Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
3
Islensk hljómsveit
með alþjóðlegt nafn
- Fantasia stefnir á erléndan markað
Hljómsveitin Fantasia hefur starfað
eitt ár í núverandi mynd. Hljómsveit-
armeðlimir eru Jón Andri Sigurðar-
son á hljómborð, Trausti Heiðar Har-
aldsson á hljómborð, Tómas Gunnars-
son á gítar og um söng sér Selma
Bjömsdóttir. Textahöfúndur sveitar-
innar heitir Oddur Bjami Þorkelsson.
Unnið í
gegnum síma
Lagahöfundar sveitarinnar em þeir
Jón Andri og Trausti Heiðar. Opinber-
lega komu þeir fyrst fram í Landslag-
inu undir nafninu Digit en þegar
Selma bættist í hópinn fyrir tilstuðlan
Þorvalds Bjama (upptökustjóra) varð
Fantasia til. Fyrsta útgáfan undir
nafninu var lagið Tómarúm sem var
að finna í stuttmyndinni Negli þig
næst. Stuttu síðar kom titillagið út, þá
sungið af Stefáni Hilmarssyni.
Á þessum tíma bjuggu lagasmiðim-
ir á Akureyri. Selma fékk því oft aðeins
að heyra lögin á spólum eða í gegnum
síma nokkrum tímum áður en henni
var stefnt í hljóðver-til upptöku. Á
þessu varð hins vegar breyting þegar
drengimir Quttust til Reykjavíkur. ís-
lenskan varð að víkja fyrir alþjóðlegra
tungumáli sem hefur nú skilað sveit-
inni samningi í Þýskalandi.
Útgáfa í
Þýskalandi
Þegar íslenskan vék fyrir enskunni
varð lagið Seven til. Það kom út á plöt-
unni Reif í skeggið í lok nóvember á
síðasta ári og nú í janúar fékk hljóm-
sveitin tilboð frá þýska útgáfufyrir-
tækinu ZYX. Innan tiðar verður síðan
gefin út smáskífa með fimm útgáfum
af laginu Seven, Qómm endurhljóð-
blönduðum af lagahöfundum og einni
af diskótekara á Akureyri. Þess má
geta að hljómsveitinni er hér sýnt mik-
ið traust því allajafna em fengnir er-
lendir aðilar til þess að endurhljóð-
blanda lögin.
Einnig er unnið að því hörðum
höndum að koma sveitinni á framfæri
T Ó N L I S I A R
•iifiMlfi /Hl
Morríssey - Woríd Of Morrissey
Hin fagra veröld
Morrisseys
Það er skammt stórra högga milli hjá Morrissey þessa dagana.
Fyrir nokkru kom út aldeilis mögnuð safnplata með öllum
smáskífum Smiths og um svipað leyti kom sú plata sem hér er
til umfjöllunar út en hún inniheldur safh af gömlum og nýjum
lögum Morrisseys. Elsta lagið er frá 1989 en þau yngstu ný og
hafa ekki komið út á plötu fyrr. Og það þarf ekkert að orðlengja
það að Morrissey bregst ekki hér frekar en fyrri daginn. Hver
perlan á fætur annarri er borin fram á þennan látlausa, fágaða
máta sem hefur einkennt tónlist Morrisseys um langt árabil.
Eitt magnaðasta lag plötunnar er tæplega tíu mínútna útgáfa
Morrisseys af gömlu perlunni Moon River eftir Henry Mancini
en ef nefna á nokkur önnur lög sem standa upp úr má geta
lagsins The Last of the Famous International Playboys og nýju
laganna þriggja Whatever Happens I Love You, Have-Á-Go
Merchant og Boxers. Þau gefa sannarlega góð fyrirheit um það
sem koma skal frá hendi Morrisseys á næstunni.
- Sigurður Þór Salvarsson
annars staðar í Evrópu. Útgáfufyrir-
tækið ZYX hefur tekið að sér að dreif-
ingu á kynningarefhi sem mun meðal
annars ferðast tU staða í Bandaríkjun-
um og Asíu.
Nýtt lag með hljómsveitinni er nú
að finna á plötunni Reif í kroppinn og
ber það nafnið Picture this. Spurð um
tónlistarstefnu svarar sveitin því til að
hér sé um að ræða melódíska danstón-
list sem henti jafht til hlustunar inn-
an og utan dansstaðanna.
Lifandi tónlist-
arflutningur
Nýlega hóf Fantasia æfingar á efni
til Qutnings á opinberum stöðum. SpQ-
að hefur verið á Tunglinu, Hótel ís-
landi og 1929 á síðasfiiðnum mánuð-
um. Hljómsveitin leggur mikla
áherslu á að hér sé um lifandi tónlist-
arQutning að ræða. Bassaleikur og
trommuleikur er það eina sem spQað
er af bandi.
Þrátt fyrir að mikið sé aö gera hjá
hljómsveitarmeðlimum er stefnt á
spQamennsku á Akureyri nú um pásk-
ana. Föstudaginn langa spilar
Fantasia i 1929 og daginn eftir fær
yngri kynslóöin að njóta hennar í Dyn-
heimum. Æfmgar hafa farið fram í
heimahúsum á síðasQiðnum mánuð-
um og hefur samstarfið gengið vel
enda góður móraU í sveitinni. Akur-
eyr ingar eiga þvi von á góðu um páska-
helgina.
Plata innan
18 mánaða
Fantasia treystir sér ekki tQ að lofa
plötu fyrir næstu jól en út skal hún
koma innan næstu 18 mánaða. „Hér
er farið eftir lögmálum markaðarins,"
samsinna Jón Andri og Selma. „Plat-
an kemur ekki út fyrr en fóUc er farið
að biðja um plötu og nóg er tU af góðu
efni. Gæðin eru í fyrirrúmi."
Héðan í frá mun Fantasia hins veg-
ar beina allri framleiðslu á tónlist inn
á erlendan markað án þess þó að
íslenskum uppruna.
-GBG
The Ukrainians - Kultura:
★★★
Eitt er víst að ég hef aldrei heyrt neitt
þessu líkt áður og finnst það hafa tekist
bara vel hjá þeim að blanda saman þessum
afar ólíku tónlistarstefnum. Söngstíllinn er
mjög dramatískur en tónlistin oftast hröð
og grípandi, stórvel fallin til dansæfinga.
-PJ
The Chieftains - The Long Biack Veil:
' ★★★★
Paddy Maloney, pródúsent plötunnar,
sveigir alla gestina að sinni stefhu og tekst
það vel. Það er raunar erfitt að hrósa ein-
um fremur en öðrum. -ÁT
The Smiths — Singles:
★★★★
Það er eiginlega ótrúiegt að hljómsveitin
skyldi afreka allt þetta á ekki lengri tíma
en raun ber vitni.
-SÞS
Weezer-Weezer
★★★
Æskukraftur og leikgleði ræður ríkjum
á mjög jafiigóöri plötu en besta lagið er My
Name Is Jonas, einfaidur rokkari sem virk-
arvel.
-PJ
Morphine - Yes:
★★★★
Textamir falla mjög vel inn í tónlistina,
eru í kúl lazy-jazz filingi og oft ansi sniðug-
ir. Yes er frumleg plata sem kitlar eyrun
unaðslega.
-PJ
Bruce Springsteen - Greatest Hits:
★★★
Þetta safn sannar það sem löngu var vit-
að að Bruce Springsteen er bestur þegar
rokkið er þanið og sér í lagi þegar hann hef-
ur sér til fulltingis hljómsveitina E-Street
Band.
-ÁT