Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Page 18
18
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
Dagur í lífi Geirs Sveinssonar landsliðsfyrirliða:
Valinní
úrvalslið
Geir Sveinsson var valinn í úrvalslið HM og hampar hér viðurkenningu sinni. DV-mynd Brynjar Gauti
Ég vaknaði frekar seint þennan
sunnudagsmorgun, um hálfellefu, en
ástæða þess var sú að við hjónin fór-
um að borða á Hard Rock kvöldið
áður ásamt öðrum landsliðsmönnum
og mökum. Á eftir fórum við síðan á
aðalskemmtistað HM-keppninnar,
Kaffi Reykjavík. Maður fór því frek-
ar seint að sofa.
Ég byrjaði daginn á að fá mér
Cheerios og kafíisopa. Kíkti í Mogg-
ann en eiginkonan, Guðrún Helga
Amarsdóttir, var ennþá sofandi og
sonurinn, Arnar Sveinn, hafði sofiö
hjá vini sínum. Ég var síðan að dóla
mér fram til hálfeitt en þá hreiðraði
ég um mig fyrir framan sjónvarpið
tii að horfa á leikinn um þriðja til
fjórða sætið, Þýskaland - Sviþjóð.
Leikurinn var mjög góður en mér
fannst verst hversu lélegir dómar-
amir vora. Ég horfði á leikinn með
miklum áhuga, hafði reyndar ætlað
mér að fara inn í höll og sjá hann
þar en nennti því svo ekki. Maður
var í hægagangi fram eftir degi.
Með fiðring í maganum
Þegar leiknum lauk fórum við að
sækja strákinn í pössun. Síöan voru
aliir klæddir upp áður en haldið var
í höllina til að horfa á úrslitaleikinn.
Þegar við komum inn í Laugardals-
höll fengum viö okkur Subway-
samlokur enda hafði maður gleymt
að borða. Síðan vora þær maulaðar
meðan við horfðum á leikinn. Mér
leist ekki eins vel á þennan leik og
þann fyrri. Hann var ekki eins góður
gæðalega séð þar sem munurinn var
of mikill á liðunum.
Ég reyndi að fylgjast rólegur með
leiknum en var þó meö fiðring í
maganum. Ég vissi aö ég ætti mögu-
leika á að verða valinn í úrvalshð
HM. Mér hafði verið tilkynnt það
deginum áður og átti að fá endanlega
að vita um þetta í lok úrslitaleiksins.
Það var því nokkur spenningur í
manni þar sem hugurinn var við
þetta.
Þegar um fimmtán mínútur vora
eftir af leiknum kom Stefán Konráðs-
son mótsstjóri og tilkynnti mér að
ég hefði verið valinn og ætti að gera
mig kláran í að taka á móti viður-
kenningu vegna þess. Mér leið mun
betur og gat fylgst rólegur með leikn-
um til enda.
Glæsileg viðurkenning
Þegar leiknum var lokið fór ég bak-
sviðs og klæddi mig í íslenska lands-
liðsbúninginn en missti þá af verð-
launaafhendingunni. Ég beið síðan
eftir að verða kallaður upp og þaö
var virkilega góð tilfinningin að
ganga í salinn við öll þessi fagnaðar-
læti. Þetta er glæsileg viðurkenning
og ég var auðvitað mjög stoltur og
glaður. Maöur hafði uppskorið eitt-
hvað þó að gengi liðsins hefði ekkert
verið of gott.
Ætli klukkan hafi ekki veriö farin
að nálgast hálfsex þegar við fórum
út úr höllinni. Mér hafði verið færð-
ur fallegur blómvöndur og ég ákvaö
að gefa móður minni hann með þakk-
læti fyrir allt sem hún hefur gert
fyrir okkur í tengslum við handbolt-
ann. Hún á ekki lítinn þátt í þessu.
Mamma tók á móti okkur brosandi
enda hafði hún verið að fylgjast með
í sjónvarpinu. Hún bauð upp á kaffi
og við sátum þar í klukkutíma.
Vel heppnað lokahóf
Þá var strákurinn skilinn eftir hjá
ömmu sinni því viö Guðrún vorum
á leið í lokahóf keppninnar. Við drif-
um okkur því heim til aö skipta um
föt en við áttum að vera mætt út á
Hótel Sögu klukkan átta. Það var
mjög vel heppnað kvöld. Erlendu lið-
in, sem enn vora á landinu, vora
þarna með okkur en því miður
þurftu heimsmeistaramir að yfirgefa
veisluna áður en þeir fengu aðalrétt-
inn þar sem flugvélin beið eftir þeim.
- En áður en þeir fóru sungu Diddú
og Bergþór Pálsson fyrir þá á frönsku
og þeir vora hylltir margoft. Al-
mennt tókst þetta mjög vel, menn
vora kátir en jafnframt þreyttir.
Maður heyrði mörg andvörpin frá
þeim sem höfðu staðið í öllum undir-
búningnum, það var viss léttir að
keppninni væri lokið en samt al-
menn ánægja með hvemig til tókst.
Útlendingar héldu ræður og lýstu
yfir mikilli ánægju með keppnina,
hún væri íslendingum til sóma.
Við sátum í góðu yfirlæti á Mímis-
bar fram eftir nóttu en þá bauð Siggi
Sveins okkur ásamt fleira fólki heim
til sín. Klukkan var orðinn sex þegar
maður hélt heim á leið í morgunsól-
inni - heimsmeistarakeppninni var
lokiö.
Finnur þú fimm breytingar? 311
Ef ég væri gæddur öllum þessum hæfileikum sem þú lýsir eftir
hefði ég kvænst einhverri annarri.
Nafn:.
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundraðustu og níundu
getraun reyndust vera:
1. Vilborg Þ. Skúladóttir 2. Karen Ósk Birgisdóttir
Eyrargötu la Löngumýri 16
820 Eyrarbakka 210 Garöabæ
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau meö krossi
á myndinni tii hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, HverOsgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvaisbækur. Bækumar, sem era í verð-
laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur,
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar era gefhar út
af Frjálsri fjölmiölun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú fimm brcytingar? 311
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík