Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1995, Page 35
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
43
Læknar, sem áður ræddust við á eðlilegan hátt, spiluðu golf, giftu börn sín innbyrðis og kepptu í jeppavélar-
stærðum, hafa nú slitiö öllu stjórnmálasambandi.
Skammarlegar
læknadeilur
íslenskir læknar eru komnir í
hár saman út af langþreyttu tilvísa-
namáli. Mikil skálmöld er runnin
upp; menn talast ekki við nema í
beinskeyttum blaðagreinum eða
hnitmiðuðum fjölmiðlaviðtölum.
Læknar, sem áður ræddust við á
eðlilegan hátt, spiluðu golf, giftu
böm sín innbyrðis og kepptu í
jeppavélarstærðum, hafa nú slitið
öllu stjórnmálasambandi. Vígstað-
an er skýr; heimilislæknar standa
í einum flokki, sérfræðilæknar í
hinum, báðir hafa safnað að sér
hði, peningum, rökum, fjölmiðla-
styrk og vopnum. Samtök lækna
eru aö klofna í tvö félög sem vænt-
anlega munu slást opinberlega í
fjölmiðlum eitthvað fram á næstu
öld. Heimilislæknar telja að sér-
fræðilæknar hafi vegið ómaklega
að sér og starfsheiöri sínum. Sér-
fræðilæknar telja á móti að heimil-
islæknar hafi ljáð ráðherra lið í
ómaklegri herferð hans gegn at-
vinnuréttindum, lækningaleyfi og
peningaveskjum þeirra. Nú er beð-
ið eftir því að blásið verði til loka-
orrustunnar og barist til þrautar
um sjúklinga og peninga. Þetta
fjölmiðlaskítkast er auðvitað lækn-
um ekki sæmandi og skaðar ímynd
stéttarinnar.
Hippókrates hefði
reytthársitt
Nökkvi læknir hefur lengi haft
áhyggjur af þessari þróun. Hann
ákvað að leita svara hjá sjálfum
föður læknisfræðinnar, Hippókrat-
esi, og sjá hvað hann hefði um þessi
mál að segja. Hann segir í ritum
sínum að hveijum lækni beri að
„stunda velsæmi og sýna alþjóð að
hann í alvöru sé velviljaður heið-
ursmaður og mannvinur". Annars
staðar segir hann: „Það er alfs ekki
hneykslanlegt að læknir kalli stétt-
Á laeknavaktmiú
v1sm Óttar Guðmundsson læknir
arbræður til aöstoðar eða ráða-
gerða. Aldrei mega læknar rifast
og fara niðrandi orðum hver um
annan því að aldrei skyldi læknir
öfunda stéttarbróöur." Hippókrat-
es hefði reytt hár sitt í örvinglan
við lestur greina í Morgunblaðinu
upp á síðkastið þar sem þessar ein-
fóldu reglur eru þverbrotnar. Þessi
deila er því í engu samræmi við
gömul siðalögmál lækna og sýnir
vel hversu afvegaleidd nútíma
læknisfræði er. Samkvæmt skoð-
unum Hippókratesar er læknis-
fræði list eða heimspekigrein en
ekki tæknivætt skrímsli sem lítur
á sjúklinginn sem mælanlega ein-
ingu.
Of vísindaleg læknisfræði getur
gert út af við lækninn. Nútíma-
læknar læra að rannsaka sjúkiinga
sína á milljón mismunandi vegu í
ótrúlegustu tækjum veraldar en
gleyma oft kjama læknisfræðinn-
ar, að sinna sjúkhngnum öllum;
líkama og sál. Margir læknar telja
læknisfræði einfalda vísindagrein
á borð við eðlisfræði eða efna-
fræöi. En þekking og tækni duga
ekki ein og sér til að afla lækni
gengis heldur skiptir persónuleiki
hans ekki minna máli. Gamall pró-
fessor sagði eitt sinn: „Til eru 3
flokkar skurðlækna; sá fyrsti gríp-
ur til hnífsins og er skurðlæknii-
um leið; annar er aðstoðarmaður
skurölæknis í 10 ár og lærist listin
smátt og smátt; sá þriðji verður
aidrei skurðlæknir þó að hann beiti
hnífnum alla ævi.“ Annars staðar
segir Hippókrates; „Það er ljóst að
heimspekingurinn verður að bera
gott skynbragð á læknislist og
læknirinn á heimspeki; þá verður
læknirinn heimspekilegur og guð-
unum líkur. í rauninni er mismun-
urinn ekki mikill því að allt sem
heimspeking má prýða verður
læknirinn að hafa til síns ágætis:
ósíngirni, tigna kurteisi, nærgætni,
hógværð, virðingu fyrir sjálfum
sér, skarpskyggni og stilhngu.
Hafa týnt
heimspekingnum
Þegar þetta er skoöað sést berlega
hvert er vandamál stéttarinnar.
Læknar hafa týnt heimpekingnum
einhvers staðar á langri leið sinni.
Með honum misstu þeir af mörgum
þessum góðu eiginleikum en tóku
að stunda þrætubókarhst sem
sæmir þeim alls ekki ef þeir vilja
bera einhverja virðingu fyrir
starfsgrein sinni. Áherslur í
læknakennslu hafa breyst mjög á
hönum áratugum. Nútímalæknis-
fræði er tæknivædd sjúkdóma-
verkfræði þar sem heimspekin og
maðurinn sjálfur gleymast algjör-
lega. Nútímalæknirinn hefur misst
öll tengsl við sögu sína og heldur
að IBM, Macintosh eða Hewlett
Packard séu feður læknisfræðinn-
ar en ekki þeir Hippókrates eða
Soranos. Þessi firring og tengsla-
leysi við hefðir og sögu greinarinn-
ar valda þvi að læknar missa aha
stjórn á sér og fara að þverbijóta
allar kenningar og fræði Hippó-
kratesar. Þá er ekki við góðu að
búast.
Miðskólinn
einkaskóli - grunnskóli
Fríkirkjuvegi 1, Reykjavík,
sími 562-92-22.
Síðustu innritunardagar fyrir næsta skólaár eru þriðjudagur
30. og miðvikudagur 31. maí.
Skólastjóri
Varnarliðið/Laus störf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða tvo
matreiðslumenn til starfa.
Umsækjendur séu lærðir matreiðslumenn með mikla
reynslu. Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist.
Skriflegra meðmæla er óskað.
Umsóknir beristtil Ráðningardeildar Varnarmálaskrif-
stofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 92-11973, eigi
síðar en 6. júní 1995.
Starfslýsingar liggja þar frammi til aflestrar fyrir
umsækjendur og er þeim bent á að lesa þær áður
en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
ISPÓ - Góður og ódýr kostur!
Ispó er samskeytalaust akrýlmúrkerfi.
Yfir600 hús
klædd á síðast-
liðnum 14árum.
5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni
og vinnu, þér að
kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3-210 Garðabæ - sími 658826
Kvótakerfi í sjávarútvegi
Fiskveiðistefnan - reynslan
og framtíðin
Ráðstefna um fiskveiðistjórnun
haldin af
Fiskifélagi íslands
á Hótel Sögu, Ársal
miðvikudaginn 31. maí 1995 kl. 13-18
Dagskrá:
1. Fiskveiðistjórnunarkerfi annarra landa.
Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla íslands.
2. íslensk fiskveiðistjórnun og hagkvæmni hennar.
Snjólfur Ólafsson, dósent við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla íslands.
3. íslensk fiskveiðistjórnun og eignarhald í sjávarút-
vegi.
Agnar Helgason, doktorsefni frá Brunel Univers-
ity, London.
4. íslensk fiskveiðistjórnun og brottkast fisks.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Farmanna- og
fiskimannasambands íslands.
5. Aðrir valkostir fiskveiðistjórnunar, eru þeir raun-
hæfir?
Þorvaldur Garðarsson, skipstjóri, Þorlákshöfn.
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, Flateyri.
Sigurbjörn Svavarsson, útgerðarstjóri Granda hf.,
Reykjavík.
Skráning er hjá Fiskifélagi íslands í síma 55-10-500 eða á
faxi 552-7969, skráningargjald er kr. 1.500. Vinsamlegast
skráiö ykkur sem fyrst, en hægt er að skrá sig til hádegis
þann 31. maí nk.