannveig, er í fríi. Ég skipti á hon-
um og gaf honum að borða. Hún-
bogi, sá eldri, svaf ennþá vært enda
kominn í páskaleyfi.
Um hádegisbilið kom Kristín, en
hún sér um strákana eftir hádegi
þegar ég er upptekin. Klukkan eitt
mætti ég á fyrsta þingflokksfund-
inn í þingherbergi framsóknar-
manna á Alþingi. Þar var geysigóð
stemning enda vorum við að hittast
í fyrsta sinn eftír góöan kosninga-
sigur. Halldór Ásgrímsson afhenti
mér blómvönd frá þingflokknum í
tilefni af því að ný þingkona bætt-
ist í hópinn. Þetta var hátíðleg
stund og ég fann strax til mikillar
samkenndar í þinghópnum. Ég
hugsaði aö með þessu fólki ætti ég
eftir að ganga í gegnum súrt og
sætt á næstu árum. Þessi fundur
verður mér minnisstæður og ég
mun hugsa til hans í elhnni.
Halldór fór yfir árangur flokksins
í kosningabaráttunni og skýrði frá
þeirri stöðu sem upp væri komin
varðandi líkleg stjómarmynstur.
Fundinum lauk síðan með mynda-
tökum af hinum nýja þingflokki í
Alþingisgarðiniun.
Þá þurftí ég að ijúka suður í
Siv Friðleifsdóttir var sigurvegari kosninganna i Reykjanesi. Hér er hún með sonum sínum Húnboga og Hákoni.
DV-mynd GVA
Hafnarfjörð á annan fund. Þar hitt-
ist kosnhiganefndin í fyrsta sinn
eftir glæsilegan kosningasigur. Það
var létt yfir mannskapnum eins og
venjulega og þá sérstaklega þegar
tilkynnt var að kosningabarátta
fyrir næstu þingkosningar væri
þegar hafm. Samkennd og hóp-
vinna hefur einkennt kosninga-
vinnu okkar. Við náðum að virkja
breiðan hóp manna síðustu mán-
uðina fyrir kosningar enda getur
fámennur hópur ekki lyft því
Grettistaki og unnið slíkan kosn-
ingasigur sem okkur tókst í þetta
sinn.
Klukkan var orðin sjö þegar ég
komst loks heim og þá var eigin-
maðurinn búinn að elda kjöt í karrí
með hrísgrjónum. Eftir matínn,
horfði ég á sjónvarpsfréttir á báð-
um Stöövum því maður verður að
fylgjast með því sem er að gerast.
Síðan settíst ég við símann, hringdi
í ættingja og vini og þakkaði stuðn-
inginn í kosningabaráttunni.
Gestkvæmt var um kvöldið enda
kominn tími til að hitta vini og
vandamenn sem vanræktir hafa
verið síðustu vikumar. Heiður vin-
kona mín kom í heimsókn, Ingunn
systir mín og Sigurgeir mágur og
Védís mágkona mín. Fjölskyldunni
tókst síðan að skipuleggja páskafrí-
ið og sumarfríið. Um páskana er
meiningin að skreppa vestur í Dali
aö hitta Margréti Oddsdóttur frá
Jörva, langömmu sona minna, og
ef til vill að skreppa í sumarbústað
tengdafjölskyldunnar á Bifröst.
Ekki veitir af hvíldinni. í sumar
mun ég og synimir fara til Noregs
í fimmtugsafmæh móðursystur
minnar og síðan í veiðiferðir hér
heima. Þá var kominn tími tíl að
baða yngri strákinn, bursta tenn-
urnar og koma honum í rúmið. Við
lásum smávegis í bók áöur en hann
datt út af. Stuttu síðar fóram við
hin líka að sofa og viðburðaríkum
mánudegi var þar með lokið.
Finnur þú finrni breytingar? 305
Þú þartt að minnka vindlareykingarnar um helming og við byrjum
strax.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
Nafn:
Heimili:.
ik
Vinningshafar fyrir þrjú hundraðustu og þriðju get-
raun reyndust vera:
1. Margrét Einarsdóttir 2. Katrin Valtýsdóttir
Heiðarholti 28 Haukanesi 5
230 Keflavík 210 Garðabæ
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, að verðmæti kr.
4.950, frá Htjómbæ, Hverflsgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækuraar, sem eru í verð-
laun, heita: Líki ofaukiö og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael að verð-
mætí kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út
af Fijálsri fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú frnim breytingar? 305
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
=vll