Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 27 Fréttir Austurbæjarskóli: Mál skóla- stjórans ráðast á næstunni Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra segir að á næstu dögum eða vikum ráðist hvort skólastjóri Aust- urbæjarskóla fer aftur til starfa í skólanum eða ekki. Vegna skipulags skólastarfsins þurfi aö segja af eða á um það hvort hann kemur aftur til starfa eða ekki. „Það hafa farið fram fundir með skólastjóranum og lögfræðingi hans. Maðurinn hefur verið í veikindafríi en nú líður að því að það verði að taka ákvörðun um þetta. Ég geri fast- lega ráð fyrir því aö ganga frá þessu áður en hugsanleg stjómarskigti eða ráðherraskipti verða,“ segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra. -GHS Treggáfaður maður dæmdur í tíu mánaða fangelsi: Haf ði kynferðismök við son sambýliskonu sinnar - geðlæknir mælti gegn fangelsisrefsingu sem hugsanlega gæti skaðað manninn Rúmlega tvítugur Austfirðingur hef- ur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir kynferðismök önnur en samræði við dreng á fimmta aldursári. Atvikið átti sér stað árið 1992 þegar maðurinn var 19 ára. Bjó hann þá með sér eldri konu og syni hennar. Drengurinn sagði móður sinni frá atvikinu sem átti sér stað eftir að hann og maðurinn höfðu farið saman í sturtu. Sendi hún drenginn til foður síns í framhaldi af því. Faðirinn til- kynnti svo um atburðinn til barna- verndamefndar. Á meðan á rannsókn málsins stóð var maöurinn sendur í greindarpróf. í vottorði sálfræðings, sem framkvæmdi prófið, kemur fram að greindarvisitala mannsins sé 71 stig, „eða á mörkum treggreindar sem miðast við 70 stig.“ Meö tilliti til þessa var geðlæknir beð- inn að meta sakhæfi mannsins. Þar kemur fram að persónuleika- þroski mannsins sé truflaður, „bæði vegna lágrar greindar og svo af ytri aðstæðum." Vísað er til þess að and- félagslegur persónuleiki einkenni manninn og hann sé einnig mjög háður öðrum og áhrifagjam. Þar kemur einnig fram að verkjalyf, sem maðurinn neytti daginn sem atburð- urinn átti sér stað, „geti truflað hvatastjóm, dómgreind og áttun“ hans eins og það er orðað í dómnum. Þar segir einnig að hugsanlega geti karlmenn með þessi persónuleika- einkenni leitað „í sambönd þar sem þeir þurfa ekki að upplifa vanmátt sinn, eins og sambönd við veikgeðja fólk eða böm.“ Geðlæknirinn segir jafnframt að refsing í formi fangelsisvistar muni ein og sér geta leitt til verulegs skaða fyrir manninn. „Búast má við að ýmsir óæskilegir þættir í hans per- sónuleika muni styrkjast, svo sem harðneskja, hömluleysi og ábyrgðar- leysi. Það er því mat undirritaðs að maðurinn þurfi virkan stuðning fag- aðila til að hjálpa honum að þroska veikbyggða þætti í persónuleika sín- um,“ segir geðlæknirinn. Með þessu segir hann að draga megi úr líkum á „óæskilegri og hvat- vísri hegðun og auðvelda manninum ábyrgð á eigin lífi.“ brotið var framið og ákærði var ein- í 10 mánaða fangelsi. Einnig var litið brot af hálfu sambýlismanns móður í ljósi þess að nokkuð var síðan ungis 19 ára þótti rétt að dæma hann til þess að hér var um gróft trúnaðar- drengsins að ræða. -pp QC Dolby Pro Logic Kannast þú við þaÖ að sitja í kvikmyndahús,i þar sem hljóðið leikur um þig og þú hefur það ó tilfinningunni að þú sért staddur inn í myndinni? Þessa tilfinningu getur þú nú fengið heim í stofu með Dolby Pro Logic útvarpsmagnaranum frá... r 1 SONY — MJXV'/Cia COfíiH ■V%. i'; se o o ; - : ''t -'i * ' T 1 L B O Ð « m m S V E R Ð SONY S T R - D 5 1 5 Þeir sem kaupa Dolby Pro Logic magnara er boðiS sértilboð á 70W miðjuhátalara og pari af 50W bakhátölurum á frábæru verði aðeins... SONY S S - C R 1 0 JAPIS BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI SIMI 562 5200 aö sjálfsögðu fylgir fjarstýring magnaranum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.