Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 Stofnandi og forstjóri Microsoft-fyrirtækisins: Einn valdamesti maður heims Fyrirtækiö Microsoft er fremst í flokki í tölvubransanum og stofn- andi og forstjóri fyrirtækisins, Bill Gates, er einn af valdamestu mönn- um heims. Hann munaði víst lítiö um þær 30,8 milljónir dollara sem hann gaf fyrir minnisbók lista- mannsins Leonardos da Vinci á uppboði hjá Christie’s á dögunum. Taliö er að persónulegar eignir for- stjórans nemi aö minnsta kosti 9 milljörðum dollara. Velta Micro- soft-fyrirtækisins var á síðasta ári 4,65 milljarðar dollara og nettó- hagnaður 1,15 milljarður dollara. En Bill Gates, sem er 39 ára, læt- ur sér ekki nægja að safna milljörð- um. í hans augum er skortur á endurnýjun þaö sama og skipbrot. Microsoft-fyrirtækið á ekki bara aö sjá tölvum fyrir hugbúnaöi. Nú vill forstjórinn að fyrirtækið verði ráð- andi á upplýsingahraðbrautinni sem allir eiga að fá að ferðast á á næstu árum. Mynd af Ford til viðvörunar Áætlanirnar eru gerðar í aðal- stöðvum Microsofts í Redmond sem er úthverfi Seattle í Washing- tonríki. Skrifstofa forstjórans er á 1. hæð í byggingu 8. Á skrifstofunni hefur forstjórinn nokkrar tölvur og myndir af eiginkonu sinni, móð- ur sinni, sem er látin, og Henry Ford. Þaö er sagt að þaö sé ýmislegt líkt með Bill Gates, Leonardo da Vinci og Henry Ford. Eins og da Vinci gerir tölvuséníið sér ljóst að kunn- átta er sama og völd. Og eins og Ford fékk Bill Gates fyrstur ákveðna hugmynd. En myndin af Ford hangir ekki á skrifstofu- veggnum tilað forstjórinn fái anda- gift. Hún hangir þar sem viðvörun. Bill Gates vill ekki gera sömu mis- tök og bílajöfurinn sem gleymdi að endurnýja sig og var því visað í annað sæti af General Motors. Einn af þeim klárustu Sagan um Bill Gates og tölvumar er orðin ein af þekktustu goðsögn- unum í Bandaríkjunum. Hann var nemandi í einkaskóla í Seattle. Bill var einn af þeim klárustu en ekki einn af þeim sém aúðveldast var að eiga við. Hann ákvað að miklu leyti sjálfur hvaða tölur stóðu í ein- kunnabókinni. Hann hafði áhuga á stærðfræöi og eðlisfræöi. í því sem hann hafði engan áhuga á fékk hann lágar einkunnir. Faðir Bills var málflutningsmaður og það voru til nógir peningar til að senda piltinn í hinn fræga Harvard há- skóla í Boston. En áður en aö því kom hafði piltur kynnt sér frum- stæða tölvu einkaskólans og hann hafði kynnst Paul Allen sem var tveimur árum eldri en hann sjálf- ur. Dag eftir dag léku piltamir sér með tölvuna en foreldramir, sem voru auðugir, borguðu himinháa símareikninga. Hætti í Harvard Faðirinn var samt ekki ánægður með áhuga sonarins á tölvunni og gladdist því þegar hann hóf nám viö Harvard háskólann. En Bill var eirðarlaus og honum féllu ekki stíf- ar reglur skólans. Paul Allen, vinur hans, kom til Boston til starfa. Þeg- ar þeir gengu saman yfir Harvard torg í janúar 1975 komu þeir auga á nýjasta tölublaö tímaritsins Poþ- ular Electronics. Á forsíðu tíma- ritsins var fyrsta heimilistölva heimsins, MITS Altair 8800. Gates hætti í skólanum eftir tveggja ára nám og stofnaði Microsoft fyrir- tækið ásamt Allen vini sínum. Á menntaskólaárunum höfðu þeir þegar stofnað fyrirtækið Traf-O- Data sem bjó til frumstæð tölvu- kerfi fyrir umferðarstjórnun. Framsýnni en IBM Eftir nokkra mánaða erfiði höfðu ungu mennirnir búiö til kerfi sem gerði fleirum en sérfræðingum á tæknisviöi kleift aö nota nýju Alt- air tölvuna. Það var BASIC forrit- unarmálið. Á næstu árum fins- pússuðu þeir ekki bara BASIC heldur þróuðu nýtt undir nafninu Fortran. Vendipunkturinn varð 1980 þegar fyrirtækið fékk umboð til að þróa stýrikerfið í fyrstu heim- ilistölvu IBM. Það kom árið eftir með stýrikerfmu MS-Dos version 1.0. Starfsmönnum fyrirtækisins hafði fjölgað úr þremur í fjörutíu. Vinimir tveir voru framsýnni en IBM sem vildi einungis framleiða tölvur. Gates og Allen gátu því boð- ið öðrum tölvuframleiöundum hugbúnað sinn. Á næstu tíu árum varð Microsoft leiðandi í bransan- um. Paul Allen dró sig i hlé 1983 eftir að í ljós kom að hann var með krabbamein. Hann er þó enn í stjórn fyrirtækisins. Óttaðist sjónvarp Hvorki velgengnin né auðæfin hafa haft teljandi áhrif á Bill Gat- es. Hann ferðast enn á venjulegu farþegarými. Hann hefur sér- stakan hæfileika til að falla inn í umhverfið og getur meira að segja farið um í heimabæ sínum án þess að fólk þekki hann. Bill leyfir sér stöku sinnum aö fara í bíó og sést oft aka um í leit að bílastæði við stöðumæli. Honum þykir það ónauðsynlegur lúxus að borga 10 dollara í bílastæðahús. Þegar Bill var piparsveinn vildi hann ekki fá sér sjónvarp af ótta við að festast við einhvern mynda- flokk sem myndi taka allt of mikinn tíma frá honum. Hann fékk að lok- um sjónvarp frá vini sínum. Lokað var fyrir rásavalið svo það er ein- Biil Gates, stofnandi og forstjóri Microsoft-fyrirtækisins, á milljarða doll- ara. Bækistöðvar Microsofts fyrir utan Seattle. Hér starfa 10 þúsund manns. ungis hægt að nota sjónvarpið við myndbandagláp. Mörg þúsund fermetra villa Þann 1. janúar 1994 gekk Bill að eiga Melindu French. Hún er yfir- maður í bókhaldsdeild fyrirtækis- ins og þau hittust fyrir nokkkrum árum í starfsmannaferð. Áður en ástin fór að blómstra hafði Bill hafist handa um bygg- ingu mörg þúsund fermetra villu á eyju í miðri Seattleborg. Talið er að húsið kosti á milli 40 og 50 millj- ónir dollara. Að sögn Bills er hér ekki einung- is um einkahíbýli að ræða heldur einnig sýningarsali. Komiö verður upp stórum skjám þar sem nútíma og klassískri list verður endur- varpað. Húsbóndann langar einnig til að láta alla gesti fá sérstök arm- bandsúr sem samtímis virka sem aðgangskort að hinum ýmsu her- bergjum hússins. Bill Gates er tækjafrík. Hann og samstarfsmenn hans eru með sér- hönnuð úr sem með infrarauðum geislum frá tölvuskjám geta lesið af dagbók þar sem fundir eru skráðir. Úrin gefa frá sér píp þegar komið er að fundartíma. Langur vinnudagur Frá því að forstjórinn gekk í það heilaga hefur hann aðeins dregið úr vinnunni. Hann yfirgefur nú skrifstofuna um miðnætti en ekki klukkan tvö að nóttu eins og gerð- ist oft áður. En eins og allir aðrir er Bill mættur í vinnuna klukkan átta á morgnana. Og svo leyfir hann sér að taka þriggja vikna frí á ári. En hann hefur ekki verið vanur að taka sér frí eins og aðrir. Fyrir nokkrum árum var hann í eina viku í Brasilíu ásamt vini sín- um. í farteskinu voru þykkar bæk- ur um nýjustu tækni í sambandi við erfðavísa. Það dregur enginn í efa að for- stjórinn er ljóngáfaöur og setur þess vegna markmið sem allir aðrir eiga erfitt með að ná. En starfs- mennirnir 10 þúsund gera sér fulla grein fyrir því að forstjórinn vill vera í fyrsta sæti og gera sitt besta til þess að standast kröfurnar. And- rúmsloftið er samt afslappað og vinnustaðurinn er vinsæll. I hverri viku sækja fimm þúsund manns um störf hjá fyrirtækinu. Þeir sem valdir eru úr veröa um kyrrt. Menn líta á það sem sjálfsagðan hlut að vinna 50 stunda vinnuviku, flestir vinna 60 stundir. Launin eru þokkaleg en lægri en gengur og gerist í bransanum. Það er af hluta- bréfunum sem starfsmennirnir græða en þau eru hluti af launun- um. Sagt er að þrjú þúsund starfs- manna Microsoft séu orðnir millj- ónamæringar þar sem hlutabréf fyrirtækis hafa hækkað í verði ár eftir ár. Starfsmennirnir eiga rétt á tveggja vikna fríi á ári auk tveggja vikna frís vegna veikinda og fjölskyldumála. Fæstir taka sér svo langt frí. Menn afsaka sig með því að þróunin í tölvubransanum sé svo hröð að menn verði alltof of langt á eftir, þó svo að þeir taki sér ekki nema nokkurra daga frí. Bill Gates hefur lýst því yfir að hann vilji vera meö í kapphlaupinu næstu tíu árin. Lengra fram í tím- ann sé ekki hægt að sjá í þessum bransa. Endursagt úr Jyllands-Posten
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.