Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 25
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
25
Varnargarðurinn farinn að taka á sig mynd.
Grjótburður
að næturlagi
í Málmey
- siglt með Málmeyjarjarlinum
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Málmey er stærst eyja í Skagafirði
og sú eina sem verið hefur í byggð
ef undan er skilin dvöl útlagans
Grettis sterka og Illuga bróður hans
í Drangey. Málmey hefur lengi staðið
í skugga Drangeyjar sökum sögu-
frægðar þeirrar eyju. Nú er meining-
in að koma Málmey inn á landakort
ferðamannsins og stefnt er að fjölgun
ferða þangað út í sumar.
í þeim tilgangi hefur verið ráðist í
að bæta lendinguna í eynni en hún
hefur ætíð verið til trafala. Dýpið er
lítið við eyna og fjaran talsvert grýtt.
Lendingarbæturnar fólust í því að
laga rennu í fjörunni að austanverðu
þar sem uppgangan er með því að
bera stórgrýtið úr fjörunni og hlaða
því í varnargarð. Sæta varð lagi milli
flóðs og fjöru við að framkvæma
þetta verk.
Búnir undir grettistök
Það var vaskt lið íþróttafólks úr
Ungmennafélaginu Neista á Hofsósi
sem tók þetta verkefni að sér og fór
14 manna flokkur út í eyna á dögun-
um. Neistamenn vissu svo sem lítið
út í hvað þeir voru að fara því ekki
lá fyrir fullnægjandi vitneskja um
stærö grjótsins í fjörunni. Það var
því eins gott að vera undir það búinn
að lyfta hverju grettistakinu á fætur
öðru og útbúin höfðu verið burðar-
net á stöngum þar sem komust allt
að sex menn að við burðinn.
Það var þungbúið loft þegar lagt
var af stað frá Hofsósi og aðeins
grillti í Þórðarhöfða sem dökka þúst
þótt einungis væri siglt um 100 metra
frá honum. Komið var út í eyju rétt
fyrir miðnættið og þar sem lítið var
farið að fjara út var eytt drjúgum
tíma í það til að byrja með að laga
uppgönguna. Síðasta stórgrýtið var
hreinsað úr fjörunni rétt fyrir stór-
straumsfjöru um sexleytið.
Frumskógur
Málmeyjarjarlsins
Páll Magnússon „Málmeyjarjarl",
sem ásamt Jóhannesi Sigmundssyni
hyggst standa fyrir Málmeyjarferð-
um í sumar, segir eyjuna hafa upp á
mikið að bjóða. „Það er ákaflega frið-
sælt hérna og fallegt. Þetta er eins
og frumskógur hérna uppi þegar
hvönnin er komin í fullan skrúða og
fuglalíf er hér mikið,“ sagði Páll.
Síðast var búið í Málmey 1950 en
eyjan fór í eyði eftir að íbúðarhúsið
brann til kaldra kola á Þorláksmessu
það ár. Enn sjást rústir húsa og menj-
ar sem sýna að skammt er liðið frá
búsetu manna í eynni. Stórir og mikl-
ir staurar í varpanum gefa vísbend-
ingu um að vindurinn hafi verið
nýttur til raforku í eynni á þessari
öld.
Eggsléttur gangstígur liggur heim
að húsum og graslendi er mikið í
eynni. Greinilegt er að þar hefur ver-
ið sléttað mikið land til slægju og
eyjan verið búsældarleg á sínum
tíma. Heimildir eru um að eitt sinn
hafi fimm fjölskyldur búið í Málmey
og kannski verið þar fleiri þegar
mest var.
Hjátrú og hindurvitni
Margar þjóðsögur tengjast Málmey
og hjátrú og hindurvitni voru þar
ríkjandi fram eftir öldum. Til dæmis
fylgdu þáu álög eynni að ef þangað
kæmi hestur mundi húsfreyjan
missa vitið. Þá máttu sömu ábúendur
ekki búa í Málmey í meira en 20 ár,
þá var von voveiflegra atburða. Þessi
bönn voru ekki rofm fyrr en komið
var fram á þessa öld og kom ekki að
sök.
Sérkennilegur atburður gerðist í
Málmey í lok 19. aldar. Sveinn vinnu-
maður Baldvins. Baldvinssonar
bónda var að smala fé í kafaldsbyl á
norðaustan. Snjóhengjur höfðu
myndast á klettabrúnum á eyjunni
og það var fram af einni slíkri sem
Sveinn hrasaði er hann reyndi að
komast fyrir féð. Fall Sveins var 40
metrar og þótti furðulegt að hann
skyldi einungis hljóta lærbrot af er
hann rak sig í klettasnös í niðurleið-
inni. Talið er að það hafl orðið Sveini
til lífs að frosinn skinnjakki, sem
hann var í, þandist móti loftstreym-
inu og virkaði sem fallhlíf.
Handleggir þeirra Páls Brynjarssonar og Halldórs Kjartanssonar teknir að
þreytast at burðinum. DV-myndir Þórhallur
Sviðsljós
Tvær myndir væntan-
legar með James Woods
Aðdáendur leikarans James
Woods þurfa ekki að hafa áhyggjur
af því að hann sitji auðum höndum.
Hann hefur nýlokið við leik í mynd
sem að mestu fer fram í réttarsal
og byggð er á sönnum atburðum.
Woods leikur verjanda 7 kennara
sem ákærðir voru fyrir kynferðis-
lega misnotkun á börnum í skólan-
um þar sem þeir kenndu. Máliö
kom á sínum tíma tvisvar fyrir
dómstólana. Myndin heitir „The
McMartin Trial“.
Næsta mynd sem hann leikur í
er „Casino", sem enginn ófrægari
en Martin Scorsese mun leikstýra.
Mótleikari Woods í þeirri mynd er
honum ekki að öllu ókunnugur.
Það er Sharon Stone en hún lék
einmitt með honum í „The Special-
ist“. „Ég er með stórskemmtilegt
hlutverk í þeirri mynd sem mellu-
dólgurinn hennar Sharon Stone,“
segir Woods. „Það er gaman að
leika fyrrum elskhuga hennar í
tveimur myndum í röð. Hún getur
á engan hátt losnað við mig úr
þessu hlutverki."
James Woods er vanur að leika
fyrrum elskhuga Sharon Stone.
ú teto í fótspor
bróður
C odfoels?
TAKTU ÞÁTT í
spennandi leik
BÓKANNA
og
SJÓNVARPSINS
Þú getur unnið þér inn helgarferð með heimsókn í
Shrewsburyklaustur, heimaslóðir spæjaramunksins
vinsæla sem er frægur af bókunum og líka úr sjónvarpi.
Það eina sem þú þarft að gera er að leysa eina eða fleiri af fjórum gátum um Bróður Cadfael svörin
við gátunum finnur þú í bókunum um Cadfael. Ef þú leysir allar fjórar gáturnar fjórfaldar þú
vinningsmöguleika þfna. Gáturnar birtast ein í einu í HELGARBLAÐI DV.
I.júlí-gáta 8. júlí-gáta 15. júlí-gáta 22. júlí-gáta
Líki ofaukið Bláhjálmur Líkþrái maðurinn Athvarf öreigans
Glæsileg utanlandsferð í boði
Dregið verður úr réttum lausnum og hlýtur einn
heppinn sigurvegari glæsilega helgarferð fyrir tvo
til Shrewsbury með heimsókn í klaustrið.
iij ýLf i Flogið verður 25. ógúst með Air Emerald
j flfvM*] til Luton á Englandi - möguleiki er að fram-
j C£.R lengja dvölina í Englandi eða á Irlandi.
AUKAVERÐLAUN! Tíu heppnir þátttakendur verða dregnir úr pottinum
og hljóta þeir tíu Urvalsbækur að eigin vali, að heildarverðmæti 8.950 kr.
hver pakki. - Skilafrestur ertil 9. ágúst. Þú sendir lausnirnar til Úrvalsbóka]
- merkt Bróðir Cadfael - Þverholti 11 - 105 Reykjavík.
Bækurnar um bróður Cadfael fást á næsta sölustað og kosta aðeins
895 kr. og enn þá minna á sérstöku tilboði í bókaverslunum.
mMÆÍlnémpmu w.
EMERALD AIR
lengra tyrtr Isagra verö