Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Side 22
22 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 Sérstæð sakamál Hið tvöfalda líf úrsmiðsins Það var þoka við og á svissneska íjallavatninu þetta síðdegi, og það kom sér vel fyrir manninn sem reri út á það. Hann var í þann veg- inn að gera það sem enginn mátti sjá. Á botni bátsins lágu nokkrir svartir plastpokar og þeir höfðu að geyma sundurhlutaðar líkamsleif- ar konunnar sem hann var nýbú- inn að ráða af dögum. Um hríð reri maðurinn þegjandi í átt að dýpsta hluta vatnsins. Á meðan sóttu að honum hugsanir um það sem gerst hafði frá því hann skiidi við konu sína og gekk aftur í hjónaband. íhugull maður hefði mátt sjá fyrir að til vandræöa kæmi, því hve margir eru það sem skilja viö konu sína til þess að eiga hana síðan fyrir ástkonu? En nú var hún öll, eiginkonan fyrrver- andi og ástkonan, og á leiö með að hverfa í djúpið um aldur og ævi. Maðurinn svipaðist um til að vera viss um að þokan veitti hon- um það skjól sem hann þurfti á að halda. Svo var. Hann lagði árarnar í bátinn og tók að kasta svörtu pok- unum í vatnið. Þeir sukku hægt. Nokkru eftir að sá síðasti var horf- inn sjónum hans setti hann aftur út árarnar og reri til lands. Ábakaleiðinni Maðurinn lagði bátnum þar sem hann hafði tekið hann og gekk frá honum þannig aö enginn yrði þess var að hann hafði verið hreyfður. Síðan leit hann aftur út á vatnið og í kringum sig. Þokan var þétt sem fyrr og honum var ljóst aö hann hefði ekki getað fengið betri dag til þess aö gera það sem hann hafði nú gert. Svissneski úrsmiðurinn Claud Pinochet varpaði öndinni léttar. Hann hafði unnið háskaverk. En það myndi létta af honum byrðum. Nú yrði hann ekki lengur milli tveggja elda og þyrfti ekki að óttast að upp um hann kæmist, þannig að enn á ný kæmi til hjónaskilnað- ar og ef til fullra slita við báðar konumar sem höfðu skipt hann svo miklu í lífinu. Pinochet bretti upp kragann, gekk fram hjá vinnuskúrnum rétt ofan við vatnið, inn í skóginn og að bílastæðinu þar sem hann hafði skilið bílinn sinn eftir. Á leiðinni hitti hann engan og burt ók hann óséður. Aftur andvarpaði hann. Hafði honum tekist að fremja morð af þeirri nákvæmni sem einkennir dagleg störf svissnesks úrsmiðs? Hann brosti eilítið í kampinn. Já, það benti allt til þess að honum hefði tekist að ganga frá öllu svo ekki kæmist upp um hann. Hann rétti úr bakinu þar sem hann sat undir stýri. Forsagan Claud Pinochet bjó í þorpinu Boudry. Nokkram árum áður en þetta gerðist hafði hann skihð við konu sína, Claire, og kvænst yngri konu, Dagmar. Hún bjó í Nieder- wald, þar sem hún rak veitinga- hús, og þar var Pinochet um helg- ar. Ýmsum í Boudry fannst þetta einkennilegt fyrirkomulag, þar eð þeim var ljóst að hann stóð en í ástarsambandi við Claire. í raun var hún ástkona hans. Þeir sem um leyndarmálið vissu skröfuðu oft um þetta tvöfalda líf úrsmiðsins. Og það jók á undrun þeirra að Claire þótti ekki sérstak- lega lagleg kona og hafði jafnvel á sér orð fyrir að vera stundum illa til höfð. Samt var eins og hún heföi eitthvert undarlegt vald yfir Pino- chet og töldu sumir aö það tengdist ástarlífl þeirra. Tveimur dögum eftir að Pinochet kastaöi pokunum í vatnið var til- kynnt um hvarf Claire. Það voru grannar hennar sem höfðu sam- band við lögregluna, en þeir vora þá orðnir órólegir. Næstu daga gerðist ekkert og lögreglan varð einskis vísari. En þá var tilkynnt um óhugnanlegan líkfund. Upp höfðu flotið í fjallavatninu pokarn- ir meö líkamsleifum Claire. Fjarvistarsönnimin Pinochet hafði gert mistök þegar hann kastaði plastpokunum í valn- ið. Hann hafði gleymt að gera göt á þá. Þegar líkamsleifamar fóra að rotna fylltust pokamir af gasi og flutu upp. Það reyndist létt að ganga úr skugga um af hverjum líkhlutarnir vora. Meðal annars gat tannlæknir Claire Pinochet staðfest að um hana væri að ræða. Lögreglan fékk brátt að heyra um hiö tvöfalda líf Pinochets og því var hann tekinn til yfirheyrslu. En hún stóð ekki ýkja lengi því hann virt- ist hafa óhagganlega fjarvistar- sönnun. Að vísu viðurkenndi hann að hafa verið hjá Claire nóttina fyrir daginn sem hún hvarf, en hann sagði hana hafa verið bráðlif- andi þegar hann hefði yfirgefið hana og haldið til vinnu með lest. Rætt var viö lestarstarfsmenn og gátu þeir staðfest að hann hefði verið einn farþeganna. Pinochet vísaði á stimpilklukku úraverksmiðjunnar. Hún sýndi að hann hafði komið til vinnu klukk- an hálfsjö um morguninn og hafði stimplað sig út klukkan sex. Þetta var á föstudegi. Önnur staöfesting Pinochet hélt venju sinni þessa helgi eins og aðrar. Að lokinni vinnu á fóstudeginum hélt hann til Niederwald til þess að vera með konu sinni, Dagmar. Ýmsir gesta á veitingahúsinu gátu staðfest dvöl hans þar. Kurt Kipfel rannsóknarlögreglu- fulltrúa var ljóst að hann var kom- inn í vanda með rannsókn málsins. Hann var enginn nýliði, og eins og stundum áður fannst honum ein- kennilegt hve óhagganleg fjarvist- arsönnun Pinochets virtist vera. Það var næstum því eins og hún væri of fullkomin. Kipfel grunaði Pinochet, enda var hann sá eini sem vitað var um sem haft hafði ástæðu til að ráða fyrrum eigin- konu sína af dögum. Virtist ekki hægt að bera brigður á að Claire hefði verið á lífi þegar Pinochet yfirgaf hana á fóstudagsmorgnin- um. Það vakti hins vegar athygli Kip- fels að enginn virtist hafa séð Claire á lífi allan fostudaginn. Eng- inn nágrapna hennar kvaöst hafa séð hana. Nú ákvað Kipfel að kanna hvort Pinochet hefði í raun verið í vinnunni aUan fóstudaginn. Lögreglufulltrúinn ræddi við hlið- vörð verksmiðjunnar. Hann lét sér þau orö um munn fara sem styrktu enn þann grun Kipfels að fjarvist- arsönnunin væri fölsuð. Játningin Hliðvörðurinn sagði: „Stimpil- klukkan og kortin eru engin sönn- un fyrir neinu. Fólk stimplar sig inn þegar það kemur á morgnana og þegar þegar það fer undir kvöld. En það er engin sönnun fyrir því að það hafi verið í verksmiðjunni aUan daginn. Það er enginn vandi að læðast út og heimsækja kær- ustuna eða fara á veitingahús. Fólk hefur komist fram hjá kerfinu á margan hátt.“ Enn á ný var Pinochet tekinn til yfirheyrslu. Var hann nú sakaður um að hafa farið úr vinnunni um- ræddan fóstudag. Eftir nokkurt þóf yppti hann öxlum. „Já,“ sagði hann. „Það var einmitt það sem ég gerði. Ég fór óséður úr verksmiðj- unni um bakdyr til þess að hitta fyrri konu mína. Við fórum í öku- ferð út í skóg. Svo fórum við niður að vatninu." Pinochet skýrði nú frá því að á leiðinni hefði Claire enn einu sinni krafist þess að hann skildi við Dagmar og gengi aftur að eiga sig. Þessa kröfu sagði úrsmiðurinn hafa verið sér mjög á móti skapi. Kvaðst hann hafa sagt að ekki stæði tU að hann skildi við Dag- mar. Þá hefði Claire hótað því að segja henni frá því að hann stæði enn í ástarsambandi við sig, fyrr- verandi eiginkonu sína. „Við fórum aö rífast," sagði Pinochet, „og brátt kom til átaka. Allt í einu var mér ljóst að ég hafði kyrkt hana.“ „Lausnin" Um hríö sagðist Pinochet hafa horft á líkið af konu sinni fyrrver- andi, án þess að vita hvað hann ætti að gera. Þá hefði honum skyndilega Jundist hann verða aö losna við þaðan tafar. Fyrsta lausn sem sér hefði komið í hug hefði veriö að kasta því í vatniö, en á bakka þess hefði hann svo séð vinnuskúr og í honum hefðu verið alls kyns verkfæri. Þá hefði hann minnst þess að vera með svarta plastpoka í farangursgeymslu bíls síns. Hann sagðist nú hafa tekið exi í skúrnum og hlutað líkiö í sundur. Hlutana heföi hann síðan sett í pokana, sem hann heföi borið, hvern af öðrum, út í bát sem bund- inn var við litla bryggju. Pinochet lýsti nú hugsunum sin- um meðan hann reri út á vatnið og því hve feginn hann hafði verið að njóta skjólsins sem þokan veitti honum. Málalok Þegar í land kom sagðist Pinochet hafa haldiö beint aftur til vinnu. Óséður hefði hann komist inn um bakdyrnar. Hundruð annarra starfsmanna hefðu verið við vinnu og enginn hefði virst hafa tekið eft- ir því að hann hafði verið fjarver- andi klukkustundum saman. Claud Pinochet var leiddur fyrir sakadóm í Bern, höfuðborg Sviss. Höfðu ýmsir á orði að heföi úrmsiö- urinn verið eilítið betur aö sér og gert göt á pokana hefði líkið ef til vill aldrei fundist og hann sloppið. En það sem heföi hugsanlega getað orðið fullkomið morð leiddi til þess að Claud Pinochet fékk tuttugu ára fangelsisdóm. Síðustu orð hins dæmda á leið úr réttarsalnum vöktu' nokkra at- hygli og ekki að ófyrirsynju. „Ég ætla aö vona að það sé sæmilega hreint í fangelsinu," sagði hann, „því annars hugsa ég líklega of mikið um Claire. Hún var svo oft illa til höfð.“ En vera má að Pino- chet hafi lítt íhugað þaö sem hann lét sér um mun fara, rétt eftir aö vera búinn að fá fangelsisdóminn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.