Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
39
Þær hófu nám vegna áhuga á
bókmenntum, íslensku og öðrum
tungumálum. Þegar þær voru
komnar nokkuð áleiðis lá það
nokkuð beint við að fara alla leið.
Erna Friðfinnsdóttir og Erna Grét-
arsdóttir voru meðal 40 nemenda
sem útskrifuðust úr öldungadeild
Fjölbrautaskólans í Breiðholti í
vor. Þær eru 47 og 52 ára gamlar
og stunduðu báðar fulla vinnu
samhliða náminu Og ráku jafn-
framt heimili, önnur þriggja
manna og hin sex manna. Þær gera
lítið úr afreki sínu og segja márga
hafa verið í svipaðri aðstöðu og þær
en viðurkenna að tíminn hafi oft
verið knappur.
Vantaði nokkra tíma
í sólarhringinn
„Það vantaði eiginlega nokkra
tíma í sólarhringinn. Maður fór oft-
ast í skólann beint úr vinnu. Tímas-
korturinn kom eðlilega niður á
náminu. Við heföum viljað gefa
okkur meira að því,“ segja þær.
Erna Grétarsdóttir, sem í upphafi
náms var með sex manna heimili
og í fullu starfi sem matráðskona
og síðar liðsmaður fyrir fatlaða,
segist upphafiega hafa farið í
Námsflokka Reykjavíkur til að
læra ensku þar sem henni hafi
leiðst yfir sjónvarpinu heima á
kvöldin. Henni þóttu fleiri greinar
áhugaverðar og innritaði sig í
kjarnagreinar sem voru, auk ens-
kunnar danska, íslenska og stærö-
fræði. „Ég var þrjár annir í Náms-
flokkunum og fannst svo gaman í
náminu að ég ákvað að halda áfram
á félagsfræðibraut í framhalds-
skóla og byrjaði haustið 1991. Ugg-
laust hefur blundað í mér gamall
draumur um stúdentspróf," segir
hún. Hún hyggur á framhaldsnám
í Háskóla íslands en ætlar fyrst að
taka sér ársfrí frá námi.
Átti ekki von
á að geta þetta
Erna Friðfinnsdóttir, sem hefur
verið við flugfreyjustörf í 27 ár,
segir það hafa alls ekki hafa verið
markmið hjá sér að taka stúdents-
próf þegar hún hóf nám á nýmála-
braut í öldungadeildinni 1988. „Ég
átti ekki von á að ég gæti verið í
þessu námi vegna minnar vinnu.
Maður er bara þannig skapi farinn
að maður klárar það sem maður
byrjar á. Það tók reyndar sinn tíma
því ég eignaðist dóttur fljótlega eft-
ir að ég hóf námið. í rauninni geta
fáir.í fullri vinnu klárað öldunga-
deildarnámið á fjórum árum. Það
er miklu samþjappaðra en í dag-
deild skólans."
Hélt stúdentsveislu
með syninum
Hún kveðst hafa tekið út fríin sín
í flugfreyjustarfinu þegar próf
stóðu yfir. „Það kom sér líka vel
að sonur minn var að að ljúka stúd-
entsprófi um leið og ég. Hann út-
skrifaðist úr Menntaskólanum við
Sund degi eftir að ég útskrifaðist
og við héldum stúdentsveisluna
saman. í prófunum vöktum við
hvort annað á morgnana og lásum
svo saman og skiptumst á glósum.
Við fengum stundum að vera ein
Erna Grétarsdóttir og Erna Friðfinnsdóttir settu upp hvita kolla í vor að loknu miklu erfiði. Með náminu í
öldungadeild Fjölbrautaskólans i Breiðholti voru þær í fullu starfi og ráku stór heimili. DV-mynd GVA
heima í próflestrinum til að við
fengjum næði.“
Nutu fulls
stuðnings heima
Þær nöfnur eru sammála um að
ekki hefði verið hægt að stunda
námið hefðu þær ekki notið fulls
stuðnings heima fyrir. „Maðurinn
minn var svo hugulsamur að færði
mér stundum leigusamning upp á
nokkra daga í Ölfusborgum fyrir
próf,“ segir Erna Grétarsdóttir.
„Reyndar skildu margir ekki
hvernig ég fór að þessu því þeim
þótti heimili mitt eins og járnbraut-
arstöðin í Kaupmannahöfn þar sem
allir eru að koma og fara allan tím-
ann. Börnum og barnabörnum
þótti sjálfsagt að ég væri í náminu.
Sjö ára dóttursonur minn, sem fór
með mér að sækja stúdentshúfuna,
Þó svo aö þetta hafi verið strang-
ur tími að mati beggja þótti þeim
óskaplega gaman meðan náminu
stóð og eru vissar um að þær eigi
eftir að glugga í auglýsingar frá
tómstundaskólum eða öðrum
kvöldskólum næsta haust. Erna
Grétarsdóttir stefnir á nám í heim-
speki og sögu við Háskóla íslands
eftir eitt ár. Nafna hennar Frið-
finnsdóttir hefur ekki hug á að fá
sér aðra starfsmenntun, þó svo að
hún fari í einhverjar greinar í há-
skóla. Hún segir nám ágætis leik-
fimi fyrir heilann og ætlar að halda
áfram í sínu starfi.
Ósáttar við skyldu-
tíma í saumaskap
Sumt í náminu voru þær ekki
sáttar við eins og til dæmis að þurfa
að sækja kennslustundir í smíði og
saumum. Erna Grétarsdóttir hafði
verið verkstjóri á saumastofu í
nokkur ár og nafna hennar kvaðst
einnig hafa saumað mikið í gegnum
tíðina, dragtir, kjóla og annað.
Þeim þótti því svolítið kjánalegt að
þurfa að setjast niður í skólastofu
til að læra að sauma einfalda hluti.
„En það er verið að breyta þessu
sem betur fer. Það hefði verið betra
að fá fleiri tíma í þeim greinum sem
maður hefur sérstakan áhuga á og
hyggst jafnvel leggja stund á í há-
skóla. Þegar fólk er komiö á okkar
aldur veit það betur hvað það ætlar
sér. En auðvitað verður að vera
viss kjarni í náminu.“
Kennararnir
skilningsríkir
Kennararnir sýndu aðstæðum
nemenda í öldungadeildinni mik-
inn skilning, að mati nýstúdent-
anna. „Þeir voru ótrúlega tillitss-
amir. Ef maður gat ekki vegna
vinnu verið viðstaddur þegar skila
átti verkefnum eða þegar skyndi-
próf fóru fram fékk maöur frest.
Það þýddi í raun aukavinnu fyrir
kennarana því þeir þurftu þá að
búa til annað próf. Én svo erum
við líka þeirrar skoðunar að kenn-
urunum þyki yfirleitt gaman að
kenna í öldungadeild. Nemendurn-
ir eru áhugasamir og horfa
kannski öðrum augum á námsefnið
og hafa kannski meira til málanna
að leggja en þeir sem yngri eru.
Við höfum grun um að kennararn-
ir læri svolítið á okkur líka.“
Síðastliðið haust voru um átta
hundruð nemendur innritaðir í
öldungadeild Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, að því er nöfnurnar
greina frá. Meðalaldur nemenda
hefur lækkað frá því sem hann var
í upphafi. Þeir sem horfið hafa frá
námi í dagskóla hefja oft nám í öld-
ungadeild fáeinum árum seinna.
Félagslíf meðal nemenda var lítið
sem ekkert því allir þurftu að flýta
sér heim seint á kvöldin að loknum
löngum vinnudegi.
Strangur en
skemmtilegur tími
vildi meira að segja að ég færi aftur
í stúdentspróf til þess að ég gæti
fengið aðra húfu handa honum.“
Það vantaði nokkra
tíma í sólarhringinn
- Erna Friðfinnsdóttir og Ema Grétarsdóttir lögðu á sig mikið erfiði til að ljúka stúdentsprófi
1