Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Side 4
4
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
Fréttir
Tímamótakj arasamningar í álverinu:
Laun hinna laegstlaun-
uðu hækka langmest
- einn merkilegasti jafnlaunasamningur á vinnumarkaðnum, sagði Gylfi Ingvarsson
„Kjarasamningurinn er fyrir
margra hluta sakir merkilegur. Viö
höfum gert kjarasamning sem hækk-
ar verulega laun þeirra lægstlaun-
uðu og gerir hann einn merkilegasta
jafnlaunasamning sem til er á vinnu-
markaðnum. Jcifnframt fylgir samn-
ingnum yfirlýsing verkalýðsfélag-
anna um samstarf við afgreiðslu
mála sem er hka mjög merkilegt at-
riði. Þess vegna held ég að þeim tíma
sem í samningana fór hafi verið vel
varið,“ sagði Gylfi Ingvarsson, aðal-
trúnaðarmaður í álverinu í Straum-
svík, eftir undirritun nýrra kjara-
samninga í gær.
Það sem gerir þennan nýja kjara-
samning svo merkilegan er aðallega
tvennt. I fyrsta lagi verður nú aðeins
einn launataxti fyrir ófaglært starfs-
fólk í álverinu, en þeir eru nú fjórir.
Þetta þýðir að þeir lægstlaunuðu
hækka stórlega í launum. í öðru lagi
er það yfirlýsing verkalýðsfélaganna
um að þau muni í framtíðinni vinna
saman sem ein heild. Þetta þýðir í
raun að í framtíðinni verður væntan-
lega gerður kjarasamningur við einn
aðila í stað þess að nú eru 9 verka-
lýðsfélög sem semja þarf við. Og ann-
að sem að starfsfólkinu í álverinu
snýr verður sameiginlegt fyrir alla
en ekki bara ákveöna hópa eins og
nú er.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, sagði að VSÍ mæti það svo
að laun hækkuðu hjá álversfólki um
11 prósent en launahækkunin í
samningum ASÍ og VSÍ í vetur er
leið hefði verið 7 prósent.
Jafnframt kjarasamningum var
undirrituð yfirlýsing þess efnis að
verkfalhnu sem hefjast átti á miö-
nætti síðasthðið sé frestað um 6 sól-
arhringa á meðan kynning á efni
hans og atkvæðagreiðsla fer fram.
Komi til þess að samningurinn verði
fehdur hjá einhverju hinna níu stétt-
arfélaga sem aðild eiga að honum
hefst verkfall á miðnætti 30. júní
næstkomandi.
SigurðurT. Sigurðsson:
Þokkalega
ánægður og mæli
með samningnum
„Maður er aldrei fullkomlega
ánægður meö kjarasamninga en ég
er þokkalega ánægður með þennan
samning. Miðað við hvernig kaupin
hafa gerst á eyrinni mun ég una hon-
um og mæla með honum,“ sagði Sig-
urður T. Sigurðsson, formaður
Verkamannafélagsins Hlífar í Hafn-
arfirði, í samtali við DV. Félagar úr
Hlíf eru tjölmennasti hópurinn í ál-
verinu.
Sigurður var spurður hvað það
hefði verið sem tók stífluna úr svo
snögglega í þessum samningum.
„Stíflan losnaði mest fyrir það að
ísal setti sem skilyrði að ná einhvers
konar samstarfssamningi við okkur.
Þeir óttast þau 9 verkalýðsfélög sem
þama eiga aðild að ef þau færu að
beita keðjuverkfollum eða einhverju
slíku. Það hefur hins vegar aldrei
gerst hjá okkur og engin dæmi um
það í þau 26 ár sem álverið hefur
starfað. Við komum samt til móts við
þá. Það sem áður var munnlegt sam-
þykki milli verkalýðsfélaga er nú
komið undirritaö á pappír.
Þá er fækkun launaflokka og sú
kauphækkun sem lægstlaunaða fólk-
iö fær þess vegna umtalsverð. Því er
hér um merkilegan jafnlaunasamn-
ing að ræða," sagði Sigurður T. Sig-
urðsson.
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur VSÍ:
Töluverð launajöf nun
„Það sem okkur er efst í huga nú
er aö verkfallinu hefur verið frestað.
Það er enn ekki kominn samningur
á og verður ekki fyrr en á þriðjudags-
kvöld eftir atkvæðagreiðslur um
hann í félögunum. Það er margt já-
kvætt í samningnum og kemur von-
andi til að breyta miklu fyrir alla,“
sagði Hannes G. Sigurðsson, hag-
fræðingur VSÍ og aðalsamningamað-
ur ísals, eftir undiritun kjarasamn-
inganna í gær.
Hann var spurður hvaða atriði það
væru í samningunum sem honum
þætti merkilegust?
„Það er þessi opnun sem varð í vik-
unni þegar viö gengum til móts við
þeirra meginkröfuren það voru til-
færslur í þeim launaflokkum sem eru
við lýði í álverinu. Þeim er fækkað
verulega og verkafólk fer í einn launa-
flokk en iðnaðarmenn í annan. Þess
vegna er um töluverða launajöfnun að
ræða,“ sagði Hannes G. Sigurðsson.
Síldarævintýrinu lokið:
Átján þúsund lestir
eftir af kvótanum
„Við erum snúnir við og erum á
heimleið og ég veit ekki betur en að
allur íslenski flotinn sé á heimleið.
Það hefur engin síld fundist, hvorki
í íslensku lögsögunni né síldarsmug-
unni. Menn giska á að síldin sé farin
norður eftir, inná Jan Mayen-svæð-
ið,“ sagði Albert Sveinsson, stýri-
maður á Höfrungi AK, í samtali við
DV síðdegis í gær.
Þar með er ljóst að veiðum er lokið
aö þessu sinni úr norsk/íslenska
stofninum. Rúmlega 18 þúsund lestir
af síld eru óveiddar af þeim kvóta
sem íslendingar skömmtuðu sér úr
stofninum.
Það er ljóst að sjómannaverkfallið
er orsök þess að ekki tókst að veiða
upp kvótann. Miðaö við að greiddar
hafa verið 6 þúsund krónur fyrir
tonnið af síld til bræðslu eru það um
108 milljíonir króna sem syntu burt
úr íslensku landhelginni norður til
Jan Mayen. Upphæðin hækkar til
muna ef miðað er við útflutnings-
verðmætið.
Það er ekki eins og þessir tveir heiðursmenn, Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlífar, og Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, hafi verið að stríða siðustu vikurnar um krónur og aura og önnur kjör í álverinu.
Stríð sem næstum kostaði stöðvun álversins sem hefði kostað milljarða króna. Myndin er tekin í gær eftir að
nýir kjarasamningar ísal og níu verkalýösfélaga höfðu verið undirritaðir. DV-mynd GVA
Allir formenn sóknarnef nda
eru andstæðir hugmyndinni
- segir Guömundur Einarsson
Innan Prestafélagsins eru til málaráðherra skipaði eiga sæti leið og það borgar þau borgar það
umræöu hugmyndír um að fella fulltrúar tveggja hagsmunaaöila, fyrir þessa kirkjulegu þjónustu Ég
niður innheimtu fyrir aukaverk ríkisvaldsins og prestanna, en get tekiö sem dæmi að prestur í
presta og greiða þeim í staðinn þriðji aðilinn á engan fulltrúa í 1.000 mannaprestakallihefðin.ooo
meðaltalsgreiðslur af sóknargjöld- nefndinni og hann er látinn borga. krónur fyrir skírnir, fermingar og
um. Stofnaöur verði rekstrarsjóður Það er auövelt að koma með svona giftingar að meöaltali og 6.000 fyrir
við hvert prestsembætti og er talað tillögu en hún vekur ekki hrifningu jarðarfarir. Af sjóðnum yrði prest-
um aö tæp 5% af sóknargjöldum hjá okkur. Allir formenn sóknar- urinn að greiða ýmsan kostnað
renni í sjóðinn auk embættiskostn- nefnda í ReyWavikurprófastsdæmi þannig að þetta yrði ekki allt laun
aðar frá ríkinu en enginn auka- vestra eru andstæðir þessu því að til hans,“ segir séra Kristinn Ágúst
kostnaöur leggist á sóknarbörn og margar kirkjur eru illa staddar Friðfinnsson.
þá sem óska eför verkum prest- fjárhagslega. Ef þær missa tekjur Dómsmálaráöherra skipaöi fjög-
anna. Guðmundur Einarsson, veröa þær að draga úr umsvifum í urra manna nefnd til aö koma meö
formaður sóknarneindarinnar á safnaöarstarfinu," segir Guð- tillögur um nýtt fyrirkomulag á
Seltjarnamesi, segir að hugmynd- mundur Einarsson. aukagreiðslum til presta fyrir 1.
imar hafi mætt mikilli andstöðu „Við erum ekki að tala um neínar október og hafa þessar hugmyndir
því að þær leiði til niðurskuröar í stórar upphæðir í þessu sambandi komið til umræðu innan nefndar-
safnaðarstarfi kirknanna. heldur erum við bara að tala um innar. Séra Kristinn situr í nefnd-
„Þaö er ákaflega einkennilega að að hætta að innheimta fyrir auka- inni fyrir hönd Prestafélagsins.
þessu staðið. í nefnd sem kirkju- verk, Fólk borgar sóknargjöld. Um ' -GHS