Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 36
44 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 Sviðsljós Haraldur konungur hefur losað sig við 20 kiló. Hafa léstum sam- tals 40 kíló Norðmenn hafa tekið eftir því aö það er ekki bara forsætisráð- herrá þeirra, Gro Harlem Brundtland, sem hefur grennst í vetur heldur einnig Haraldur konungur. Menn velta því fyrir sér hversu mörg kíló hafa runnið af þeim og sumir giska á að hvort um sig hafi misst allt að tuttugu kílóum. Hvorugt þeirra hefur farið í töfrakúr heldur einungis borðað minna en áður og gætt þess að snæða hollan mat. Þau hafa foriö varlega í sakimar við hlaðin veisluborð og haft í buga aö áfengi er fitandi. Haraldur kon- ungur hefur alltaf iðkað íþróttir en á síðustu árum hefur hann þyngst talsvert. Síöastliðinn vet- ur ákvað hann að tími væri kom- inn til að gera eitthvað í málinu og hefur greinilega tekist það. Gro forsætisráðherra hefur gengið vel við megrunina. Karl og Díana: Sættir ekki útilokaðar Karl Bretaprins og Díana prinsessa hafa komist að samkomulagi um að skilja ekki vegna barnanna, að því er bresk slúðurblöð greina frá. Sagt er að Elísabet drottning hafi ekki gefið upp von um aö Karl og Díana sættist. Haft er eftir þeim sem fylgjast vel með málum innan konungshallar- innar að Elísabet geri sér vonir um að innan fárra ára muni Karl og Díana taka saman aftur, fyrst og fremst vegna sonanna en einnig vegna konungdæmisins og landsins. Elísabet og móðir hennar eru sagð- ar hafa unnið að því bak við tjöldin aö koma í veg fyrir skilnað. Þær voru báðar mótfallnar því að Karl gæfi út tilkynningu um skilnað að borði og sæng fyrir þremur árum. Þær voru heldur ekki sáttar við yfirlýsingu Díönu fyrir ári um að hún drægi sig í hlé frá opinberum skyldustörfum. Þíða virðist nú vera í samskiptum Díönu og Karls. Þau komu saman við opinbera athöfn í síðasta mánuöi og voru bæði viðstödd íþróttadag nú í júní í skóla sona sinna. Almenningur var ánægður með að sjá Karl og Dí- önu saman á ný og vill gjarnan aö Díana verði drottning. Dæmi eru fyrir því í Bretlandi að drottning og konungur hafi lifað að- skildu lífi. Eiginkona Játvarðs sjö- unda, Alexandra prinsessa frá Dan- mörku, samþykkti á sínum tíma að hún og eiginmaðurinn byggju ekki saman og sætti sig jafnframt við aö hann hefði hjákonur. Alexandra var krýnd drottning og sinnti opinberum ■ skyldum þar til hún lést 1925. Hún var ein af vinsælustu og virtustu drottningum Bretlands. Fullyrt er aö Karl hafi hlýtt skipun- um drottningarinnar móður sinnar um að láta ekki sjá sig opinberlega Þíða er nú i samskiptum Díönu og Karls sem nýlega voru baeði viðstödd íþróttadag í skóla sona sinna. Fyrir þremur árum var greinilegt að Díönu og Karli leið ekki vel saman. með Camillu Parker Bowles, gamalli það vonir manna um að Díana verði kærustu sinni og ástkonu, og eykur drottning. Julia Roberts ætlar að búa með Daniel Day Lewis Fregnir um aö kvikmyndaleikkon- an Julia Roberts ætli í sumar að búa með gamla kærastanum sínum, Daniel Day Lewis, hafa vakið at- hygli. Hún er nýskilin og orörómur var á kreiki um að Richard Gere hefði fljótt veitt henni huggun. Það reyndist hins vegar bara vera kjafta- saga. Hins vegar er fullyrt að Julia hafi haft talsvert samband við Daniel Day Lewis sem nýlega er orðinn fað- ir. Hann hefur sagt skilið við barns- móður sína, frönsku leikkonuna Isa- belle Adjanis. Tilfinningarnar milli Juliu og Daniels eru svo heitar að hún ætlar að búa hjá honum á írlandi á meðan hún leikur í kvikmynd með öðrum gömlum kærasta, Liam Neeson. Julia, sem gegnt hefur embætti sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, var nýlega í vikuheimsókn á Haití þar sem hún skoðaði aðstæð- ur barna þar. „Hjarta mitt var að bresta þegar ég sá aðstæðurnar sem börnin í fá- tækrahverfunum búa við,“ sagði Jul- ia eftir heimsóknina. Barnahjálpin vonast til að heimsókn Juliu verði til þess að fjárveiting fáist til aöstoð- ar börnunum. Forseti Haítí, Jean-Bertrand Aristide, var hrifinn af því að fá Juliu Roberts Daniel Day Lewis og Julia Roberts i heimsókn. ætla að deila húsi í sumar. ... að Christie Brinkley og eigin- maður hennar, Rick Traubman, væru eðlilega yfir sig hrifin af nýfæddum syni. Sá stutti svaf vært þegar hann fór heim af sjúkrahúsinu í New York ásamt foreldrunum. Fyrir átti Chrístie niu ára dóttur, Alexu Ray, meö söngvaranum Billy Joel. ... að Madonna hefði hitt eitt af stærstu goðum sinum, hnela- leikakappann Muhammed Ali, á góðgerðarsamkomu á dögunum þar sem verið var að safna fé handa parkinsonssjúklíngum. Madonna talaði fyrir Muhammed sem hefur misst röddina vegna parkinsonsveiki sem hefur hrjáð hann i nokkur ár. ... að Andie MacDowell væri ánægð með að vera búin að missa aukakílóin sem hún hlóð á sig er hún gekk með dótturina sem fæddist i október síðastliðn- um. Andie kveðst hafa farið að neyta makróbiótisks fæðis og er búin að léttast um 10 kíló í vetur. ... að Nlck Nolte væri kominn á toppinn i Holiywood eftir margra ára áfengisvandamál. Nick er nýskilinn við þriðju eiginkonuna sem hann á einn son með. Nick lék nýlega Jefferson forseta i stórmyndinni Jefferson i Paris sem frumsýnd verður á næst- unnl. ... að Stefanía prinsessa og sambýiismaður hennar, Daniel Ducruet, hefðu verið óvenju al- varieg á svipinn þegar þau komu á MTV-hátíðina í Monte Carlo á dögunum. Nærstaddir veltu því fyrir sér hvort það væri hugsunin um væntanlegt brúðkaup sem hefði gert þau svo hátiðleg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.